

Líkur sækir líkan heim, segir máltækið, og það virðist eiga við söngkonuna Rihönnu og írska leikarann Colin Farrell, sem samkvæmt The Sun eru farin að stinga saman nefjum.
Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á Sódómu Reykjavík laugardaginn 5. mars. Sex hljómsveitir berjast þar um laust sæti í alþjóðlegri lokakeppni sem verður haldin á tónlistarhátíðinni Wacken Open Air í Þýskalandi.
„Ástæðurnar fyrir þessari ákvörðun minni nú eru tvær; annars vegar hef ég nóg á minni könnu og hins vegar fannst mér kominn tími til að hleypa öðrum að,“ segir Sigmar Guðmundsson, sem hefur ákveðið að segja skilið við Eurovision eftir að hafa lýst þessari vinsælu söngvakeppni í fimm ár í Sjónvarpinu.
"Atli bróðir fann sérkennileg hljóðfæri úti um allt Skotland fyrir þessa mynd og skrítinn kór á Skólavörðustígnum,“ segir Karl Örvarsson tónlistarmaður. Söngur Karlakórsins Alþýðu hljómar í Hollywood-kvikmyndinni The Eagle en tónskáldið Atli Örvarsson, sem hefur verið búsettur í Bandaríkjunum, semur einmitt tónlistina við hana. Meðal þeirra sem skipa kórinn Alþýðu auk Kalla Örvars eru veitingamennirnir Kormákur Geirharðsson og Skjöldur Sigurjónsson, að ógleymdum Karli Th. Birgissyni, nýráðnum ritstjóra Eyjunnar.
Justin Bieber hefur hneykslað marga í Ameríku með yfirlýsingum sínum um fóstureyðingar og ameríska heilbrigðiskerfið. Íslenskir aðdáendur hans flykkjast í bíó um helgina.
"Ég hélt í fyrstu að þetta yrði afslappað, bara fjögurra daga ferð til Düsseldorf, en nei; þetta eru tvær vikur og nánast hver einasti dagur þéttbókaður,“ segir Hreimur Örn Heimisson, einn sexmenninganna sem flytja Eurovision-lagið í ár, Aftur heim.
"Þarna mætast vissulega andstæðir heimar en það er á margan hátt tímabært. Að fólk deili með sér í stað þess að deila," segir Ragnar Ísleifur Bragason, einn aðstandenda Leikhúss listamanna.
Stóra málið í Bretlandi er án nokkurs vafa að 1.900 manns fengu um helgina boðskort í brúðkaup þessa áratugar, hjá þeim Kate Middleton og Vilhjálmi Bretaprins.
"Þetta er bara í sínum farvegi, það er verið að ræða við alla aðila og reyna að greiða úr þessari flækju á vettvangi STEFs þar sem það á heima,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 miðla.
"Þetta er alveg æðislegt því nú get ég bara farið í Dressmann og keypt mér bol,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, sjónvarpsstjarna með meiru. Sverrir er mikill Rolling Stones maður en ekkert síður Stones-bolamaður og gengur helst ekki í neinu öðru.
Ashton Kutcher upplýsti nýverið að draumastúlka hans hefði eitt sinn verið Jennifer Aniston.
Fín leikhúspoppplata úr verksmiðju Memfismafíunnar.
Grínistinn Jerry Seinfeld fær um 180 milljónir króna fyrir eina uppistandssýningu í O2-höllinni í Lundúnum á næsta ári. Dýrustu miðarnir kosta um tuttugu þúsund krónur.
Inception er besta kvikmynd ársins að mati álitsgjafa Fréttablaðsins. Hún var einnig næstaðsóknarmesta myndin á eftir stórvirkinu Avatar.
„Við sáum myndina og ákváðum í kjölfarið að það væri við hæfi að banna Klovn: The Movie innan fjórtán ára," segir Þorvaldur Árnason hjá Sambíóunum sem dreifa dönsku gamanmyndinni. Hún verður frumsýnd 1. janúar næstkomandi og gerir Þorvaldur sér hóflegar vonir um að þeir Casper Christensen og Frank Hvam geti heimsótt Ísland af því tilefni.
„Ég held að ég hafi í mesta lagi misst út þrjú eða fjögur Skaup frá 1970 þegar Flosi var með þetta,“ segir Þórhallur Sigurðsson, Laddi. Hann leikur auðvitað í Áramótaskaupinu í ár en þetta er væntanlega 36. eða 37. Áramótaskaupið sem honum bregður fyrir í.
The Fame Monster með söngkonunni Lady Gaga er söluhæsta plata ársins 2010. Platan, sem er stækkuð útgáfa af frumburði hennar The Fame, seldist í tæpum sex milljónum eintaka víðs vegar um heiminn.
Áramótadjammið er mörgum heilagt og því um að gera að fara yfir það sem í boði er á gamlárs- og nýárskvöld. Skemmtistaðir landsins slá ekki slöku við frekar en fyrri daginn og bjóða skemmtanaglöðum Íslendingum, og öllum þeim fjölmörgu sem kíkja á Klakann, upp á tónleikaveislu. Fréttablaðið kannaði hvar heitasta djammið er um áramótin.
Skráning í hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle er hafin og stendur yfir til 20. janúar. Sigurvegarinn á Íslandi fer til Þýskalands næsta sumar og spilar á rokkhátíðinni Wacken í alþjóðlegum úrslitum Metal Battle keppninnar.
Tron er heillandi ævintýri sem missir þó heldur flugið í seinni hálfleik.
„Þetta er fyrst og fremst mjög góð viðurkenning fyrir mig og mína hönnun en auðvitað skemmir ekki fyrir að fá þessi peningaverðlaun,“ segir Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður en hún lenti í öðru sæti í samkeppni sem virt hönnunarheimasíða, designspongeonline.com, stóð fyrir.
„Við erum að skoða þetta á fullu. Ef allt heppnast viljum við fara þarna inn," segir Grímur Atlason, skipuleggjandi tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves. Svo gæti farið að hátíðin verði að hluta til haldin í nýja tónlistarhúsinu Hörpu á næsta ári. Þar með myndi Harpa bætast í hóp tónleikastaða á borð við Nasa, Listasafn Reykjavíkur, Iðnó og Sódómu Reykjavík sem hafa hingað til hýst Airwaves.
Plata ársins í Bretlandi er The Suburbs með Arcade Fire samkvæmt samantekt HMV. The National hafnaði í öðru sæti og LCD Soundsystem í því þriðja. The Suburbs með kanadísku hljómsveitinni Arcade Fire er plata ársins samkvæmt árlegri samantekt bresku verslunarkeðjunnar HMV.
„Við ætlum að fá hann til að koma – við erum að spá í næstu fiskidaga. Þá eru flestir hérna. Ég trúi ekki öðru en að margir hafi áhuga á að hlusta á hann,“ segir Björn Snorrason, framkvæmdastjóri Dalpay og varamaður í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar.
Baltasar Kormákur heldur utan til Hollywood í næsta mánuði þegar tökur á Contraband hefjast í New Orleans. Hundrað manna tökulið verður að störfum í rúma tvo mánuði og varla verður þverfótað fyrir stjörnum.
„Næsta ár lofar mjög góðu. Ég hlakka mikið til að komast út aftur og byrja,“ segir Árni Hjörvar Árnason, bassaleikari bresku hljómsveitarinnar The Vaccines.
„Ég datt aldrei á hausinn en ég var ansi oft mjög nálægt því," segir plötusnúðurinn Margeir Ingólfsson sem hélt sitt fyrsta diskókvöld í fimm ár á skemmtistaðnum Austur á annan í jólum.
Tekjuhæsta mynd áranna 2009 og 2010 er ævintýramyndin Avatar. Þessi árangur á sér engin fordæmi í íslenskri kvikmyndasögu.
Leikkonan Courteney Cox þolir ekki nýju vinkonu Jennifer Aniston, spjallþáttastjórnandann Chelsea Handler, og hefur hvatt Aniston til að binda enda á þennan nýja vinskap.
Chloé Sevigny hefur lengi þótt ein best klædda kona heims og hannar einnig eigin fatalínu í samstarfi við hönnunarmerkið Opening Ceremony. Sevigny segist þó heldur vilja fá hrós fyrir góða frammistöðu á hvíta tjaldinu en fyrir fötin sem hún klæðist.