Lífið
86 87 88 89 90 91 92 93 94 … 102 ›
The Sun telur Nylon líkalegan arftaka Girls Aloud Sú saga hefur gengið í breska tónlistarbransanum nú í nokkrar vikur að stúlknasveitin Girls Aloud sé að leggja upp laupana. Breska slúðurblaðið The Sun er ekkert að tvínóna við hlutina og lýsir því yfir á heimasíðu sinni að Girls Aloud séu líklega að hætta og nú þurfi Bretar að kjósa nýja arftaka þeirra. Lífið 20.7.2006 14:06
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju Fjórðu tónleikarnir í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 23. júlí kl 17:00. Flytjandi að þessu sinni er orgelleikarinn Guðný Einarsdóttir. Tónleikarnir standa í eina klukkustund án hlés og er aðgangur ókeypis. Lífið 17.7.2006 10:30
Lifandi vegvísar í Reykjavík Spennandi nýjung Vinnuskóla Reykjavíkur í ár er samstarfsverkefni við Höfuðborgarstofu um Lifandi vegvísa í miðborginni. Ungmennin sjö sem taka þátt í hinu nýstárlega verkefni luku 10. bekk grunnskólans í vor en hlutverk Vegvísanna er að vera lifandi upplýsingamiðstöð, vísa ferðamönnum til vegar og fræða þá um margvíslega afþreyingarmöguleika í Reykjavík. Lífið 20.7.2006 13:41
„Heita sætið“ á Q Bar í kvöld Í kvöld heldur tónleikaröðin á Q bar við Ingólfsstræti áfram. Þá sest Kristjana Stefánsdóttir djassari í „Heita sætið“ og syngur mörg sinna uppáhalds laga við undirleik þeirra Agnars Más Magnússonar píanóleikara og Gunnars Hrafnssonar bassaleikara. Lífið 19.7.2006 16:21
Biggi og fimm manna hljómsveit The Bigital Orchestra leikur fyrir gesti og gangandi í verslun 12 Tóna að Skólavörðustíg 15 á morgun 21. júlí. Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00 og verða léttar veitingar á boðstólnum. Tónleikarnir í 12 Tónum eru einu tónleikar Bigga í Reykjavík í þetta skiptið Lífið 20.7.2006 10:06
Andlit norðursins í Vestmannaeyjum Í sumar gefst Vestmanneyingum og gestum þeirra tækifæri til að virða fyrir sér ljósmyndir Ragnars Axelssonar sem komið hefur verið fyrir utan á salthúsi Ísfélags Vestmannaeyja við Kirkjuveg og Strandveg. Lífið 19.7.2006 11:46
Hljómaveitin Æla gefur út Hljómsveitin Æla hefur verið starfandi í þeirri mynd sem hún er í dag frá árinu 2003. Í upphafi átti Æla bara að vera gott partý en nú er komin út breiðskífa sem ber heitið Sýnið tillitssemi, ég er frávik. Lífið 19.7.2006 10:39
Líf í Eden um helgina Það að verður mikið um að vera fyrir fjölskyldufólk um helgina í Eden. Trúðurinn Eddi hefur heldur betur slegið í gegn, og hefur nú samið dans- og söngatriði í samstarfi við risa Amazon páfagaukaparið. Einnig er aldrei að vita nema Orkuveitu risarækjurnar og kanínurnar slái á létta strengi. Lífið 19.7.2006 10:28
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju Fimmtudaginn 20. júlí leikur Douglas A. Brotchie, organisti Háteigskirkju, á hádegistónleikum tónleikaraðarinnar Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju. Tónleikarnar, sem byrja kl. 12, hefjast á Kornelíusarmarsi eftir Felex Mendelssohn sem upphaflega var skrifaður fyrir hljómsveit árið 1841. Lífið 18.7.2006 15:16
Hjólandi á tónleikatúr Klukkan tólf á hádegi í dag, þriðjudaginn 18. júlí, munu þrír vaskir drengir leggja af stað hjólandi í tónleikatúr hringveginn. Ferðin er farin til að kynna og vekja athygli á SPES-samtökunum og munu þeir hafa opinn baukinn á tónleikum sínum til styrktar samtökunum. Lífið 18.7.2006 09:43
Lögin hans Jóns míns Gleðigjafarnir Gunnar Helgason og Felix Bergsson senda frá sér plötuna Lögin hans Jóns míns sem kemur út þann 21. júlí næstkomandi hjá Senu. Platan inniheldur bestu og vinsælustu lögin sem hinn kunni tónlistarmaður Jón Ólafsson hefur samið fyrir þá félaga í gegnum tíðina, enda er platan nefnd honum til heiðurs. Lífið 17.7.2006 15:35
Moshi Moshi á Airwaves Líkt og í fyrra mun breska plötuútgáfan Moshi Moshi vera með sérstakt Moshi Moshi kvöld á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Samstarf Airwaves og Moshi Moshi teygir sig nokkur ár aftur í tímann. Lífið 17.7.2006 15:15
FREYMÓÐSSON-DANLEY-verðlaunin FREYMÓÐSSON-DANLEY-verðlaunin sem veitt eru íslenskum nemendum fyrir góðan námsárangur við Kaliforníuháskólann í Santa Barbara, voru veitt í annað sinn mánudaginn 12. júní síðastliðinn. Lífið 17.7.2006 10:14
100% sumar Þessi diskur er sá fyrsti nýrrar útgáfuraðar frá 21 12 Culture Company og inniheldur 20 af heitustu íslensku lögunum vorið og sumarið 2006. Lífið 17.7.2006 14:47
Forhlustun á fyrstu plötu Dr. Mister & Mr. Handsome Tónlist.is ætlar að bjóða Íslendingum öllum að hlusta á fyrstu plötu Dr. Mister & Mr. Handsome áður en hún kemur í verslanir nk. fimmtudag. Dirty Slutty Hooker Money er frumburður einnar ferskustu hljómsveitar sem komið hefur fram á sjónarsvið íslenska tónlistarmarkaðarins í mörg ár. Lífið 17.7.2006 11:42
Morrissey mætir á klakann - Miðasala hefst á morgun Morrissey, einhver áhrifamesti tónlistarmaður Breta undanfarin rúm 20 ár heimsækir Íslendinga í næsta mánuði. Hann stofnaði The Smiths ásamt Johnny Marr í upphafi 9. áratugarins og vakti sú sveit strax gríðarmikla athygli. Lífið 17.7.2006 10:02
Opnun sýningar í Nýlistasafninu Laugardaginn 15. júlí kl: 17:00 opna listamennirnir Björk Guðnadóttir, Daníel Magnússon og Hildur Bjarnadóttir sýningar sínar í Nýlistasafninu á Laugarvegi 26. Lífið 13.7.2006 15:00
Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju Ji-Youn Han er fyrsti Asíubúinn sem leikur á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju á vegum Alþjóðlegs orgelsumars. Hún leikur á tvennum tónleikum um helgina, kl. 12 laugardaginn 15. júlí og kl. 20. sunnudaginn 16. júlí. Ji-Youn er frá Suður-Kóreu en hefur undanfarið verið við nám í Freiburg í Þýskalandi. Lífið 13.7.2006 14:12
Söguganga um Oddeyrina á Akureyri Árleg söguganga um elsta hluta Oddeyrar verður farin laugardaginn 15. júlí. Lagt verður af stað frá Gránufélagshúsunum kl. 14. Oddeyrin er ein sandeyranna sem Akureyri byggðist á í upphafi. Hún er mynduð af framburði Glerár sem áður fyrr átti farveg til sjávar suður í Hofsbótina. Lífið 13.7.2006 14:35
"Opinn skógur" í Tröð við Hellissand Laugardaginn 15. júlí nk. verður Tröð, við Hellissand á Snæfellsnesi, svæði Skógræktar- og landverndarfélagsins undir Jökli, opnað formlega undir merkjum "Opins skógar" skógræktarfélaganna. Lífið 13.7.2006 14:23
Videoblogg frá Los Angeles Ungfru Ísland í ár, Sif Aradóttir, fer til Los Angeles í dag og keppir þar fyrir Íslands hönd í keppninni Miss Universe þann 23. júlí. Manuela Ósk, fyrrum ungfrú Ísland, og Karen vinkona hennar ætla fylgja Sif út og videoblogga á hverjum degi þar til keppninni lýkur. Lífið 13.7.2006 13:40
Djassdívan Andrea á Q Bar Djassinn heldur áfram að duna á Q Bar þar sem tónlistarmenn stíga á svið á hverju fimmtudagskvöldi í sumar. Í kvöld hefur djassdívan Andrea Gylfadóttir upp raust sína undir leik Gunnars Hrafnssonar bassaleikara og Björns Thoroddsen gítarleikara. Lífið 13.7.2006 11:47
Menningarhátíð heyrnalausra haldin á Akureyri Norræn menningarhátíð heyrnarlausra hófst formlega í gær, mánudaginn 10. júlí í Ketilhúsinu á Akureyri og stendur hátíðin til 16. júlí. Rúmlega 250 þátttakendur eru skráðir á menningarhátíðina. Lífið 12.7.2006 13:50
Framkvæmdastjóri UNICEF í heimsókn á Íslandi Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, mun heimsækja Ísland næstkomandi föstudag. Um þessar mundir eru rúm tvö ár frá því landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi hóf störf og mun UNICEF nú gera framtíðarsamning við landsnefndina. Lífið 12.7.2006 11:26
Reykjavík! með nýja breiðskífu Reykjavík! og 12 Tónar kynna með stolti nýja breiðskífu sveitarinnar sem heitir einfaldlega 'Glacial landscapes, religion, oppression and alcohol'. Hljómsveitin Reykjavík!, sem er að mestu ættuð frá Vestfjörðum, gerði útgáfusamning við 12 Tóna ekki alls fyrir löngu og nú er fyrsta plata sveitarinnar loksins komin út en hennar hefur verðið beðið með mikilli eftirvæntingu. Lífið 12.7.2006 11:34
Snorri Ásmundsson á heimaslóðum Snorri Ásmundsson opnar sýningu Laugardaginn 15 Júlí klukkan 16.00, hjá Jónas Viðar gallerí að Kaupvangstræti 12 Akureyri. Snorri hefur komið víða við í listsköpun sinni og á að baki sérkennilegan feril sem listamaður. Snorri hefur verið mjög umdeildur og hafa gjörningar hans oftar en ekki snert viðkvæma strengi hjá samborgurum. Lífið 12.7.2006 11:09
Elladagur í Laufási Minjasafnið á Akureyri stendur fyrir kvöldvöku fimmtudagskvöldið 13. júlí kl. 20:30 í Gamla bænum í Laufási. Lífið 12.7.2006 10:26
Sýning í sögusetrinu á Hvolsvelli Laugardaginn 15.júlí opnar Ragnar Sigrúnarson sýningu á verkum sínum í Galleríi Sögusetursins á Hvolsvelli. Ragnar er fæddur í Reykjavík 30. desember 1980. Hann lagði stund á ljósmyndun við “The National College of Photography” í Pretoriu í Suður-Afríku og lauk þar námi í nóvember 2005. Lífið 12.7.2006 13:42
Svona er sumarið 2006 að koma út Safnplatan Svona er sumarið 2006 kemur í verslanir þann 14. júlí n.k en Sena gefur út plötuna út. Platan er nú sem endranær stútfull af nýjum íslenskum lögum, 21 talsins, í flutningi vinsælustu hljómsveita og söngvara landsins. Lífið 11.7.2006 11:45
Tepoki með tónleika Jazz quartettinn Tepoki heldur Tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun miðvikudag 12.07. Kl :20.00. Lífið 11.7.2006 15:01