Víkingur Reykjavík

Sjáðu slysamark í Keflavík og öll hin mörkin á Víkingakvöldi í Bestu í gær
Víkingarnir úr Reykjavík og Keflavík röðuðu inn mörkum í Bestu deildinni í fótbolta í gærkvöld og nú má sjá þessi mörk inn á Vísi.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Víkingur - Fram 4-1 | Meistararnir unnu öruggan sigur gegn nýliðunum
Íslandsmeistarar Víkings unnu öruggan 4-1 sigur er liðið tók á móti nýliðum Fram í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld.

Arnar: Maður er kannski bara gráðugur á línunni og vill meira
Víkingur átti næsta auðvelt með Fram í kvöld þegar þeir unnu 4-1 sigur á gestum sínum. Leikið var í fimmtu umferð Bestu deildarinnar og var sigurinn aldrei í hættu. Þjálfari Víkings viðurkenndi það að vera gráðugur og að hafa viljað meira frá sínum mönnum en stigin voru vel þegin.

Víkingar áttu að fá tvö augljós víti í gær: „Þetta er alveg eðlisfræði-vítaspyrna“
Þorvaldur Árnason sleppti tveimur augljósum vítaspyrnum í leik Leiknis og Víkings í Bestu deildinni í gærkvöldi og Víkingarnir þurftu svo sannarlega á þeim að halda í þessu markalausa jafntefli.

Dómarinn klikkaði á eðlisfræði 101 að mati Arnars
Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, hafði sitthvað út á dómgæsluna í leik lærisveina sinna gegn Leikni í Bestu-deild karla í fótbolta að setja að leik loknum i kvöld. Liðin skildu jöfn í markalausum leik.

Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. - Víkingur R. 0-0 | Markalaust hjá Leikni og Víkingi
Leiknir og Víkingur gerðu markalaust jafntefli þegar liðin áttust við í fjórðu umferð Bestu-deildar karla í fótolta á Domusnova-vellinum í Breiðholti í kvöld.

FH og Víkingur byrja sumarið á sigri
Tveir fyrstu leikir sumarsins í Lengjudeild kvenna í fótbolta fóru fram í kvöld. FH vann 4-0 stórsigur á nágrönnum sínum í Haukum og Víkingur vann nauman 3-2 sigur á Augnabliki.

Emil sá fyrsti í meira en áratug til að skora þrennu hjá Íslandsmeisturunum
Emil Atlason var í miklu stuði í Bestu deildinni í gær en hann skoraði þá þrennu í 5-4 sigri Stjörnunnar á Íslandsmeisturum Víkings á Víkingsvellinum. Það var orðið langt síðan að ríkjandi meistarar fengu á sig þrennu.

Sjáðu markasúpuna í Víkinni og dramatíkina á Dalvík
Einn magnaðasti leikur seinni ára fór fram í Víkinni í gær þegar Stjarnan vann Íslands- og bikarmeistara Víkings, 4-5, í 3. umferð Bestu deildar karla. Alls voru sextán mörk skoruð í þremur leikjum í gær.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Stjarnan 4-5 | Markasúpa í Fossvogi
Víkingur fékk Stjörnuna í heimsókn í Víkina í kvöld. Leikurinn var virkilega opinn og skemmtilegur fyrir alla sem sáu hann. Lokatölur 4-5 Stjörnumönnum í vil sem fara mjög sælir heim í Garðabæinn.

Víkingur valtaði yfir Reykjavíkurslaginn og Tindastóll kláraði HK
Alls fóru fram sex leikir í Mjólkurbikar. kvenna í fótbolta í dag. Víkingur R. vann öruggan 5-0 útisigur gegn Fram í Reyjavíkurslag og Tindastóll vann 3-2 sigur gegn HK eftir að hafa farið með þriggja marka forystu inn í hálfleik.

Sjáðu hvernig reiðir Víkingar kláruðu Keflvíkinga í fyrri hálfleik
Eftir tapið óvænta fyrir ÍA sýndu Íslands- og bikarmeistarar Víkings tennurnar gegn Keflavík í Bestu deild karla í gær.

Umfjöllun: Víkingur - Keflavík 4-1 | Öruggur sigur meistaranna
Víkingar frá Reykjavík unnu góðan 4-1 sigur gegn Keflavík í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Leiknum, sem átti upphaflega að fara fram í 10. umferð, var flýtt vegna leikja Víkings í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Arnar Gunnlaugsson: Það var smá reiði í mönnum
Víkingur R. vann Keflavík 4-1 í Bestu deild karla í kvöld. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var ánægður með sigur sinna manna í kvöld og segir leikinn gott svar eftir tapleikinn gegn ÍA í 2. umferð.

Meistaradeildin 2022-23 hefst í Víkinni
Íslands- og bikarmeistarar Víkings halda umspil um eitt laust sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í júní.

Arnar biðst afsökunar eftir Vikuna með Gísla Marteini
„Þó ég sé vel vanur að koma fram í sjónvarpi þá er ég ekki vanur umræðu á opinberum vettvangi um málefni er varðar kynþáttamisrétti og svör mín gætu hafa komið þannig út eins og ég væri ekki alveg í takt við raunveruleikann.“

Pablo á leið í myndatöku: „Fékk eitthvað smá í hnéð“
Pablo Punyed var hvergi sjáanlegur þegar Íslandsmeistarar Víkings steinlágu á Akranesi í annarri umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Hann meiddist lítillega á æfingu og þarf að fara í myndatöku vegna þessa.

Umfjöllun og viðtöl: ÍA – Víkingur 3-0 | Skagamenn rúlluðu yfir meistarana
Skagamenn fengu Víkinga í heimsókn á Norðurálsvöllinn í 2. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn fór rólega af stað en opnaðist fljótlega og eftir mikla baráttu fóru Skagamenn, sem voru hvattir vel áfram úr stúkunni, með sigur af hólmi og lokatölur 3-0.

Sjáðu mörkin: Íslandsmeistararnir sneru taflinu við
Íslands- og bikarmeistarar Víkings lögðu FH í fyrsta leik Bestu deildar karla í fótbolta. Gestirnir úr Hafnafirði komust yfir eftir aðeins þrjátíu sekúndna leik en Víkingar svöruðu með tveimur mörkum og hófu mótið því á sigri.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - FH 2-1 | Íslandsmeistararnir hefja titilvörnina á sigri
Besta deild karla í knattspyrnu hófst í dag með opnunarleik milli Íslands- og bikarmeistara Víkinga og FH-inga úr Hafnarfirði en liðin mættust á heimavelli Víkinga í Fossvogi. Leikurinn fór fjörlega af stað og átti eftir að vera frábær skemmtun allt til lokaflautu. Víkingar fóru með sigur af hólmi, 2-1, og halda þar með sigurgöngu sinni frá síðasta tímabili áfram.

Arnar: Menn vilja gera svo vel en að fá þetta mark snemma leiks var mikið högg
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var sáttur með endurkomu sinna manna í dag en Víkingur kom til baka og vann FH 2-1 eftir að hafa lent undir eftir aðeins 30 sekúndur í leiknum.

Besta-spáin 2022: Áfram í draumalandinu
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sport spáir Víkingum 1. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Íslandsmeistarar ekki tapað opnunarleik undanfarin fjögur ár
Besta deildin í fótbolta hefst í kvöld þegar ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings fá FH í heimsókn í Víkina.

Örlítill munur en Víkingum spáð titlinum
Miðað við árlega spá fyrirliða, þjálfara og formanna félaganna tólf í Bestu deild karla í fótbolta er afar spennandi sumar í vændum.

Sjáðu ástæðu þess að Pablo byrjar tímabilið í banni
Íslandsmeistarar Víkings verða án Pablo Punyed þegar Besta-deildin í knattspyrnu fer af stað eftir slétta viku. Leikmaðurinn nældi sér í rautt spjald þegar Víkingar tóku á móti Breiðablik í Meistarakeppni KSÍ í gær.

„Mjög eðlileg krafa að við séum allavega að gera atlögu að því að verja okkar titla“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslandsmeistara Víkings, ræddi við Ríkharð Óskar Guðnason á Stöð 2 í dag um komandi átök í Bestu-deild karla í fótbolta. Mótið hefst eftir slétta viku og Arnar segir eðlilegt að gera þá kröfu að Víkingar geri atlögu að því að verja titilinn.

Arnar Gunnlaugs: Engin almennileg færi sem Blikar fengu eftir að við urðum færri
Víkingar eru Meistarar Meistaranna eftir 1-0 sigur á Breiðablik í Víkinni í kvöld. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, var ánægður með sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur 1-0 Breiðablik | Víkingar eru meistarar meistaranna
Víkingar frá Reykjavík fengu Breiðablik í heimsókn í Fossvoginn í kvöld þegar leikið var í Meistarakeppni KSÍ. Víkingar eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar svo Breiðablik spilaði leikinn gegn þeim sem liðið úr 2.sætinu í Pepsi Max deildinni í fyrra. Víkingur vann 1-0 sigur og eru því meistarar meistaranna.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Víkingur 42-30 | Stjarnan fer með sigur í farteskinu í rimmu við ÍBV
Stjarnan fór með sannfærandi sigur af hólmi þegar liðið fékk Víking í heimsókn í TM-höllina í lokaumferð Olísdeildar karla í handbolta í kvöld.

„Voða sáttur með þig núna?“
Það eru ekki nema tíu dagar þar til að boltinn byrjar að rúlla í Bestu deild karla í fótbolta og áður en að því kemur mætast bestu lið síðustu leiktíðar, Víkingur R. og Breiðablik, í Meistarakeppni KSÍ á sunnudag.