
Besta deild karla

Lof og last: Árni Vill kominn heim, svarthvítur Chopart, óbilandi trú Skagamanna og andleysi í Breiðholti
Tuttugusta umferð Pepsi Max deildarinnar í fótbolta lauk í gærkvöld með 4-0 sigri FH á Stjörnunni. Þegar tvær umferðir eru eftir er deildin æsispennandi bæði á toppi sem og botni. Hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.

Þorvaldur Örlygsson: Fyrsta mark FH átti ekki að standa
Þorvaldur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar var afar ósáttur eftir fjögurra marka niðurlægingu á heimavelli. Hann var ekki sáttur með dómgæsluna í leiknum.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - FH 0-4 | Tvö rauð spjöld í stórsigri FH
FH vann glæstan sigur á Stjörnunni. Góður fyrri hálfleikur lagði grunnin að 0-4 stórsigri. Aðeins tuttugu leikmenn enduðu inn á vellinum. Þeir Eggert Aron Guðmundsson og Gunnar Nielsen fengu báðir beint rautt spjald.

Jason Daði á sprettinum í meira en 1,6 kílómetra í sigrinum á Val
Jason Daði Svanþórsson átti mjög góðan leik með Breiðabliki í 3-0 sigri á Val í Pepsi Max deild karla í fótbolta um helgina og það kemur líka fram í hlaupatölunum úr leiknum.

Sjáðu mörkin sem skutu Blikum á toppinn, héldu vonum ÍA á lífi og öll hin
Fimm leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í fótbolta á laugardag. Breiðablik vann 3-0 sigur á Val og tyllti sér á topp töflunnar þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni. Víkingar fóru tímabundið á toppinn og ÍA heldur í vonina. Öll mörkin má sjá hér að neðan.

Stefnan er að fara út
Þór/KA og Keflavík gerðu markalaust jafntefli á Salt-Pay vellinum á Akureyri í dag. Lokaumferðin var kláruð í dag og höfðu norðankonur ekki upp á mikið að spila en gátu þó með hagstæðum úrslitum farið upp um eitt til tvö sæti. Keflavík var nánast sloppið við fall og tryggði það endanlega með stigi í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Valur 3-0 | Breiðablik færist nær Íslandsmeistaratitlinum
Breiðablik rúllaði yfir Val 3-0. Þetta var tólfti leikurinn sem Breiðablik vinnur í röð þegar liðið spilar í Kópavogi. Það var markalaust í hálfleik. Breiðablik gengu hins vegar á lagið í þeim síðari og gerðu þrjú mörk. Niðurstaðan 3-0 sigur Blika.

Árni Vilhjálmsson: Það er mýta að Breiðablik höndlar ekki baráttu
Breiðablik færðist nær Íslandsmeistaratitlinum með 3-0 sigri á Val í kvöld. Árni Vilhjálmsson, skoraði eitt mark í leiknum og var afar sáttur með sigurinn.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - HK 3-0 | Víkingur tekur toppsætið í bili
Víkingur R. eru komnir á topp deildarinnar í bili, eftir 3-0 sigur á HK í Víkinni í dag. Fyrir leikinn var Víkingur í 2. sæti, tveimur stigum á eftir Breiðablik. Nú þurfa þeir að stóla á úrslit úr leik Breiðabliks gegn Val til þess að halda fyrsta sætinu.

Arnar: ,,Ég bíð spenntur að sjá hvort Valur haldi þessum fullkomna degi áfram“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings R., var ánægður með frammistöðu sinna manna eftir 3-0 sigur á HK í Pepsi Max deild karla í dag.

Óskar Hrafn: Hef ekki verið nálægt titli
Það er alger stórleikur sem fer fram á Kópavogsvelli í kvöld þegar heimamenn í Breiðablik fá Val í heimsókn. Blikar hafa verið á mikilli siglingu en Valur hefur hikstað. Guðjón Guðmundsson fréttamaður tók hús á Óskari Hrafni, þjálfara Breiðabliks, fyrir leikinn.

Umfjöllun og viðtöl: KA 2-0 Fylkir | KA í bullandi Evrópubaráttu
KA lagði Fylki að velli á Greifavellinum nú í dag. Lokatölur 2-0 en fyrra mark leiksins kom ekki fyrr en á 88. mínútu.

Umfjöllun og viðtöl: Skagamenn enn á lífi í deildinni eftir sigur á Leikni
Skagamenn fengu Leiknir R. í heimsókn á Akranes í dag í botnbaráttuslag þar sem ÍA þurfti nauðsynlega á þremur stigum að halda til þess að auka möguleika sína á því að bjarga sér frá falli. Leiknir með 22 stig fyrir leikinn og ansi mikið þarf að gerast svo þeir fari niður í Lengjudeildina að ári.

Umfjöllun og viðtöl: KR upp í þriðja sæti með sigri á Keflavík
KR komst upp í þriðja sæti Pepsi Max deildar karla í dag eftir 0-2 sigur á Keflavík og er því aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Breiðabliks sem spilar við Val í kvöld.

Tekst óstöðvandi Blikum að hefna fyrir tapið á Hlíðarenda eða minna Íslandsmeistar Vals á sig?
Breiðablik og Valur mætast í leik leikjanna á Kópavogsvelli í kvöld. Fyrir leik eru Blikar með 41 stig á toppi Pepsi Max deildar karla á meðan Valur er í 3. sæti með 36 stig.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Þór/KA 1-2| Fylkiskonur fallnar úr Pepsi Max deildinni
Fylkiskonur eru fallnar úr Pepsi Max deild kvenna eftir 2-1 tap á móti Þór/KA. Fylkiskonur hefðu þurft á sigri að halda og stóla á úrslit úr hinum leikjum dagsins til að halda sér í baráttunni. Það gekk hinsvegar ekki eftir og munu þær því spila í Lengjudeildinni að ári.

Rúnar Páll um leikina þrjá sem eftir eru hjá Fylki: Það eru úrslitaleikir framundan
Rúnar Páll Sigmundsson var á dögunum ráðinn þjálfari karlaliðs Fylkis í knattspyrnu, en hann fær það verkefni að reyna að bjarga liðinu frá falli. Liðið hefur 16 stig þegar þrjár umferðir eru eftir en Fylkir á eftir að mæta KA, ÍA og Val.

Innilokaður í tíu daga en hélt lífi í vonum KR: „Ekki planið að ég spilaði“
Eftir að hafa verið lokaður inni í eigin húsnæði í tíu daga á meðan hann jafnaði sig af kórónuveirusmiti fékk Kristinn Jónsson óvænt að koma inn á í leik KR gegn Leikni í fyrradag. Hann var ekki ryðgaðri en svo að hann skoraði bæði mörk KR í afar dýrmætum 2-1 sigri í Pepsi Max-deildinni í fótbolta.

Sárt að yfirgefa Seltjarnarnes en spennandi tímar fram undan
Pétur Theódór Árnason, framherji Gróttu og markahæsti leikmaður Lengjudeildar karla í fótbolta, er spenntur fyrir fyrirhuguðum vistaskiptum til Breiðabliks. Erfitt verði að yfirgefa heimahagana á Seltjarnarnesi en gott verði að endurnýja kynni við gamlan þjálfara hans.

Fylkir búinn að hafa samband við Rúnar Pál
Fylkir hefur sett sig í samband við Rúnar Pál Sigmundsson í þeirri von að hann hafi áhuga á að taka við karlaliði félagsins í fótbolta. Atla Sveini Þórarinssyni og Ólafi Inga Stígssyni var sagt upp störfum í dag.

Atli Sveinn og Ólafur látnir fara í Árbænum
Fylkir hefur sagt upp þeim Atla Sveini Þórarinssyni og Ólafi Inga Stígssyni úr stöðu þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu. Fylkismenn féllu niður fallsæti í Pepsi Max-deildinni í gær.

Var tilbúinn að fórna næsta leik til að reyna bjarga þessum
Breiðablik, Víkingur og Valur eru á toppi Pepsi Max deildar karla þegar þrjár umferðir eru eftir. Mótið hefur ekki verið jafn spennandi í háa herrans tíð.

Lof og last: Sóknarleikur Blika, markvörslur Ingvars, Kiddi Jóns, Marley Blair og reynsluboltar Fylkis
Enn einni umferðinni Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna tvö daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Taka skal fram að þetta er eingöngu skoðun blaðamanns og er aðallega gert til skemmtunar.

Stífar aukaæfingar þar sem Gummi Ben sýndi snilli sína skiluðu Höskuldi einu af mörkum sumarsins
Breiðablik gjörsamlega kaffærði Fylki í leik liðanna í Pepsi Max deild karla í gær. Lokatölur 7-0 þar sem Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Blika, skoraði einkar glæsilegt mark. Það ásamt öllum sóknarleik liðsins var til umræðu í Stúkunni að leik loknum.

Pétur Theodór til liðs við Breiðablik
Breiðablik, topplið Pepsi Max deildar karla, hefur tilkynnt að Pétur Theódór Árnason, framherji Gróttu í Lengjudeildinni, muni ganga til liðs við félagið að tímabilinu loknu.

Sjáðu sjö mörk Blika, glæsimark Björns Daníel, ótrúlega innkomu Kristins og markið sem skaut HK upp úr fallsæti
Alls fóru fimm leikir fram í Pepsi Max deild karla í fótbolta í gær og var nóg um að vera. Hér að neðan má sjá öll mörkin sem litu dagsins ljós ásamt rauða spjaldinu sem fór á loft inn í Kór.

„Ég þakka Gumma Ben fyrir þetta“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, átti frábæran leik í 0-7 sigrinum á Fylki í Árbænum í kvöld. Höskuldur skoraði tvö mörk en seinna mark Höskulds var afar glæsilegt.

Brynjar Björn: Það skiptir bara máli hvar þú ert í lok september
Brynjari Birni, þjálfara HK, var mjög létt þegar lokaflautið gall og 1-0 sigur gegn Keflavík var orðin staðreynd.

Umfjölun og viðtöl: Fylkir – Breiðablik 0-7 | Blikar rúlluðu yfir Fylkismenn í Lautinni
Breiðablik skellti sér aftur á topp Pepsi Max deildarinnar með 0-7 stórsigri í Árbænum í kvöld.

Umfjöllun: HK – Keflavík 1-0 | HK-ingar skutu sér úr fallsæti
HK-ingar unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Keflavík í Pepsi Max deild karla í kvöld.