Íslenski handboltinn
98 99 100 101 102 103 104 105 106 … 123 ›
Valur niðurlægði Tblisi Handknattleikslið Vals vann ótrúlegan 51-15 sigur á georgísku meisturunum í HC Tblisi í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik í Laugardalshöllinni nú áðan. Valur hafði forystu 27-4 í hálfleik og það var Fannar Friðgeirsson sem var markahæstur í liði Vals með 12 mörk. Sport 14.10.2005 06:41
Seinni leikur Hauka í dag Íslandsmeistarar Hauka í handbolta áttu ekki í neinum vandræðum með að leggja Brechem frá Lúxemborg að velli í fyrri leik liðanna um sæti í meistaradeild. Haukarnir unnu 34-25 í Lúxemborg en liðin eigast við á sama stað í dag. Sport 14.10.2005 06:41
Valsmenn bjóða frítt í Höllina Valur tekur á móti H/C Tbilisi í dag og á morgun í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða í handbolta og fara báðir leikirnir fram í Laugardalshöll. Leikurinn í dag hefst klukkan 17 og á morgun er leikið klukkan 14.10. Ókeypis er á leikina og því um að gera fyrir handboltaunnendur að fjölmenna. Sport 14.10.2005 06:41
Kiel sigraði Hamborg Einn leikur var á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Kiel vann Hamborg á útivelli, 23-20, en Hamborg hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni. Sport 14.10.2005 06:41
Góð byrjun Hauka í Evrópukeppninni Haukastúlkur spiluðu í gærkvöld sinn fyrsta leik í Evrópukeppni þegar þær mættu ítalska liðinu Pelplast og ekki er hægt að segja annað en Haukaliðið hafi byrjað með glæsibrag, því þær unnu stórsigur 38-19 og eru því í mjög góðri stöðu fyrir síðari leik liðanna. Sport 14.10.2005 06:40
Stjarnan sigraði á Ragnarsmóti Stjarnan sigraði á Ragnarsmótinu í handknattleik sem fram fór á Selfossi um helgina þegar liðið lagði Fylki í úrslitaleik 33-22. Sport 14.10.2005 06:40
Göppingen lagði Hamborg Tveir leikir voru í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Göppingen vann Hamborg 33-26. Jaliecky Garcia gat ekki leikið með Göppingen vegna meiðsla. Nýliðar Melsungen lögðu Fullingen á heimavelli 23-20. Sport 14.10.2005 06:40
Haukastúlkur mæta Salerno Kvennalið Hauka leikur í kvöld gegn Salerno frá Ítalíu í EFH-bikarnum í handknattleik, en leikur liðanna hefst klukkan átta að Ásvöllum. Þetta er í fyrsta skipti sem kvennalið Hauka tekur þátt í Evrópukeppni en aðgangur að leiknum í kvöld er ókeypis. Sport 14.10.2005 06:40
Öruggur sigur Lemgo Þýska úrvalsdeildin í handknattleik hófst í gær þegar Wilhelmshavener tók á móti Lemgo. Lemgo hafði yfirburði í leiknum og sigraði 34-25. Gylfi Gylfason skoraði eitt mark fyrir Wilhelmshavener og Ásgeir Örn Hallgrímsson sem lék í gær sinn fyrsta leik í þýsku úrvalsdeildinni skoraði eitt mark fyrir Lemgo. Sport 13.10.2005 19:46
Fylkir og Stjarnan í úrslit Það verða Fylkir og Stjarnan sem leika til úrslita á Ragnarsmótinu í handknattleik sem fram fer á Selfossi. Stjarnan sigraði ÍBV í gær 29-23 og Selfoss og Fylkir gerðu jafntefli, 26-26. Fylkir vann sigur í B-riðli en Stjarnan varð í efsta sæti A-riðils. Sport 13.10.2005 19:46
Valur sigraði á Reykjavíkurmóti Valur sigraði í gær á Opna Reykjavíkurmótinu í handknattleik þegar liðið lagði Fram í úrslitaleik 32-31. Í kvennflokki sigraði Valur Stjörnuna í úrslitum 28-23. Sport 14.10.2005 06:39
Dregið í undankeppni EM kvenna Ísland leikur í riðli með Tyrklandi, Sviss, Búlgaríu, Ítalíu og Belgíu í undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik sem fram fer í nóvember. Fjögur efstu liðin í riðlinum komast áfram í úrslitaumferðina sem fram fer næsta vor. Sport 14.10.2005 06:39
Danir heimsmeistarar ungmenna Danir tryggðu sér í gær heimsmeistaratitilinn í handknattleik karla 21 árs og yngri, en Danir sigruðu Serba og Svartfellinga í úrslitum 40-25. Ungverjar urðu í þriðja sæti, en þeir lögðu Þjóðverja 28-27 í leik um bronsið. Sport 14.10.2005 06:39
Ísland í 9. sæti Íslenska landsliðið í handknattleik karla 21 árs og yngri tryggði sér 9. sætið á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í morgun með því að bera sigurorð af Ísraelsmönnum, 35-32. Í hálfleik var staðan 18-17 fyrir Íslendinga. Sport 13.10.2005 19:46
Ísland hafnaði í níunda sæti Ísland lagði Ísrael að velli í leiknum um níunda sætið á heimsmeistaramóti piltalandsliða í handknattleik í Ungverjalandi í gær, 35-32. Sport 13.10.2005 19:46
Skjern úr leik í bikarkeppni Íslendingaliðið Skjern í danska handboltanum er úr leik í bikarkeppninni en Álaborg vann Skjern 37-27 í gærkvöld. Sport 13.10.2005 19:45
Ísland lagði Suður Kóreu U21 árs karlalandslið Íslands í hanbolta vann S. Kóreu í dag með eins marks mun, 34-33 á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi. Staðan í hálfleik var 15-17 fyrir Kóreuliðið. Ásgeir Örn Hallgrímsson var markahæstur Íslands með 13 mörk, Ernir Hrafn Arnarson með 6 og Árni Sigryggsson fjögur. Ísland mun því leika um 9. sætið á mótinu á laugardag. Sport 13.10.2005 19:45
Ísland enn án stiga í milliriðli Íslenska ungmennlandsliðið í handknattleik tapaði fyrir Dönum með átta marka mun, 33-25, í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í gær. Staðan í hálfleik var 16-12 fyrir Dani. Arnór Atlason var markahæstur í íslenska liðinu með sex mörk. Íslendingar hafa ekki fengið stig í milliriðlinum og mæta Suður-Kóreumönnum á fimmtudag, en íslenska liðið leikur um 9. til 11. sætið á mótinu. Sport 13.10.2005 19:44
Steinlágu gegn Dönum Íslenska landsliðið í handknattleik karla 21 árs og yngri töpuðu fyrir Dönum með 33 mörkum gegn 25 í millrriðli á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í dag. Í hálfleik var staðan 16-12 fyrir Dani, sem hafa tryggt sér sæti í undanúrslitum. Þetta var fjórði ósigur Íslendinga í röð á mótinu. Sport 13.10.2005 19:44
Vonbrigði í Ungverjalandi Eftir tvo sigra á Chile og Kongó í upphafi heimsmeistaramóts U-21 landsliða í Ungverjalandi hafa allir þrír leikir Íslands gegn stærri þjóðum tapast, nú síðast gegn Egyptum í gær, 30-25. Sport 13.10.2005 19:44
Skjern vann sigur á Barcelona Danska handknattleiksliðið Skjern, sem Vignir Svavarsson, Vilhjálmur Halldórsson og Jón Jóhannesson leika með og Aron Kristjánsson þjálfar, bar sigurorð af spænsku Evrópumeisturunum Barcelona í æfingleik á sunnudagskvöldinu með einu marki, 29 - 28. Vignir skoraði fimm mörk, Vilhjálmur tvö og Jón eitt. Sport 13.10.2005 19:44
Tap gegn Egyptum Íslenska landsliðið í handknattleik karla 21 árs og yngri tapaði fyrir Egyptum með 30 mörkum gegn 25 í fyrsta leiknum í millriðli á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í dag. Í hálfleik var staðan 14-12 fyrir Egypta. Árni Sigtryggsson skoraði 8 mörk í leiknum, Ásgeir Örn Hallgrímsson 7 og Ernir Hrafn Arnarson 4. Sport 13.10.2005 19:44
Stigalausir inn í milliriðil Íslenska piltalandsliðið í handbolta tapaði í gær sínum öðrum leik í röð á Heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi þegar það lá 27-30 fyrir Þýskalandi í sínum fjórða og síðasta leik í riðlakeppninni. Sport 13.10.2005 19:43
Ísland tapaði fyrir Þjóðverjum Íslenska landsliðið í handbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri tapaði í dag fyrir liði Þýskalands, 30-27. Staðan í hálfleik var 15-10, Þjóðverjum í vil. Úrslitin þýða að Ísland kemst áfram í milliriðlakeppnina en tekur engin stig með sér, þar sem liðið tapaði fyrir Spáni í gær. Sport 13.10.2005 19:43
Leikið gegn Þjóðverjum í dag Íslendingar mæta Þjóðverjum í dag á heimsmeistaramótinu í handknattleik leikmanna 21 árs og yngri. Íslenska liðið tapaði með eins marks mun fyrir Spánverjum í gær. Eyjamaðurinn Kári Kristjánsson, sem leikur með Haukum á næstu leiktíð, var markahæstur í íslenska liðinu, skoraði 11 mörk og var valinn maður leiksins. Sport 13.10.2005 19:43
Mæta Spánverjum í dag Íslendingar mæta í dag Spánverjum á heimsmeistaramóti leikmanna 21 árs og yngri í handbolta en keppt er í Ungverjalandi. Íslendingar og Þjóðverjar hafa forystu í b-riðli, en Íslendingar hafa unnið Chilemenn og Kongomenn með miklum yfirburðum. Sport 13.10.2005 19:43
Tap fyrir Spáni í handboltanum U21 landslið karla í handbolta beið í dag lægri hlut fyrir Spánverjum á heimsmeistarmótinu í Ungverjalandi. Spánn vann 32-31 en staðan í hálfleik var 17-12 fyrir Spán. Íslendingar eru í þriðja sæti síns riðils með fjögur stig en þeir spænsku í öðru sæti. Þýskaland er í fyrsta sæti en næsti leikur Íslands er á morgun gegn Þjóðverjum. Sport 13.10.2005 19:43
Loutoufi og Baldvin semja við Val Valsmenn skrifuðu í gær undir samning við franska handknattleiksmanninn Mohamad Loutoufi og þá var gengið frá samningi við Baldvin Þorsteinsson, en Baldvin hafði greint frá því að hann hygðist leika með fyrrum félögum sínum í KA í vetur og yfirgefa Hlíðarenda. Samingaviðræður Baldvins og Vals höfðu siglt í strand, en sættir náðust um síðustu helgi. Sport 13.10.2005 19:42
Ísland burstaði Chile Íslenska landsliðið í handbolta karla 21 árs og yngri burstaði Chile með 20 marka mun 43-23 á heimsmeistaramótinu í Ungverjalandi í kvöld. Í hálfleik var staðan 24-10. Árni Sigtryggsson var markahæstur okkar manna og gerði 12 mörk.Arnór Atlason og Ragnar Njálsson skoruðu 5 mörk hvor og Ernir Hrafn Arnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson 4 hvor. Sport 13.10.2005 19:42
Rúllað yfir Kongó Íslendingar rúlluðu yfir Kongó 41-15 í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramóti ungmenna (U21) í handknattleik í Ungverjalandi. Í hálfleik var staðan 20-7. Ernir Hrafn Arnarsson var markahæstur og skoraði 8 mörk. Árni Sigtryggsson gerði 7, Ásgeir Örn Hallgrímsson 6 og Andri Stefan og Arnór Atlason 5 hvor. Sport 13.10.2005 19:42