Íslenski handboltinn

Fréttamynd

Tap fyrir Rússum

Íslenska unglingalandsliðið í handknattleik, skipað stúlkum 17 ára og yngri, tapaði fyrir Rússum 22-19 í forkeppni Evrópumótsins í Digranesi í gær. Íslendingar mæta Litháum í dag sem burstuðu Búlgaríu 26-12.

Sport
Fréttamynd

Stórsigur hjá Magdeburg

Arnór Atlason skoraði fjögur mörk og Sigfús Sigurðsson tvö þegar Magdeburg burstaði Grosswallstadt 30-18 í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöldi. Einar Hólmgeirsson skoraði tvö mörk fyrir Grosswallstadt. Einar Örn Jónsson skoraði þrjú mörk þegar Wallau Massenheim tapaði á heimavelli fyrir Gummersbach 45-33.

Sport
Fréttamynd

Róbert tilnefndur

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Róbert Gunnarsson og leikmaður Århus GF er einn fimm tilnefndra leikmanna fyrir titilinn "handboltamaður ársins" í Danmörku. Róbert sprakk út með íslenska landsliðinu á síðasta ári og hefur farið hamförum með liði sínu í Danmörku í vetur og varð markahæstur í efstu deild.

Sport
Fréttamynd

Tite lofaður ríkisborgararéttur

Tite Kalandadze, fyrrverandi leikmanni ÍBV í handbolta var lofaður íslenskur ríkisborgararéttur af fulltrúum Stjörnunnar sem á miðvikudag náðu samkomulagi við leikmanninn um að leika með Garðabæjarliðinu næstu 2 árin. Svo segir Hlynur Sigmarsson, formaður handknattleiksdeildar ÍBV í yfirlýsingu sem birt var á heimasíðu félagsins.

Sport
Fréttamynd

Þetta er bara byrjunin

Stjarnan er farin að skína á ný. Eftir magra tíma í handboltanum hafa forkólfar handknattleiksdeildarinnar spýtt í lófana og nú skal reisa Stjörnuna upp í hæstu hæðir. Sá metnaður var undirstrikaður í gær þegar formaður handknattleiksdeildarinnar, Þorsteinn Rafn Johnsen, og nýráðinn þjálfari Stjörnunnar, Sigurður Bjarnason, fóru til Vestmannaeyja og snéru heim með undirritaðan tveggja ára samning við landsliðsmarkvörðinn Roland Val Eradze og stórskyttuna Tite Kalandadze sem sló eftirminnilega í gegn með ÍBV í vetur

Sport
Fréttamynd

Viggó velur Færeyjarfara

Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari karla í handbolta hefur valið hópinn sem mætir Færeyjum í tveimur æfingaleikjum um þar næstu helgi en leikið verður ytra. 20 ára landslið kvenna verður einnig með í för og leikur tvo leiki gegn færeysku jafnöldrum sínum. A-hópur karla er skipaður eftirtöldum leikmönnum: 

Sport
Fréttamynd

Arnar fær ekki nýjan samning

FH-ingar ætla ekki að framlengja samning við handboltamanninn Arnar Pétursson. Örn Magnússon, formaður handknattleiksdeildar FH, staðfesti þetta í samtali við íþróttadeild fyrir hádegi.

Sport
Fréttamynd

Magdeburg rassskellti Nordhorn

Magdeburg sigraði Nordhorn með ellefu marka mun í þýska handboltanum í gærkvöldi, 42-31. Arnór Atlason skoraði tvö marka Magdeburgar sem er í þriðja sæti deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Ólafur samdi við Winterthur

Ólafur Haukur Gíslason, markvörður ÍR, í handknattleik hefur ákveðið að leika með Winterthur í Sviss næstu tvö árin. Forráðamenn Winterthur hafa einnig borið víurnar í Ingimund Ingimundarson, félaga Ólafs hjá ÍR, og boðið honum tveggja ára samning en Ingimundur hefur enn ekki tekið ákvörðun um hvað hann gerir.

Sport
Fréttamynd

Aðalsteinn tekur við Stjörnunni

Aðalsteinn Eyjólfsson er á leið til Íslands á ný eftir ársdvöl í Þýskalandi með TuS Weibern. Hann hefur komist að samkomulagi við Stjörnuna um að stýra kvennaliði félagsins næstu tvö árin.

Sport
Fréttamynd

Bregenz efst í Austurríki

Dagur Sigurðsson, þjálfari og leikmaður Bregenz í Austurríki, skoraði fjögur mörk þegar liðið vann nauman sigur á HC Hard, 32-31, í úrslitakeppni austurrísku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gærkvöldi. Með sigrinum tryggði Bregenz sér efsta sætið í deildinni. Í undanúrslitum um meistaratitilinn mætir Bregenz Linz.

Sport
Fréttamynd

Sigur hjá Wilhelmshavener

Í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik vann Wilhelmshavener Hamborg 25-21 í gær. Gylfi Gylfason skoraði 2 mörk fyrir Wilhelmshavener en markahæstur var Robertas Pauzoulis, fyrrverandi leikmaður Hauka, sem skoraði 9 mörk.

Sport
Fréttamynd

Tvær handboltakonur til Noregs

Tveir leikmenn Gróttu/KR í handboltanum, Eva Margrét Kristinsdóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, leika með norska liðinu Levanger á næstu leiktíð. Levanger vann sér sæti í norsku úrvalsdeildinni í vor.

Sport
Fréttamynd

Guðjón Valur Evrópumeistari

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir Essen sem urðu í dag Evrópumeistarar félagsliða í handbolta með sigri á Magdeburg sem Alfreð Gíslason þjálfar, 31-22, í síðari úrslitaleik liðanna. Sigurinn var dramatískur í meira lagi því Essen vann upp 8 marka tap úr fyrri leiknum, 30-22 og sigruðu því samanlagt með eins marks mun.

Sport
Fréttamynd

Barcelona Evrópumeistarar

Barcelona tryggði sér í dag naumlega Evrópumeistaratitilinn í handbolta með sigri á Ólafi Stefánssyni og félögum í Ciudad Real, 29-27, í seinni leik liðanna. Staðan í hálfleik var 17:15 fyrir Barcelona. Ciudad Real vann fyrri leikinn með eins marks mun, 28-27. Ólafur var markahæstur hjá Ciudad ásamt Dujshebaev, hvor skoraði 6 mörk.

Sport
Fréttamynd

Snorri og Einar atkvæðamiklir

Íslensku landsliðsmennirnir hjá Grosswallstadt, Snorri Steinn Guðjónsson og Einar Hólmgeirsson, voru að vanda atkvæðamiklir með liði sínu sem sigraði Pfullingen 29-24 í þýsku úrvalsdeildinni í gær.

Sport
Fréttamynd

Íslenskir Evrópumeistarar í dag?

Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real keppa í dag við Barcelona í úrslitum meistaradeildar Evrópu í handbolta. Leikurinn hefst klukkan 15 og verður hann sýndur beint á Sýn. Í úrslitum Evrópubikarkeppninnar eiga Íslendinagr líka sína fulltrúa.

Sport
Fréttamynd

Íslandsmeistarar þriðja árið í röð

Haukar urðu Íslandsmeistarar í karlaflokki í handknattleik í gærkvöldi eftir sigur á Eyjamönnum, 28-24, í þriðja leik liðanna um titilinn. Haukar unnu alla þrjá leikina og árangurinn er glæsilegur því líkt og kvennalið félagsins sem varð meistari í síðustu viku unnu Haukarnir alla sjö leikina í úrslitakeppninni.

Sport
Fréttamynd

Dagur með sjö mörk

Bregenz sigraði Krems, 29-23, í austurríska handboltanum í gærkvöldi. Dagur Sigurðsson, þjálfari og leikmaður Bregenz, var markahæstur allra á vellinum og skoraði sjö mörk, einu meira en félagi hans, Konrad Wilczynski, og Martin Sicherer, leikmaður Krems.

Sport
Fréttamynd

Verður Róbert danskur meistari?

Róbert Gunnarsson og félagar í Aarhus munu spila til úrslita um danska meistaratitilinn í handbolta. Það varð ljóst þegar Aarhus sigraði meistara síðasta árs, GOG, í gær, 38-35, og vann því einvígi liðanna 2-0. Róbert fór hamförum í leiknum og skoraði 11 mörk en Aarhus mætir hinu geysisterka liði Kolding í úrslitum. Það var glatt á hjalla í rútunni hjá leikmönnum Aarhus sem voru á leið heim þegar Fréttablaðið náði tali af Róberti.

Sport
Fréttamynd

Fengu tilboð frá Winterthur

Landsliðsmennirnir í handknattleik og ÍR-ingarnir Ólafur Haukur Gíslason og Ingimundur Ingimundarson hafa fengið tilboð frá svissneska félaginu Winterthur í Sviss um að leika með félaginu næstu tvö árin. Ólafur Haukur Gíslason sagði í samtali við íþróttadeild Sýnar í gær að fara þyrfti yfir tilboðin og það yrði gert um helgina, en þeir félagar eru væntanlegir heim frá Sviss í dag.

Sport
Fréttamynd

Með tilboð frá Sviss

ÍR-ingarnir Ingimundur Ingimundarson og Ólafur Haukur Gíslason koma heim frá Sviss í dag en þeir hafa verið við æfingar hjá Winterthur síðan í upphafi vikunnar. Báðum gekk þeim vel á æfingum með félaginu og voru þeir leystir út með samningstilboði í gær.

Sport
Fréttamynd

Ísland leikur við Færeyjar

Undirbúningur handboltalandsliðsins fyrir umspilsleikina gegn Hvít-Rússum um sæti á EM í Sviss á næsta ári fer að hefjast enda verður leikið við Rússana í næsta mánuði. Fyrsti liður í undirbúningnum eru tveir landsleikir við Færeyinga ytra 21. og 22. maí.

Sport
Fréttamynd

ÍBV komið upp að vegg

Haukar taka á móti ÍBV í þriðja leik úrslitanna um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. Með sigri í leiknum geta Haukar tryggt sér titilinn en staðan er 2-0 liðinu í vil.

Sport
Fréttamynd

Hreiðar til KA?

Svo getur farið að landsliðsmarkvörðurinn Hreiðar Levy Guðmundsson gangi í raðir KA-manna en Akureyrarliðið hefur sett sig í samband við hann. Reynir Stefánsson, nýráðinn þjálfari KA, staðfesti þetta við Fréttablaðið í gær

Sport
Fréttamynd

Svissnesk lið sýna Björgvin áhuga

Zürich og Stans frá Sviss hafa sýnt áhuga á að fá Björgvin Pál Gústafsson markvörð HK í handboltanum í sínar raðir fyrir næsta keppnistímabil, en Björgvin er einn efnilegasti markvörður landsins. <em>Morgunblaðið</em> greinir frá þessu í morgun. Einnig munu þýsk félög vera áhugasöm að sögn Björgvins.

Sport
Fréttamynd

Guðríður þjálfar kvennalið Fylkis

Guðríður Guðjónsdóttir hefur verið ráðin þjálfari kvennaliða Fylkis í handknattleik en samningurinn er til þriggja ára. Stefnt er að því að meistaraflokkur kvenna leiki í deildarkeppni á næstu tveimur árum.

Sport
Fréttamynd

KA ræður þjálfara

Handknattleiksdeild KA hefur ráðið Reyni Stefánsson sem þjálfara karlaliðs félagsins næstu tvö árin. Reynir var aðstoðarþjálfari meistaraflokks undanfarin tvö ár en þjálfaði þar á undan hjá Þór og Fram.

Sport
Fréttamynd

Reynir ráðinn þjálfari KA

Reynir Stefánsson sem hefur verið aðstoðarmaður Jóhannesar Bjarnasonar hefur verið ráðinn þjálfari KA til næstu tveggja ára.

Sport
Fréttamynd

Haukar komnir í 2-0

Haukar frá Hafnafirði sigruðu ÍBV í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í Vestmannaeyjum í kvöld í framlengdum leik, 39-35, eftir að leikar höfðu staðið jafnir eftir venjulegan leiktíma, 31-31. Haukar eru því komnir með tvo sigra í einvíginu og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn að Ásvöllum á fimmtudaginn.

Sport