Íslenski handboltinn

Fréttamynd

U18 hafnaði í fjórða sæti

U-18 ára landslið karla í handbolta tapaði í dag fyrir Svíum 42-35 í leik um 3. sætið á Evrópumótinu í Tékklandi. Strákarnir höfnuðu því í fjórða sætinu. Svíar höfðu tökin í leiknum allan tímann.

Handbolti
Fréttamynd

Tap fyrir Þýskalandi

U18 landsliðið í handbolta tapaði í dag fyrir Þýskalandi í undanúrslitaleik á Evrópumótinu sem stendur yfir í Tékklandi. Þjóðverjar unnu 33-28 eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik.

Handbolti
Fréttamynd

Strákarnir í undanúrslit á EM

Íslenska U-18 ára landsliðið í handbolta tryggði sér í dag sæti í undanúrslitunum á EM sem fram fer í Tékklandi þegar það burstaði Frakka 35-25. Íslenska liðið fer því með Dönum upp úr milliriðlinum en síðar í kvöld kemur í ljós hverjir mótherjar liðsins verða í undanúrslitunum.

Handbolti
Fréttamynd

Íslenska liðið hafnaði í 13. sæti

Íslenska U-20 stúlknalandsliðið í handbolta hafnaði í 13. sæti á HM í Makedóníu eftir 27-26 sigur á Japönum í dag. Þórey Rósa Stefánsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með 7 mörk og Rut Jónsdóttir kom næst með 6 mörk.

Handbolti
Fréttamynd

Búið að velja Ólympíuhópinn

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, hefur opinberað 15 manna leikmannahópinn sem fer fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikana í Peking.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland tapaði fyrir Frakklandi

Íslenska landsliðið lék í dag annan leik sinn á æfingamóti í Frakklandi. Leikið var gegn heimamönnum sem unnu 31-28 sigur. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk.

Handbolti
Fréttamynd

Tap fyrir Spánverjum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í kvöld fyrir Spánverjum 38-32 á æfingamóti sem fram fer í Frakklandi. Spænska liðið hafði yfir í hálfleik 17-14. Íslenska liðið mætir heimamönnum á morgun.

Handbolti
Fréttamynd

Góður sigur á Þjóðverjum

Íslenska 20 ára landslið kvenna vann í dag frækinn 24-23 sigur á Þjóðverjum á HM stúlknalandsliða sem fram fer í Makedóníu. Staðan í hálfleik var 13-11 fyrir þýska liðið. Íslenska liðið hefur nú unnið einn leik og gert tvö jafntefli í riðlinum og á aðeins eftir að spila við Rúmena.

Handbolti
Fréttamynd

Sigfús kominn í Val

Varnarjaxlinn Sigfús Sigurðsson er kominn aftur heim í Val eftir sex ára dvöl í atvinnumennskuni. Sigfús er uppalinn Valsari og á fimm Íslandsmeistaratitla að baki með meistaraflokki félagsins.

Handbolti
Fréttamynd

Eins marks tap fyrir Spánverjum

Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði í kvöld 35-34 fyrir Spánverjum í fyrri æfingaleik þjóðanna fyrir Ólympíuleikana. Staðan í hálfleik var jöfn 16-16 en leikið var í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland mætir Spánverjum í kvöld

Íslenska landsliðið í handbolta er nú að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir Ólympíuleikana í Peking. Í kvöld mætir liðið sterku liði Spánverja í fyrri æfingaleik liðanna í Vodafonehöllinni og hefst hann klukkan 19:30. Aðgangur er ókeypis.

Handbolti
Fréttamynd

Guðmundur velur æfingahópinn fyrir Peking

Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag 19 manna æfingahóp sinn fyrir Ólympíuleikana í Peking í næsta mánuði. Hópurinn leikur tvo æfingaleiki við Spánverja og tekur þátt í móti í Austurríki áður en það fer á Ólympíuleikana.

Handbolti
Fréttamynd

Vil ekki vera túristi í Peking

Landsliðsmaðurinn Einar Hólmgeirsson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í íslenska landsliðið fyrir Ólympíuleikana í Peking í næsta mánuði.

Handbolti
Fréttamynd

Rakel Dögg til Danmerkur

Landsliðsfyrirliðinn Rakel Dögg Bragadóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við danska félagið KIF Vejen. Hún hefur leikið með Stjörnunni frá því hún var sextán ára gömul en hún er í dag 22 ára gömul.

Handbolti
Fréttamynd

Arnór: Skandall af okkar hálfu

Arnór Atlason var þungur á brún og myrkur í máli eftir leik Íslands og Makedóníu í dag. „Skandall af okkar hálfu. Þetta var okkar eigið klúður. Við getum ekki kennt neinum öðrum um þetta.“

Handbolti
Fréttamynd

Sex marka sigur dugði ekki

Íslenska landsliðið vann Makedóníu 30-24 í Laugardalshöll í dag. Þrátt fyrir sex marka sigur komst Ísland ekki á HM þar sem Makedónar unnu fyrri leikinn á heimavelli sínum með átta marka mun.

Handbolti
Fréttamynd

Ísland steinlá í Skopje

Íslenska landsliðið í handbolta tapaði með átta marka mun fyrir Makedóníu 34-26 ytra í fyrri leik liðanna í undankeppni HM í kvöld. Íslenska liðið var langt frá sínu besta í kvöld.

Handbolti
Fréttamynd

Annað stórt tap gegn Rúmenum

Íslenska kvennalandsliðið tapaði í dag 33-23 fyrir Rúmenum í síðari leik liðanna í umspili um sæti á EM. Berglind Íris Hansdóttir markvörður var maður leiksins hjá íslenska liðnu en hún varði 25 skot.

Handbolti
Fréttamynd

Sverre kominn í hópinn

Varnartröllið Sverre Jakobsson hjá Gummersbach hefur bæst í íslenska landsliðshópinn. Liðið er að undirbúa sig fyrir fyrri leikinn gegn Makedóníu um sæti á HM en hann fer fram ytra á sunnudag.

Handbolti
Fréttamynd

Miðasala á Makedóníuleikinn hafin

Strákarnir okkar tryggðu sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum með sigri á Svíum í gær. Um miðjan mánuðinn ræðst hvort þeir komast í lokakeppni HM en liðið mætir Makedóníu í tveimur leikjum.

Handbolti
Fréttamynd

Svíar hyggjast kæra úrslitin

Sænskir fjölmiðlar segja að Svíar hyggist kæra úrslitin í leik Svía og Íslendinga í dag. Svíarnir vilja að leikurinn verði leikinn að nýju.

Handbolti
Fréttamynd

Stefnan að klára þetta með sæmd

„Við vissum að ef við ætluðum að eiga einhvern möguleika í þetta lið þá þyrftum við allar að eiga toppleik. Þannig var staðan ekki á okkur í dag," sagði Dagný Skúladóttir eftir tap kvennalandsliðsins gegn Rúmeníu í dag.

Handbolti
Fréttamynd

Fjórtán marka sigur Rúmeníu

Rúmenska kvennalandsliðið vann fjórtán marka sigur gegn því íslenska í Laugardalshöllinni í dag. Þetta var fyrri leikur þessara liða um laust sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins.

Handbolti
Fréttamynd

Jafnt hjá Pólverjum og Svíum

Pólverjar og Svíar gerðu í kvöld jafntefli 22-22 í æsilegum fyrsta leik liðanna í undankeppni Ól í Póllandi. Fyrr í dag vann íslenska liðið öruggan sigur á Argentínumönnum og er því í efsta sæti riðilsins eftir fyrsta daginn.

Handbolti