Ástin á götunni
277 278 279 280 281 282 283 284 285 … 334 ›
Markaregn í kvöld Þrír leikir fóru fram í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld og ekki vantaði mörkin frekar en fyrri daginn. Valur valtaði yfir FH á útivelli 15-0, KR sigraði Fylki 11-0 og Keflavík sigraði Þór/KA 6-3. Sport 26.6.2006 22:03
Keflvíkingar áfram Keflvíkingar mæta norska liðinu Lilleström í næstu umferð Intertoto keppninnar í knattspyrnu eftir að gera 0-0 jafntefli við norður-írska liðið Dungannon á útivelli í dag. Keflvíkingar unnu auðveldan 4-1 sigur í fyrri leiknum og eru því komnir áfram í keppninni. Sport 24.6.2006 16:36
FH mætir TVMK Tallin Í dag var dregið í forkeppnum Evrópumótanna í knattspyrnu. Íslandsmeistarar FH mæta TVMK frá Tallin frá Eistlandi í fyrstu umferð meistaradeildarinnar og mun sigurvegarinn úr þeirri viðureign svo mæta pólska liðinu Legia Varsjá. Leikirnir fara fram 12. og 19. júlí. Valsmenn og Skagamenn mæta liðum frá Danmörku í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða. Sport 23.6.2006 13:28
Margrét Lára skaut Keflvíkinga í kaf Einn leikur fór fram í Landsbankadeild kvenna í kvöld. Valsstúlkur burstuðu lið Keflavíkur 7-0 og þar af skoraði markamaskínan Margrét Lára Viðarsdóttir fimm mörk. Valur er því enn í toppsæti deildarinnar með fullt hús stiga eftir sex umferðir. Sport 22.6.2006 21:47
Grindvíkingar burstuðu KR Íslandsmeistarar FH bættu í forskot sitt á toppi Landsbankadeildarinnar í kvöld, þrátt fyrir að gera aðeins markalaust jafntefli við Víking á útivelli. Stærstu tíðindin í kvöld voru tvímannalaust 5-0 stórsigur Grindvíkinga á KR suður með sjó. Sport 22.6.2006 21:27
Átta mörk í fyrri hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í Landsbankadeild karla. Staðan í leik Blika og Fylkis í Kópavogi er jöfn 2-2, Grindvíkingar hafa yfir 2-0 gegn KR, ÍBV er yfir 2-0 gegn Skagamönnum í Eyjum og markalaust er hjá Víkingi og FH. Sport 22.6.2006 20:12
Áttunda umferðin að hefjast Áttundu umferð Landsbankadeildar karla lýkur nú í kvöld með fjórum leikjum sem hefjast allir klukkan 19:15 og fylgst verður með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi. Breiðablik tekur á móti Fylki, Grindavík fær KR í heimsókn, Skagamenn fara til Eyja og þá taka Víkingar á móti Íslandsmeisturum FH í Fossvoginum. Sport 22.6.2006 19:05
Steindautt jafntefli á Laugardalsvelli Valsmenn og Keflvíkingar skildu jafnir 0-0 í fyrsta leik 8. umferðarinnar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var spilaður við kjöraðstæður í blíðunni í Laugardalnum, en engin mörk litu dagsins ljós og liðin skiptu með sér stigunum. Áttundu umferðinni lýkur annað kvöld. Sport 21.6.2006 22:57
Valur - Keflavík að hefjast Einn leikur er á dagskrá í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Valsmenn taka á móti Keflvíkingum á Laugardalsvelli og er þetta fyrsti leikurinn í áttundu umferð deildarinnar, sem klárast svo annað kvöld. Valsmenn eru í 6. sæti deildarinnar með 10 stig og Keflvíkingar í því 7. með 7 stig. Sport 21.6.2006 19:05
Íslenska kvennalandsliðið sigraði Portúgal Íslenska kvennalandsliðið lék gegn Portúgal á Laugardalsvellinum í dag. Leikurinn endaði með 3-0 sigri íslenska liðsins. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fyrra markið á 40. mínútu. Það var svo Gréta Mjöll Samúelsdóttir sem bætti við glæsilegu marki beint úr hornspyrnu á 86. mínútu. Margrét Lára skoraði svo annað mark sitt í leiknum á 89. mínútu. Íslenska liðið lék mjög vel í leiknum. Sport 18.6.2006 17:38
Blikarnir hafa tapað flestum stigum Nýliðar Breiðabliks töpuðu niður forskoti fjórða leikinn í röð í Landsbankadeild karla á Akranesi í gær og eru það lið í deildinni sem hefur tapað langflestum stigum í fyrstu sjö umferðunum. Að tapa stigum telst það þegar lið tapa eða gera jafntefli í leikjum sem þau hafa haft forustu í. Grindvíkingar koma þeim næstir en þeir eru líka það lið sem hefur unnið sér inn flest stig eftir að hafa verið undir í leikjum sínum. Sport 16.6.2006 13:21
Willum Þór ósigraður í Grindavík Willum Þór Þórssyni hefur gengið vel með sín lið þegar hann hefur heimsótt Grindvíkinga þótt ekki hafi Valsmönnum tekist að koma með öll stigin heim úr leik sínum þar í gær. Þetta var sjötti leikur liðs undir stjórn Willums Þór á Grindavíkurvelli og hans lið hafa náð í 14 af 18 stigum í boði eða 78% stiganna. Markatalan er, 7-2, liðum Willums í vil. Sport 16.6.2006 13:13
FH lagði ÍBV Íslandsmeistarar FH lögðu ÍBV 3-1 á heimavelli sínum í Landsbankadeildinni í kvöld. KR lagði Víking 1-0, Skagamenn lögðu Blika 2-1 og Grindavík og Valur skildu jöfn 1-1 í Grindavík. Sport 15.6.2006 21:28
Pétur skoraði eftir 30 sekúndur í Kaplakrika Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem fara fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Staðan í leik FH og ÍBV í Kaplakrika er 1-1. Pétur Runólfsson kom gestunum yfir eftir aðeins 30 sekúndur, en Atli Viðar Björnsson jafnaði á 31. mínútu. Grindvíkingar hafa yfir 1-0 gegn Val í Grindavík þar sem Jóhann Þórhallsson skoraði mark heimamanna. Þá er markalaust hjá KR og Víkingi í vesturbænum, eins og hjá ÍA og Blikum á Skaganum. Sport 15.6.2006 20:28
Kekic hættur hjá Grindavík Hinn fjölhæfi leikmaður Sinisa Kekic, sem leikið hefur með Grindvíkingum í Landsbankadeildinni undanfarin ár, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Kekic lenti í deilum við þjálfarann Sigurð Jónsson á dögunum, en Sigurður staðfesti þessi tíðindi á fréttavef Víkurfrétta síðdegis í dag. Sport 15.6.2006 19:37
Viktor Bjarki bestur Víkingsmaðurinn Viktor Bjarki Arnarsson var í dag útnefndur besti leikmaður fyrstu sex umferðanna í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en það eru íþróttafréttamenn og fulltrúar Landsbankans sem standa að valinu. Þá var einnig valið úrvalslið umferðanna, besti þjálfarinn og besti dómarinn. Sport 13.6.2006 17:28
KR lá í Eyjum Tveir leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍBV vann góðan 2-0 sigur á KR með mörkum frá Atla Jóhannssyni og Jonah Long, en Keflvíkingar töpuðu sínum þriðja leik í röð þegar þeir lágu 2-1 fyrir Fylki í Árbænum. Sævar Þór Gíslason skoraði bæði mörk Fylkis, en Guðmundur Steinarsson minnkaði munin í lokin fyrir Keflvíkinga. Sport 12.6.2006 22:28
Markalaust í Árbænum Nú er kominn hálfleikur í viðureign Fylkis og Keflavíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en hvorugu liðinu hefur tekist að skora enn sem komið er. Þá er hinn margfrestaði leikur ÍBV og KR einnig hafinn í Vestmannaeyjum. Sport 12.6.2006 20:07
FH tapaði fyrstu stigum sínum á Kópavogsvelli Íslandsmeistarar FH töpuðu sínum fyrstu stigum í Landsbankadeildinni í sumar þegar liðið varð að gera sér að góðu 1-1 jafntefli gegn skipulögðum Blikum í Kópavogi. Daði Lárusson kom heimamönnum yfir með sjálfsmarki um miðbik leiksins, en Tryggvi Guðmundsson jafnaði fyrir gestina á 70. mínútu. Skömmu síðar var Guðmundi Sævarssyni vikið af leikvelli og meistararnir töpuðu þar með sínum fyrstu stigum á leiktíðinni. Sport 11.6.2006 21:04
Blikar yfir gegn FH Nú er kominn hálfleikur í viðureign Breiðabliks og FH í Landsbankadeildinni og hafa heimamenn nokkuð óvænt 1-0 forystu. Það var enginn annar en Daði Lárusson, markvörður FH, sem skoraði markið sem skilur liðin að, þegar hann sló knöttinn í eigið net eftir hornspyrnu Blika. Íslandsmeistararnir hafa verið meira með knöttinn í hálfleiknum, en Blikar leika skipulagðan varnarleik. Sport 11.6.2006 20:04
Heldur sigurganga Íslandsmeistara FH áfram? Íslandsmeistarar FH mæta nýliðum Breiðabliks á Kópavogsvelli klukkan 19.15 í sjöttu umferð Landsbankadeild karla og geta með sigri náð átta stiga forustu á toppi deildarinnar. Með sigri mun FH-liðið, fyrst allra liða í sögu tíu liða efstu deildar karla, ná annað árið í röð 18 stigum af 18 mögulegum í fyrstu sex umferðum Íslandsmósins. Blikar reyna hinsvegar að enda þriggja leikja taphrinu sína. Sport 11.6.2006 18:35
Aftur frestað í Eyjum Leik ÍBV og KR í Landsbankadeild karla sem fara átti fram á Hásteinsvelli í dag, hefur enn á ný verið frestað vegna ófærðar. Leikurinn hefur verið færður þangað til annað kvöld klukkan 19:15. Sport 11.6.2006 16:21
KR-ingar á eftir fyrsta deildarsigrinum í Eyjum síðan 1997 Leikur ÍBV og KR í 6. umferð Landsbankadeild karla í knattspyrnu, sem var frestað í gær vegna þess að ekki var hægt að fljúga til Vestmannaeyja, hefur verið settur á klukkan 19:15 á morgun á Hásteinsvellinum. KR-ingar hafa ekki unnið deildarleik í Eyjum síðan 1997 og Eyjamenn eru án sigurs í síðustu fjórum leikjum sínum í Landsbankadeildinni. Sport 11.6.2006 14:07
Fullt hús hjá Valsstúlkum Valsstúlkur eru enn með fullt hús stiga í efsta sæti Landsbankadeildarinnar eftir 3-2 útisigur á KR í dag í hörkuleik. Þetta var fyrsti leikurinn í 5. umferð deildarinnar, þar sem Valur trjónir á toppnum með 15 stig eftir 5 leiki og markatöluna 29-3. KR er í 4. sætinu með 6 stig. Sport 10.6.2006 19:53
Leik ÍBV og KR frestað vegna ófærðar Leik ÍBV og KR sem fara átti fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum nú klukkan 16 hefur verið frestað til klukkan 16:30 á morgun. Sport 10.6.2006 15:48
Loksins sigur hjá Skagamönnum Skagamenn unnu sinn fyrsta leik í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld þegar liðið lagði Keflavík 1-0 á útivelli með marki Ellerts J. Björnssonar. Víkingur og Grindavík skildu jöfn 0-0 í slökum leik í Fossvogi, en Valsmenn unnu sannfærandi sigur á Fylki 3-1 á Laugardalsvellinum. Garðar Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Val og Pálmi R. Pálmason eitt. Jens Sævarsson minnkaði muninn fyrir Fylki. Sport 8.6.2006 21:09
Skagamenn yfir í Keflavík Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Skagamenn hafa yfir 1-0 í Keflavík, þar sem Ellert Jón Björnsson skoraði mark ÍA á 22. mínútu. Valur hefur yfir 2-0 gegn Fylki á Laugardalsvelli með mörkum frá Garðari Gunnlaugssyni og Pálma Rafni Pálmasyni. Þá er markalaust í sjónvarpsleiknum á Sýn sem er viðureign Víkings og Grindavíkur. Sport 8.6.2006 20:05
Vill verða viðurkenndur Gaflari Daði Lárusson, markvörður FH, hefur verið valinn leikmaður fimmtu umferðar af Fréttablaðinu. Daði hefur verið traustur milli stangana það sem af er leiktíðar og var hetja liðsins gegn Keflavík á mánudag. Sport 7.6.2006 18:59
Ekki á þeim buxunum að gefast upp Þrír athyglisverðir leikir verða í Landsbankadeild karla í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Á Laugardalsvellinum tekur Valur á móti Fylki, Víkingur fær Grindavík í heimsókn og í Keflavík mætast heimamenn og ÍA. Sport 7.6.2006 18:59
KR lagði Blika í sveiflukenndum leik KR-ingar lögðu nýliða Breiðabliks 3-2 í lokaleik 5. umferðar Landsbankadeildar karla í kvöld. Rógvi Jacobsen kom heimamönnum yfir 1-0 og þannig var staðan í hálfleik. Kristján Óli Sigurðsson og Marel Baldvinsson (víti) komu Blikum yfir, en Sigmundur Kristjánsson og Grétar Hjartarson tryggðu KR sigurinn með mörkum á 78. og 81. mínútu. Sport 6.6.2006 21:02