Ástin á götunni
294 295 296 297 298 299 300 301 302 … 334 ›
Sænska landsliðið tilkynnt Í dag var tilkynnt hvaða leikmenn skipa sænska landsliðshópinn sem mætir Króötum og Íslendingum í undankeppni HM dagana 8. og 12. október næstkomandi. Sport 23.10.2005 15:00
Leikið gegn Pólverjum 7. október Pólverjar mæta Íslendingum í vináttulandsleik í knattspyrnu 7. október og Englendingum í undankeppni HM fimm dögum síðar. Landsliðsþjálfari Pólverja er búinn að velja 23 leikmenn fyrir þessa leiki. Leikmennirnir spila í 11 löndum. Leikur Pólverja og Íslendinga 7. október verður sýndur beint á Sýn. Sport 23.10.2005 15:00
Leikjum lokið í Meistaradeildinni Manchester United tryggði sér nauman sigur á Benfica á elleftu stundu í Meistaradeildinni nú áðan. Það var Ryan Giggs sem kom heimamönnum yfir rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, en gestirnir jöfnuðu metin á 59. mínútu. Það var svo markahrókurinn Ruud van Nistelrooy sem tryggði liði United sigurinn fimm mínútum fyrir leikslok, en sigur enska liðsins var ekki mjög sannfærandi. Sport 23.10.2005 15:00
Fær spænskan ríkisborgararétt Brasilíski knattspyrnumaðurinn Marcos Senna hjá Villareal er búinn að fá spænskan ríkisborgararétt. Spænski landsliðsþjálfarinn Luis Aragones getur því valið hann í spænska landsliðið. Senna er fæddur í Sao Paulo í Brasilíu en gekk í raðir Villareal fyrir þremur árum. Hann er búinn að vera einn besti maður Villareal undanfarin ár. Sport 23.10.2005 15:00
Ekki samið aftur við Krankl Austurríska knattspyrnusambandið ætlar ekki að endurráða Hans Krankl sem landsliðsþjálfara þegar samningur hans rennur út í árslok. Austurríkismenn eiga ekki lengur möguleika á því að komast í úrslit heimsmeistarakeppninnar á næsta ári. Sport 23.10.2005 15:00
Ferguson hefur þykkan skráp Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur þurft að þola harða gagnrýni frá stuðningsmönnum liðsins síðan það tapaði á heimavelli fyrir Blackburn á laugardaginn, en sá gamli fékk að heyra ljótar svívirðingar frá stuðningsmönnum liðsins þegar hann gekk af velli. Sport 23.10.2005 14:59
Perrin nýtur enn stuðnings Alain Perrin, knattspyrnustjóri Portsmouth í ensku úrvalsdeildinni, nýtur enn stuðnings stjórnarformannsins Milan Mandaric, þó hann hafi látið vísa sér af velli í tapinu gegn Bolton um helgina fyrir að storka dómara leiksins með kaldhæðnislegu látbragði. Sport 23.10.2005 14:59
Beckham áfram með landsliðinu David Beckham gefur lítið út á þær vangaveltur sem hafa verið í gangi í breskum fjölmiðlum undanfarið, þar sem menn leiddu líkum að því að hann myndi hætta að leika með enska landsliðinu eins og kollegi hans hjá rugby landsliðinu, Jason Robinson. Sport 23.10.2005 14:59
Tottenham í fjórða sæti Tottenham Hotspurs skaust í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði Fulham 1-0 á heimavelli sínum White Hart Lane. Það var enski landsliðsmaðurinn Jermain Defoe sem skoraði sigurmark Tottenham strax í upphafi leiks. Sport 23.10.2005 14:59
Mourinho hræðist ekki Liverpool Jose Mourinho segist ekki óttast að mæta Liverpool tvisvar á Anfield á innan við viku og segir að þó vissulega standi tapið í undanúrslitum meistaradeildarinnar í sínum mönnum, hafi Chelsea engu að síður unnið á Anfield í deildinni í fyrra og því sé ekkert því til fyrristöðu að endurtaka leikinn. Sport 23.10.2005 14:59
Við getum unnið Chelsea Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hefur gefið út þá yfirlýsingu að Chelsea liðið sé ekki ósigrandi og ætlar liði sínu stóra hluti gegn Englandsmeisturunum á næstu viku, þegar Chelsea og Liverpool mætast tvisvar sinnum á nokkrum dögum. Sport 23.10.2005 14:59
Wenger styður Ferguson Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, fékk stuðning úr ólíklegri átt í gærkvöld, þegar erkióvinur hans í gegn um árin, Arsene Wenger hjá Arsenal, lýsti yfir vanþóknun sinni á þeim stuðningsmönnum Manchester sem létu fúkyrðum rigna yfir Ferguson eftir tapið gegn Blackburn um helgina. Sport 23.10.2005 14:59
Tottenham ætlar sér sigur í kvöld Chris Houghton, aðstoðarmaður Martin Jol hjá Tottenham, segir að liðið sé búið að gleyma óförunum gegn Grimsby í deildarbikarnum í síðustu viku og segir að nú sé kjörið tækifæri til að taka góðan sprett í deildinni. Sport 23.10.2005 14:59
Adriano semur við Inter Brasilíski framherjinn Adriano hefur framlengt samning sinn við Inter Milan á Ítalíu um tvö ár og verður því samningsbundinn félaginu til ársins 2010. Adriano nýtti sér með þessu framlengingarákvæði sem var í samningnum hans sem hann undirritaði í fyrra eftir að hann kom til Inter frá Parma. Sport 23.10.2005 14:59
Messi orðinn leikfær með Barcelona Argentínska undrabarnið Lionel Messi hjá Barcelona er loksins orðinn leikfær með liðinu í deildarkeppninni, eftir að hann fékk spænskan ríkisborgararétt í dag. Hingað til hefur hann aðeins geta leikið með liðinu í Evrópukeppni, því félög á Spáni geta aðeins teflt fram þremur "útlendingum" í hópnum í deildarleikjum. Sport 23.10.2005 14:59
Sögulegur leikur hjá Arsenal Leikur Arsenal og West Ham í ensku úrvalsdeildinni um helgina var frekar tíðindalítill, enda skildu liðin jöfn 0-0. Það sem merkilegra er við þennan leik er þó sú staðreynd að þetta var aðeins í annað sinn sem Arsenal teflir ekki fram frönskum leikmanni byrjunarliði sínu í stjórnartíð Arsene Wenger. Sport 23.10.2005 14:59
Verða að spila skemmtilegan bolta Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að toppliði Chelsea beri skylda til að spila skemmtilega knattspyrnu, því það muni tryggja að áhorfendur haldi áfram að mæta á völlinn á Englandi. Þetta segir hann í ljósi fréttaflutings undanfarið um dræma ásókn á leiki á Englandi og ásakanir á hendur ensku liðanna um að þau spili of skipulagðan varnarleik. Sport 23.10.2005 14:59
Wenger bjartsýnn Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segist ekki hafa stórar áhyggjur þó nokkrir lykilmenn liðsins eigi við meiðsli að stríða fyrir leikinn gegn Ajax í Meistaradeildinni annað kvöld, en auk þess hefur liðinu ekki gengið vel á útivelli það sem af er tímabilinu. Sport 23.10.2005 14:59
Ferguson segir tapið áfall Sir Alex Ferguson segir að tap Manchester United gegn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í gær hafi verið sér gríðarlegt áfall, en bendir á að Blackburn hafi átt það skilið sem þeir hafi fengið út úr leiknum, því þeir hafi mætt á Old Trafford til að sigra. Sport 23.10.2005 14:59
Real komið aftur í gírinn Real Madrid sigraði nýliða Alaves 3-0 á útivelli í spænsku knattspyrnunni í dag, en þetta var annar sigur liðsins í deildinni á fjórum dögum. Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real og Guti eitt í blálokin. Sport 23.10.2005 14:59
Pardew rólegur Alan Pardew, knattspyrnustjór West Ham, ætlar ekki að láta góða byrjun liðs síns í ensku úrvalsdeildinni stíga sér til höfuðs, en liðið er í þriðja sæti eftir leiki gærdagsins. Sport 23.10.2005 14:59
Óvæntur fyrsti sigur Sunderland Nýliðar Sunderland unnu loksins sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, þegar þeir lögðu granna sína í Middlesbrough mjög óvænt á útivelli, 2-0. Sport 23.10.2005 14:59
Jafntefli við Svía Íslenska U-17 ára landsliðið í knattspyrnu karla gerði í morgun 2-2 jafntefli við Svía í undanriðli Evrópukeppninnar. Björn Þór Jónsson og Gylfi Þór Sigurðsson skoruðu mörk íslenska liðsins í síðari hálfleik. Sport 23.10.2005 14:59
Wenger vill stig fyrir mörk Arsene Wenger hefur fundið lausnina á dræmri aðsókn á leiki í ensku knattspyrnunni og segir að umbuna ætti liðum sem spila sóknarknattspyrnu með því að gefa þeim stig fyrir að skora mörg mörk. Sport 23.10.2005 14:59
Maldini með met og sigur Varnarmaðurinn ótrúlegi Paolo Maldini hjá AC Milan fagnaði tvöfalt þegar lið hans vann sigur á botnliði Treviso 2-0 í ítalska boltanum í dag. Maldini hefur nú leikið flesta leiki allra í sögu deildarinnar og bætti met Dino Zoff, sem spilaði 570 á ferlinum í ítölsku deildinni. Sport 23.10.2005 14:59
Gunnar heldur uppteknum hætti Gunnar Heiðar Þorvaldsson hélt uppteknum hætti í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, þegar hann skoraði bæði mörk Halmstad í 2-0 sigri á Helsingborg nú síðdegis. Sport 23.10.2005 14:59
Jewell sló á létta strengi Paul Jewell, stjóri Wigan, sló á létta strengi í viðtali eftir sigurinn á Everton í gær, en Wigan hefur byrjað leiktíðina betur en nokkur þorði að vona. Hann lét menn sína heyra það í hálfleik og uppskar enn einn óvæntan sigur á tímabilinu. Sport 23.10.2005 14:59
Start lagði topplið Valerenga Start vann nú áðan góðan sigur á Valerenga, 3-0 í toppslag norska fótboltans. Jóhannes Harðarson lék allan leikinn fyrir Start og Árni Gautur Arason stóð í marki Valerenga. Með sigrinum lyftir Start sér í toppsætið í deildinni á kostnað Valerenga á betri markatölu, en bæði lið hafa hlotið 44 stig eftir 22 leiki. Sport 23.10.2005 14:59
Willum Þór var í skýjunum Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, var í skýjunum eftir sigurinn á Fram. Kópavogsbúinn geðþekki hefur nú unnið nánast allt sem hægt er að vinna í íslenskri knattspyrnu, allar deildirnar fjórar og nú bikarinn eftirsótta. Sport 23.10.2005 14:59
Leikjum lokið á Englandi Leikjunum sex í ensku úrvalsdeildinni er lokið, en þar ber hæst að Manchester United tapaði á heimavelli fyrir Blackburn og Chelsea hélt sigurgöngu sinn áfram með sigri á Aston Villa á heimavelli sínum. Sport 23.10.2005 14:59