
Skólp

Dularfullu blettirnir eigi sér eðlilegar skýringar
Undarleg sjón blasti við mörgum í sjónum úti af Sæbraut í dag. Brúnir blettir úti á hafi, nokkuð reglulegir í laginu, hafa eflaust vakið furðu einhverra sem sáu þá. Upplýsingafulltrúi Veitna segir hann þó eiga sér alvanalegar skýringar.

Stór styrkur í Hveragerði frá Evrópusambandinu
Mikil gleði ríkir í Hveragerði þessa dagana því Hveragerðisbær var að fá 342 miljóna króna styrk frá Evrópusambandinu vegna byggingar nýrrar skolphreinsistöðvar í bænum.

800 milljóna króna hreinsistöð byggð á Selfossi
Sveitarfélagið Árborgar ætlar sér stóra hluti þegar kemur að fráveitumálum en byggja á hreinsistöð, sem tekur allt skólp frá íbúum á Selfossi en í dag fer allt skólp óhreinsað í Ölfusá.

Landslagsmiðuð nálgun í fráveitumálum
Í tveimur greinum sem birtust í fjölmiðlum 28. og 30. nóvember kom fram að ástand fráveitumála á Íslandi sé mjög slæmt. Fram kom að kröfur í fráveitumálum verði hertar hjá Evrópusambandinu og við sem þjóð munum þurfa að innleiða samkvæmt þeim kröfum.

Á fráveituvatnið heima í sjónum?
Nokkur umræða hefur spunnist um stöðu fráveitumála á Íslandi í kjölfar greinar sem birtist í Morgunblaðinu þann 28. nóvember síðastliðinn. Þar var undirritaður meðal annars til viðtals og lét hafa sitthvað eftir sér um slæma stöðu fráveitumála á landsvísu.

Ægisíðan verulega ógeðsleg
Bjarni Brynjólfsson fyrrverandi upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar segir ástandið við Ægisíðuna slæmt og fjörukantinn þar verulega ógeðslegan: Endalausar skólpleifar í þarabunkum, leifar af klósettpappír og fleira miður geðslegt.

Veikindi sextíu sjósundskappa mögulega vegna skólps
Að minnsta kosti 57 manns veiktust af bæði ælupest og niðurgangi eftir að hafa keppt í sjósundi á heimsmótaröðinni í þríþraut í borginni Sunderland í Bretlandi síðustu helgi.

Sundgarpar varaðir við skólpi í sjó
Veitur vara sjósundsfólk við því að á morgun og hinn muni skólp fara í sjó við Skeljanes og Faxaskjól á meðan prófun stendur yfir á búnaði í dælustöðvum og neyðarlúgur verða opnaðar.

Sitja ein í súpunni og þrífa skítinn
Hjón í Kópavogi þrífa skólp af heimili sínu vopnuð kolagrímum og sitja uppi með milljóna tjón eftir að stífla í skólpröri olli því að úrgangur flæddi inn í hús þeirra. Tryggingafélag hafnar bótaskyldu og fjölskyldan segir engin svör berast frá Kópavogsbæ.

„Allt sem við áttum fór í þetta“
Fjölskylda í Kópavogi stendur frammi fyrir milljónatjóni eftir að skólp flæddi upp um öll gólf vegna stíflu í röri, sem fjölskyldan segir á ábyrgð sveitarfélagsins. Kópavogsbær hafnar því að hafa vitað af stíflunni áður en ósköpin dundu yfir.

Skólp flæddi inn á heimili fjölskyldu í Kópavogi: „Hér er allt fullt af skít“
Fjögurra manna fjölskylda í Kópavogi sér fram á milljóna tjón eftir að stífla í skólpröri olli því að skólp flæddi inn í íbúð þeirra og olli gífurlegum skemmdum. Eigandi segir Kópavogsbæ hafa viðurkennt ábyrgð á stíflunni. Svör frá tryggingafélaginu séu á þá leið að ekkert sé hægt að aðhafast fyrr en beiðni berist frá Kópavogsbæ. Íbúðin sé byrjuð að mygla og tíminn á þrotum. Kópavogsbær hafnar að hafa viðurkennt ábyrgð á stíflunni.

Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar í fjörunni í Vesturbæ
Notuð dömubindi, blautþurrkur og smokkar eru á meðal þess sem finna má í fjörunni í Vesturbæ nú þegar óhreinsað skólp hefur flætt þar um. Sérfræðingur hjá Veitum segir að draga þurfi úr blautþurrkunotkun með reglugerð. Fréttastofa kannaði hvað ratar úr klósettinu í fjöruna.

Skólp aðeins grófhreinsað við Ánanaust næstu þrjár vikur
Hreinsistöð skólps við Ánanaust verður tekin úr rekstri á morgun og verður óstarfhæf í um þrjár vikur. Skólpið verður á þeim tíma grófhreinsað áður en því verður veitt í sjó. Kólígerlamagn verður því talsvert yfir viðmiðunarmörkum þennan tíma.

Vakta fjörur eftir bilun í hreinsistöð
Komið hefur upp bilun í hreinsistöð við Ánanaust í Reykjavík og fer því óhreinsað skólp í sjó.

Furðuleg froða í læk við Vog
Mikil froða gaus upp við frárennsli í læk við Vog, sjúkrahús SÁÁ við Stórhöfða í Reykjavík, í dag.

Losa skólp út í sjó við Elliðavog og Arnarvog
Óhreinsuðu skólpi verður veitt út í Elliðavog og Arnarvog á meðan dælustöð Veitna við Gelgjutanga er óstarfhæf á morgun. Rafmagn verður tekið af skólpdælustöðinni vegna vinnu við rafdreifikerfi í tengslum við uppbyggingu í Vogabyggð.

Skólpi sleppt í sjó hjá hreinsistöðinni í Ánanaustum
Vegna viðgerðar á hreinsistöð fráveitu við Ánanaust í Reykjavík verður skólpi sleppt í sjó við stöðina á morgun, milli klukkan átta í fyrramálið og miðnættis.