Útsýnispallur á Bolafjalli
„Það eru aðrir ráðherrar sem titra hérna í hnjánum“
Útsýnispallurinn á Bolafjalli var formlega vígður í morgun. Ríkisstjórnin var viðstödd vígsluna og ljóst er að sumir þeirra eru lofthræddari en aðrir.
Búið að opna útsýnispallinn á Bolafjalli til bráðabirgða
Búið er að opna útsýnispallinn á Bolafjalli til bráðabirgða. Vegurinn sem liggur að útsýnispallinum, sem hefur verið í slæmu ásigkomulagi að undanförnu, var heflaður og rykbundinn í sumar svo aðkoman er orðin allt önnur.
Útsýnispallur á Bolafjalli opni vonandi á næstunni
Útsýnispallur á Bolafjalli hefur ekki enn opnað sökum þess að öryggismál á pallinum eru ekki fyllilega frágengin. Bæjarstjóri Bolungarvíkur segir lokafrágang á pallinum hefjast í næstu viku og hann opni í kjölfarið. Viðhald á veginum upp á fjallið hefur einnig gengið erfiðlega í vetur en Landhelgisgæslan fer með umsjá hans.
Bíða spennt eftir 2022 og segja landsbyggðina eiga mikið inni
Vestfirðir eru efst á lista yfir svæði til að heimsækja árið 2022 að mati ferðabókaútgefandans Lonely Planet. Sviðstjóri hjá áfangastofu Vestfjarða segir að viðurkenningin muni nýtast þeim næstu árin en mikilvægt sé að uppbygging verði í takt við aukna eftirspurn.
Fékk að fylgjast með byggingu útsýnispallsins á Bolafjalli
Í Gulla Byggi á Stöð 2 í gærkvöldi var fylgst með því þegar útsýnispallur uppi á Bolafjalli við Bolungarvík var reistur.
Útsýnispallur leiði ferðafólk í kaffi og kleinur í Skálavík
Eigendur eyðijarðar í Skálavík, vestan Bolungarvíkur, sjá fram á að útsýnispallurinn á Bolafjalli komi til með að hafa svo mikið aðdráttarafl að grundvöllur verði til að opna kaffihús. Bóndabær, sem fór í eyði fyrir hartnær sextíu árum, muni þannig lifna við.
Oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við
Aðstandendur útsýnispallsins á Bolafjalli voru oft komnir á fremsta hlunn með að hætta við byggingu pallsins, að sögn bæjarstjóra Bolungarvíkur. En ástríðan fyrir verkefninu trompaði öll bakslög og nú er pallurinn nánast tilbúinn.
Stöðva framkvæmdir á Bolafjalli þar sem byggingaleyfi vantar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur stöðvað framkvæmdir við útsýnispall á Bolafjalli við Bolungarvík þar sem byggingarleyfi hefur enn ekki verið gefið út fyrir framkvæmdinni.
Stórum áfanga náð á útsýnispallinum á Bolafjalli
Það er að koma lokamynd á útsýnispallinn á hinu 640 metra háa Bolafjalli við Bolungarvík. Pallurinn opnar í haust, aðeins tveimur árum eftir að hugmyndin kom fyrst upp.
Sallarólegir við störf í rúmlega 600 metra hæð
Útsýnispallur á hinu 640 metra háa Bolafjalli við Bolungarvík er að taka á sig endanlega mynd, aðeins rúmum tveimur árum eftir að hugmyndir um hann voru kynntar.
Á hengiflugi í hlíðum Bolafjalls
Þessa dagana er unnið að undirbúningi uppsetningar á einum magnaðasta útsýnispalli landsins á tindi Bolafjalls. Pallurinn verður tilbúinn seinnipart næsta sumars eða í haustbyrjun.
Hæsti styrkurinn til byggingar útsýnispalls í Bolungarvík
Greint var frá úthlutun 1,5 milljarðs króna til uppbyggingar innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2020 í morgun.
60 prósenta munur á tilboðum í útsýnispallinn á Bolafjalli
Fjögur tilboð bárust Bolungarvík í smíði og uppsetningu útsýnispalls á Bolafjalli. Tilboðin voru opnuð í Ráðhúsi Bolungarvíkur í gær.
Reikna með tugþúsundum á útsýnispall í háloftunum í Bolungarvík
Bolvíkingar eiga von á því að tugir þúsunda ferðamanna muni nýta sér útsýnispall á Bolafjalli í Bolungarvík.