Skoðun

Fréttamynd

Kaupmáttur eftir skatta og eldri borgarar

Eins og fram kom í síðustu grein hafa skattar á lægri tekjur allt frá árinu 1988 hækkað mikið vegna þess að skattleysismörkin hafa setið eftir að raungildi. Þannig greiðir sá sem nú hefur 110 þús kr. í tekjur á mánuði 10,3 prósent af þeim í tekjuskatta en hann greiddi ekki eina krónu í skatta af sambærilegum rauntekjum við upptöku staðgreiðslunnar.

Skoðun
Fréttamynd

Einkarekstur og akademískt lýðræði

Ekki má vanmeta mikilvægi þess að menntastofnanir þjóðarinnar séu eins og kostur er óháðar ríkjandi öflum í stjórnmála- og viðskiptalífi. Þær móta og þjálfa hug næstu kynslóða þjóðarinnar og eru athvarf fræðilegrar umræðu sem þarf að geta storkað ríkjandi hugmyndum og þeim sem ráðandi eru á öðrum sviðum þjóðfélagsins.

Skoðun
Fréttamynd

Meint endalok landsbyggðar

Fyrri hluta október birtist greinaflokkur í Fréttablaðinu undir heitinu „Flóttinn af landsbyggðinni“. Þar var hlutur dreifbýlis settur undir mæliker ameríkskrar hagspeki með þeirri niðurstöðu að þéttbýli utan Reykjavíkur, annars staðar en á Akureyri og í Bolungavík, væri dauðadæmt. Þarna birtust greinar með dramatískar fyrirsagnir eins og: „Austfirðingar í útrýmingarhættu,“ „Hvergi lægri tekjur“ og „Akureyri ein með framtíð.“

Skoðun
Fréttamynd

Úthýst, útrýmt og fordæmt

Litlu munaði að Felix Rottberger yrði sendur í gasklefann með systrum sínum árið 1944. Í dag sendir hann sínar bestu kveðjur og óskar nýbúum og útlendingum, án tillits til trúar og uppruna, farnaðar á Íslandi. Höfundur er fornleifafræðingur.

Skoðun
Fréttamynd

Auður Lilja Erlingsdóttir: Hæfasti einstaklingurinn kosinn?

Kosningabaráttan er hafin og tími prófkjöranna er runninn upp. Sú umræða sem alltaf virðist fylgja prófkjörsbaráttu er á sínum stað. Umræðan um hvort það skipti máli að kjósa konur eða karla eða hvort markmiðið sé einfaldlega að kjósa hæfasta einstaklinginn óháð kyni.

Skoðun
Fréttamynd

Tryggvi L. Skjaldarson: Straumsvíkurblús

Lesið Draumalandið!!" hrópaði Bubbi í Laugardalshöll. „Ef þið getið ekki keypt hana, stelið henni," sagði virtur rithöfundur. Ég keypt"ana. Bókina sem er eitt skemmtilegasta dæmið um starf sem varð til vegna stóriðjuframkvæmdanna fyrir austan. Bók sem selst eins og heitar lummur. Andri Snær er að gera það gott og það er vel.

Skoðun
Fréttamynd

Vinnutími of langur

Samkvæmt nýrri Gallupkönnun, sem gerð var fyrir Eflingu og Starfsgreinasambandið, hefur verkafólk áhyggjur af löngum vinnutíma.Vinnutíminn er nú til jafnaðar 51 stund á viku hjá verkafólki og hefur lengst um eina stund frá 1998. Þetta er vissulega mikið áhyggjuefni. Vinnutíminn ætti að styttast en ekki öfugt.

Skoðun
Fréttamynd

Blóðugar hendur

Hægrimenn á Íslandi, hvort heldur í Sjálfstæðisflokki, Framsóknarflokki eða Samfylkingu, hafa löngum legið flatir fyrir bandarískum stjórnvöldum og þjónað þeim jafnt til góðra sem vondra verka. Bandaríkjunum var leyft að hafa hér herstöðvar meðan þeim þóknaðist og logið að þjóðinni að það væri greiði og gustukarverk fyrir Íslendinga, til að tryggja öryggi okkar.

Skoðun
Fréttamynd

Samkeppnishæfara skattaumhverfi

Skattalækkanir á undanförnum árum hafa skilað sér í auknum skatttekjum fyrir ríkissjóð. Svartagallsraus þeirra vinstri manna sem töldu að fótunum yrði kippt undan velferðarkerfinu með skattalækkunum reyndist því ekki á rökum reist.

Skoðun
Fréttamynd

Mamma, mig langaði svo að þér liði betur!!!

Svona maður er að mínu skapi, ég vona að allir sjái hina miklu og góðu möguleika sem búa í stráknum! Komið, gerum breytingar, tökum þátt í prófkjörinu 11 nóvember hjá Samfylkingunni og styðjum þennan unga hugsjónamann!!!

Skoðun
Fréttamynd

Án samvinnu – engar umbætur

Um þessar mundir er verið að ganga frá starfs- og fjárhagsáætlun fyrir leikskólasvið og menntasvið Reykjavíkur. Áætlunin er leiðarvísir að því hvernig skólamálum skuli hagað í borginni næstu tíu árin. Skemmst er frá að segja að hún verður bara orðin tóm ef kennarar eru ekki hafðir með í ráðum og áhugi þeirra virkjaður.

Skoðun
Fréttamynd

Hvar verður þú í kvöld?

Í dag 6. nóvember, ganga fermingarbörn í hús og safna til hjálparstarfs á vegum kirkjunnar sinnar. Vertu klár, ekki bara með budduna ef þú átt aur - heldur líka hvatningu. Það er ekki oft sem krakkar fá tækifæri til að hjálpa svo um muni.

Skoðun
Fréttamynd

Ríkið tekur yfir prentsmiðju

Það er ekki oft sem íslenska ríkið ræðst með krafti gegn íslenskum fyrirtækjum með beinum og augljósum hætti. Það gerðist þó í vikunni þegar ríkið keypti prentfyrirtækið Samskipti og opinberaði fyrirætlanir sínar um að reka það í samkeppni við önnur prentfyrirtæki hérlendis.

Skoðun
Fréttamynd

Fífl og heimskingi

Það hefur komið í hlut okkar nútímamanna að taka virkan þátt í sjúkdómavæðingunni. Skilin á milli sjúkleika og heilbrigði eru sífellt að verða óljósari, og er sá maður orðinn vandfundinn sem alheilbrigður er, nema hann sé þá nýfæddur.

Skoðun
Fréttamynd

Ofbeldi gegn börnum – samfélagslegt vandamál

Í Palestínu búa börn við daglegt ofbeldi og vopnaskak, á Indlandi alast börn upp í vændishúsum, í Síerra Leóne þræla börn í demantanámum, í Súdan og Austur-Kongó hafa börn séð foreldra sína og vini myrta. Víða í Afríku er stúlkubörnum nauðgað af HIV smituðum mönnum og árlega eru yfir milljónir barna seldar eins og hverjar aðrar vörur á milli landa.

Skoðun
Fréttamynd

Kjarklausir heilbrigðisráðherrar

Árið 2002 hættu flestir heilsugæslulæknar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Upp úr því fara bæjaryfirvöld fram á það við heilbrigðisráðherra sem þá var Jón Kristjánsson að gerður yrði þjónustusamningur við Grindavík um að Grindavíkurbær gerðist reynslusveitarfélag í reksturs heilsugæslu.

Skoðun
Fréttamynd

Það er gott að stjórna með óttanum

Þegar Ragnar Halldórsson var forstjóri, hlustaði hann á skoðanir starfsmanna á gólfinu án þess að þeir fengju mínusstig. Það mátti brosa og vera með glens. Síðustu ár hafa aðrir stjórnarhættir tekið við.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað er ég að vesenast í pólitík?

Já, hvað er maður að brölta þetta í pólitík. Það hafa einhverjir spurt að þessu og flestir hvatt mig til dáða. Ég hef starfað í kringum stjórnmál í 17 ár þá mest í bæjarpólitík og fannst mér komin tími á að stíga skrefið og taka þátt í prófkjöri fyrir alþingiskosningar.

Skoðun
Fréttamynd

Ljúga stjórnvöld?

Alþingismenn og ráðherrar núverandi stjórnarflokka tuða sífellt á því hvað lágmarkslaun verkafólks hafi hækkað umfram önnur laun í landinu. Viljandi mata þeir þjóðina á þeim ósannindum að lágu launin hafi hækkað umtalsvert meira en þau hærri.

Skoðun
Fréttamynd

Veiðiferðin er búin

Því miður virðist það vera svo að ríkisstjórnin hafi talið að ef haldið yrði til veiða þá myndi þjóðin þjappa sér á bakvið hana og styðja hana í stríði hins litla við öll stórveldi heimsins. Og hætta að tala um hleranir.

Skoðun
Fréttamynd

Alfriðun?

Nú síðustu ár hefur áhugi á uppbyggingu við Laugaveg aukist til muna, en enn og aftur eru það hvorki Torfusamtökin né Reykjavíkurborg sem standa í vegi fyrir framkvæmdum.

Skoðun
Fréttamynd

Af hverju konur fá enn greidd lægri laun en karlar

Við þurfum að setja kynjagleraugunum á nefið í öllum málaflokkum. Þegar sett eru ný lög á Alþingi séu þau skoðuð sérstaklega með tilliti til áhrifa þeirra á konur og karla. Í undirbúningi að ákvarðanatöku og við úthlutun fjármagns, t.d. í fjárhagsáætlunargerð, og þegar teknar eru aðrar ákvarðanir um úthlutun fjármagns, þarf að taka mið af þörfum og áhrifum á bæði kynin og greina áhrif ákvarðana á stöðu þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Ísland og alþjóðleg samkeppni

Mikilvægt hlutverk hins opinbera er að stuðla að þróun framleiðsluþáttanna með því að efla og styðja við menntun, rannsóknir og nýsköpun. Beinum ríkisafskiptum á að halda í lágmarki. Hlutverk stjórnvalda á sviði upplýsingarmiðlunar er þó mikilvægt.

Skoðun
Fréttamynd

Samskipti barna og foreldra

Að hafa aðgengi að foreldrunum skiptir jafnvel hvað mestu máli. Í þessum stutta pistli langar mig að velta vöngum yfir eðli þeirra samskipta sem foreldrar og börn eiga saman. Sjálf hef ég haldið ótal fyrirlestra um þetta málefni fyrir foreldra og einnig fyrir ólíka hópa í samfélaginu sem starfa með börnum.

Skoðun
Fréttamynd

Með fjölbreytni að vopni

Það er mikivlægt að við stöndum vörð um fjölbreytni. Stillum upp taflborði þar sem drottningar vinna með hrókum, riddarar vinna með peðum, biskupar berjast með og kóngurinn heldur velli. Skák og mát.

Skoðun
Fréttamynd

Ég vil skattfrelsi líknarfélaga

Ísland er reyndar eina landið sem ég veit um þar sem stjórnvöld ýta ekki undir framlög einstaklinga til líknarfélaga með því að leyfa þeim að draga framlagið frá skattstofni. Í öllum öðrum löndum er skattafrádráttur vegna framlaga til góðgerðarsamtaka og líknarfélaga talinn vera mikilvæg hvatning til einstaklinga til að láta eitthvað af höndum rakna til starfsemi þeirra.

Skoðun
Fréttamynd

Við þurfum sterkan forsætisráðherra

Við þurfum ekki á þessu að halda. Við þurfum sterkan forsætisráðherra sem ræðst gegn verðbólgunni og ofurvöxtunum og hefur þrek til að halda aftur af ríkisútgjöldum. Við þurfum forsætisráðherra sem leiðir nýja stefnu í öryggismálum fyrir Ísland, en þiggur ekki bara og hlýðir haukunum í Bandaríkjunum.

Skoðun
Fréttamynd

Ómarktækur umhverfisráðherra

Yfirlýsingar Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra í fjölmiðlum, vegna þess að Íslendingar hefja nú atvinnuhvalveiðar á nýjan leik eru fádæma klaufalegar og lýsa botnlausri hræsni. Það er fyrir neðan allar hellur að ráðherra í ríkisstjórn Íslands skuli láta svona lagað frá sér fara rétt eftir að heimsbyggðinni hefur verið tilkynnt að einhugur ríki í sömu ríkisstjórn um að hefja atvinnuhvalveiðar á nýjan leik eftir um tuttugu ára hlé.

Skoðun
Fréttamynd

Beinvænt mataræði

Beinþynning er afar sársaukafullur sjúkdómur. Áhættuþættir beinþynningar eru margir og þá helstu náum við ekki að stjórna enda tengjast þær erfðum og hækkandi lífaldri. En ýmsa beinvæna lífsþætti getum við lært að tileinka okkur og náð þannig að byggja upp beinin eins vel og viðhaldið beinstyrk eins lengi og okkur er frekast kostur. Í því samhengi skiptir beinvænt mataræði miklu máli.

Skoðun