EFTA
Krefst þess að Sorpa stofni hlutafélag
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur farið fram á það að hagnaðardrifinn hluti Sorpu verði færður í hlutafélag. Þannig muni ólögmæt ríkisaðstoð í formi undanþágu tekjuskattskyldu falla niður.
Hvetja Ísland til að draga enn frekar úr losun
Eftirlitsstofun EFTA, ESA, hefur hvatt Ísland til að huga að frekari aðgerðum varðandi það að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda með tilliti til þess hversu naumt er að landið haldi sig innan núverandi markmiða.
Fordæmalaus húsleit þegar ESA beitti sjálfstæðum valdheimildum sínum
Fyrirvaralaus athugun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hjá fjárfestingafélaginu Skel í tengslum við meinta markaðsskiptingu á smásölumarkaði með lyf, fyrsta slíka aðgerðin sem ráðist hefur verið í hér á landi, kemur um einu ári eftir að málinu lauk með úrskurði áfrýjunarnefndar Samkeppnismála. Húsleit ESA, framkvæmd í gær og fjöldi manns kom að, er gerð í samræmi við ákvæði samkeppnislaga um sjálfstæða heimild stofnunarinnar til að framfylgja samkeppnisreglum EES-samningsins á Íslandi – og þarf hún ekki til þess úrskurð dómstóla.
Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag
Forstjóri hjá Skel fjárfestingafélagi hafnar því að Lyfjaval hafi brotið samkeppnisreglur, með því að einbeita sér í auknum mæli að rekstri bílaapóteka. Ráðist var í athugun hjá félaginu í gær, vegna gruns um markaðsskiptingu.
Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, gerði í dag athugun hjá Skel fjárfestingafélagi hf. á grundvelli ákvörðunar ESA um athugun á starfsemi Lyfjavals ehf., sem er í meirihlutaeigu Skeljar. Lyfjaval er grunað um markaðsskiptingu, með því að loka hefðbundnu apóteki í Mjódd og einbeita sér að því að starfsrækja bílalúguapótek.
Málið sem þolir ekki ljósið
Fyrir einu og hálfu ári var reynt að keyra lagafrumvarp um forgang innleidds regluverks frá Evrópusambandinu vegna aðildarinnar að EES-samningnum gagnvart innlendri lagasetningu í gegnum Alþingi undir forystu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og varaformanns Sjálfstæðisflokksins. Vonazt var til þess að málið vekti sem minnsta athygli. Það mistókst. Til stendur nú að reyna það aftur.
Nýtir gervigreind í stað sérfræðinga
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hyggst nýta gervigreind til að finna dæmi um svokallaða gullhúðun í íslenskri löggjöf. Þar er átt við tilfelli þar sem stjórnvöld hafa gengið lengra en krafist er í tilskipunum sem innleiddar eru á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Hjólar í Ísland vegna veikindaréttar atvinnulausra
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur ákveðið að vísa máli sem varðar skerðingu á atvinnuleysisbótum vegna tímabundinnar dvalar bótaþega í öðru EES-ríki til EFTA-dómstólsins. Stofnunin telur Ísland brjóta gegn ákvæðum EES-samningsins með því að fella niður bætur þegar fólk fer úr landi til þess að sækja sér heilbrigðisþjónustu.
Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli
Utanríkisráðherra EFTA ríkjanna fjögurra auk fulltrúi Evrópuráðsins koma saman til fundar í Brussel í Belgíu í dag í tilefni þrjátíu ára afmælis Evrópska efnahagssvæðisins.
Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra
Skilmálar fasteignalána Landsbankans uppfylla íslensk og evrópsk lög að mati bankans þrátt fyrir að EFTA-dómstóllinn hafi gert athugasemdir við að orðalag um breytilega vexti væri ekki gagnsætt í dag.
Birni Bjarnasyni svarað
Björn Bjarnason er lagður af stað í skógarferð þar sem hann virðist hafa í hyggju að reyna að ná höggi á undirritaðan.
Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur ákveðið að ljúka skoðun sinni á kvörtun sem sneri að meintu broti Íslands á EES-reglum við veitingu leyfis til hvalveiða. Eftir yfirferð hefur ESA komist að þeirri niðurstöðu að leyfisveitingin feli ekki í sér brot á EES-samningnum.
„Einkafyrirtæki myndi ekki taka ákvarðanir sem gengu í berhögg við vilja eigenda“
Sérfræðingur í Evrópurétti telur að eftirlitsstofnun EFTA muni taka til skoðunar fyrirhuguð kaup Landsbankans á Tryggingamiðstöðinni. Slík skoðun gæti tekið langan tíma, en kaupin mættu ekki fara fram meðan á henni stæði.
Nýr fríverslunarsamningur við Indland undirritaður
Nýr fríverslunarsamningur milli Indlands og EFTA-ríkjanna, það er Íslands, Liechtensteins, Noregs og Sviss var undirritaður í Nýju Delí í dag. Bjarni Benediktsson skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands.
Fæðingarorlofssjóður þarf ekki að miða við erlendar tekjur
Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið af öllum kröfum konu sem krafðist þess að ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs, um áætlun um greiðslur til hennar í fæðingarorlofi úr sjóðnum, yrði dæmd ógild. Hún fékk lágmarksgreiðslur úr sjóðnum þar sem hún hafði þegið laun í Danmörku en ekki Íslandi í aðdraganda fæðingar.
Bókun 35 – 101
Umræðurnar nú um bókun 35 eru ein birtingarmynd þessa vanda sem hefur verið til staðar lengi. Fljótt á litið er lagafrumvarpið nú einfaldlega að efna þrjátíu ára gamalt loforð. Það felur ekki í sér neinn undirlægjuhátt eða undanlátssemi, að minnsta kosti ekki umfram það sem orðið er, að sögn hæstaréttarlögmanns. Hvort staðan hafi verið metin rétt með tilliti til „stjórnarskrármálsins“ og raunverulegs vilja landsmanna þá eða nú í ljósi breyttra aðstæðna sé hins vegar önnur umræða.
Álit ESA og blóðmerahald
Í vor sem leið birti ESA, Eftirlitsstofnun með samningnum um EES, álit sitt varðandi blóðmeraiðnað á Íslandi. Spurningin sem lögð var fyrir stofnunina var hvort vinnsla PMSG hormóns úr blóði fylfullra mera félli undir gildissvið reglugerðar 460/2017, sem er innleiðing á Evróputilskipun 2010/63, um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni.
Gunnar Hörður til Brussel frá ríkislögreglustjóra
Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, hyggst kveðja félaga sína hjá embættinu en hann hefur þess í stað störf í Brussel við samskiptadeild uppbyggingarsjóðs EES.
Fara með hvalveiðileyfi til EFTA
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa vísað veitingu hvalveiðileyfis til Hvals hf. til eftirlitsstofnunar EFTA. Lögfræðingur samtakanna segist telja að leyfið stangist á við Evrópureglur og vonar að stofnunin bregðist hratt við.
„Við viljum ekki fá að sjá þessar útskýringar“
Stjórnarmaður í eftirlitsnefnd EFTA segir íslensk stjórnvöld oft gerast sek um seinagang þegar kemur að svörum við úrskurðum nefndarinnar. Nefndin fundar með stjórnvöldum hér á landi í næsta mánuði.
Viðbúnaður vegna rannsókna á flugslysum ekki í lagi
Íslensk stjórnvöld þurfa að koma á fót formlegu fyrirkomulagi til að tryggja að gott samstarf sé á milli viðeigandi opinberra aðila áður en rannsókn á flugslysum hefst. Þetta kemur fram í rökstuddu áliti Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Tveggja daga pásukvöð brot á reglum EES
Sú staðreynd að erlend rútufyrirtæki innan geta ekki boðið upp á lengri en tíu daga samfelldar rútuferðir er brot á EES-reglum. Reglurnar takmarki markaðsaðgengi erlendra rútufyrirtækja.
ESA segir reglur um vernd dýra brotnar með blóðmerahaldi
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) segir Íslendinga brjóta gegn reglum EES um vernd dýra sem notuð eru í vísindaskyni með blóðmerahaldi. Stofnunin sendi formlegt áminningarbréf til Íslands í dag þar sem kallað er eftir því að reglunum verði fylgt.
Hafa náð saman um fríverslun við Moldóvu
EFTA-ríkin og Moldóva hafa komist að samkomulagi um fríverslunarsamning sem undirritaður verður á næsta ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein í júní næstkomandi.
ESA gerir athugasemdir við eftirlit, hreinlæti og vinnslu
Eftirlitsteymi á vegum ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, gerði fjölmargar athugasemdir við eftirlit Matvælastofnunar (MAST) með kjúklingaafurðum í kjölfar úttektar sem fram fór hér á landi 25. október til 1. nóvember 2022.
Icesave dómurinn: 10 ára afmæli
Íslensk lög um innstæðutryggingar eru ekki í samræmi við Evrópulöggjöfina og er þar í raun ekki kveðið á um neina lágmarksfjárhæð til tryggingar, einungis hámarksfjárhæð 100 þúsund evrur. Að mínu mati ætti Ísland í lengstu lög að reyna að koma sér hjá því að þurfa að undirgangast jafn gagnslausa og hættulega löggjöf og dæmin sanna.
Bein útsending: EES-samningurinn og áskoranir 21.aldar
EES-samningurinn og áskoranir 21. aldarinnar eru umfjöllunarefni á málþingi í Háskóla Íslands í dag þar sem Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfdóttir utanríkisráðherra og Maroš Šefčovič, varaforseti þverstofnanlegra tengsla og framsýni hjá Evrópusambandinu, eru meðal gesta.
Forseti EFTA-dómstólsins segir umræðu um kaupauka vera Pandórubox
Enginn stjórnmálamaður er tilbúinn að leggja æru sína að veði til að opna á umræðu um kaupauka fjármálafyrirtækja, sérstaklega í ljósi þess hversu mikla reiði kaupaukar föllnu bankanna vöktu hjá almenningi í kjölfar fjármálahrunsins.
ESA blessar 96 milljarða króna matshækkanir Félagsbústaða
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, telur sig ekki hafa forsendur til að aðhafast vegna matshækkana á fasteignum Félagsbústaða, dótturfélags Reykjavíkurborgar, eftir að hafa komist að þeirri niðurstöðu að þau brjóti á engan hátt í bága við lög evrópska efnahagssvæðisins. Þetta kemur fram í bréfi sem eftirlitsstofnunin sendi innviðaráðuneytinu í sumar og ráðuneytið afhenti Innherja.
Reikna verður með erlendum tekjum við útreikning fæðingarorlofs
EFTA-dómstóllinn segir í nýbirtu ráðgefandi áliti fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur að óheimilt sé að binda útreikning fæðingarorlofsgreiðslna alfarið við tekjur sem aflað er hér á landi.