Snjóflóð á Íslandi
1 2 3 4 … 4 ›
Áfram óvissustig á Austfjörðum en aflétt á Vesturlandi Óvissustigi vegna ofanflóðahættu hefur verið aflétt á Vesturlandi og sunnanverðum Vestfjörðum, en gert er ráð fyrir áframhaldandi óvissustigi á Austfjörðum fram til mánudags. Innlent 1.2.2025 18:58
Nokkur krapaflóð fallið yfir vegi og óvissustig vegna flóðahættu Fjórtán íbúar á Patreksfirði, sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu, hafa nú mátt snúa heim eftir á hættustigi var aflétt. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn víða í gildi en Veðurstofunni er kunnugt um nokkur krapaflóð sem hafa fallið frá því í gær, meðal annars yfir vegi á Vesturlandi og á Austfjörðum. Varðskip Landhelgisgæslunnar er í viðbragðsstöðu fyrir vestan og almenningur er hvattur til að fylgjast vel með færð enda geti vegir lokast vegna ofanflóða. Innlent 1.2.2025 12:20
Snjóflóð féllu hjá Ólafsvík Tvö snjóflóð féllu á veg á milli Ólafsvíkur og Rifs á Snæfellsnesi. Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi á Vesturlandi vegna ofanflóðahættu. Vegurinn er nú lokaður. Innlent 31.1.2025 19:59
Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands lýsir yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum. Óvissustigið tók gildi klukkan fjögur í dag. Innlent 31.1.2025 16:17
Óhugnanlegt að hugsa til þess ef allt hefði ekki farið á besta veg Kona sem eignaðist barn á Seyðisfirði í óveðrinu í vikunni segir það óhugnanlegt að hugsa til þess ef allt hefði ekki farið á besta veg líkt og það gerði. Öryggi íbúa sé ógnað vegna slæmra samgangna á Austfjörðum. Innlent 22.1.2025 20:22
Rýmingum aflétt í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Rýmingum í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt. Enn er verið að fara yfir gögn og meta hvort aflétta eigi rýmingum á Seyðisfirði strax. Verkefnastjóri almannavarna á Austfjörðum segir ánægjulegt að óvissuástandinu sé að ljúka. Innlent 21.1.2025 12:16
Rýmingum væntanlega aflétt og fært um Fjarðarheiðina Veður er orðið með skaplegasta móti á Austfjörðum og nóttin var tíðindalítil að sögn Magna Hreins Jónssonar ofanflóðasérfræðings hjá Veðurstofunni sem fylgdist með í nótt. Innlent 21.1.2025 07:30
Barn fæddist á Seyðisfirði í fyrsta sinn í þrjátíu ár Hættustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Austfjörðum. Lögreglustjórinn segir rýmingu hafa gengið vel, þó hún sé alltaf viðkvæmt mál. Barn fæddist á Seyðisfirði í fyrsta sinn í þrjátíu ár í dag. Innlent 20.1.2025 19:22
Rýma fleiri hús á Seyðisfirði Þrjú stór flóð féllu fyrir ofan Neskaupstað í nótt. Rýmingar eru enn í gildi í bænum og á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Rýma á tvær blokkir til viðbótar á Seyðisfirði í dag. Forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar segir rýmingarnar hafa tekið á íbúa. Innlent 20.1.2025 12:18
Ók inn í snjóflóð í Færivallaskriðum Ferðamenn óku inn í snjóflóð sem hafði fallið í Færivallaskriðum á Austfjörðum í dag. Bíllinn festist í flóðinu en ferðamennirnir eru óslasaðir. Innlent 19.1.2025 20:02
Um 170 íbúar komnir með húsaskjól og rýmingarsvæðum fjölgað Á annað hundrað íbúar á Austfjörðum þurftu að yfirgefa heimili sín í dag vegna aukinnar snjóflóðahættu. Íbúar hafa tekið ástandinu að æðruleysi segir verkefnastjóri hjá almannavörnum en ástandið hreyfir við mörgum í ljósi sögunnar. Rýmingarsvæðum á Seyðisfirði fjölgar í kvöld en ná að mestu yfir atvinnusvæði. Innlent 19.1.2025 19:31
Rýming í Neskaupstað og á Seyðisfirði Rýma þarf svæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði vegna mikillar snjóflóðahættu. Veðurstofa Íslands telur mikla hættu á snjóflóðum á svæðinu næstu daga. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi. Innlent 19.1.2025 11:09
„Þetta skilgreinir þorpið“ Þrjátíu ár eru í dag liðin frá snjóflóðinu mannskæða í Súðavík og blysför og minningarstund verður í bænum í kvöld. Sveitarstjóri segir atburðinn skilgreina samfélagið á vissan hátt. Innlent 16.1.2025 12:17
Þrjátíu ár liðin frá snjóflóðunum á Súðavík Þrjátíu ár eru í dag liðin frá því að eitt mannskæðasta snjóflóð Íslandssögunnar féll á Súðavík. Innlent 16.1.2025 07:37
Vill veita björgunarfólkinu viðurkenningu Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, deildarforseti og prófessor við Háskólann í Bifröst, telur einsýnt að þeir sem komu að björgunarstörfum í tengslum við snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri fyrir þrjátíu árum verði heiðraðir sérstaklega fyrir framgöngu sína. Innlent 14.1.2025 12:17
Getur enn þann dag í dag ekki horft á barnarúm Þann 16. janúar árið 1995 féll mannskætt snjóflóð á sjávarþorpið Súðavík. Heimildarmyndin Fjallið það öskrar var sýnd á Stöð 2 á sunnudagskvöldið. Lífið 7.1.2025 10:31
Léttir að heyra öskrið í dóttur sinni Skaðræðisöskur eins árs stúlku var gífurlegur léttir fyrir unga móður eftir snjóflóðin í Neskaupstað í desember 1974. Fólk sem lifði af mannskæð snjóflóð í Neskaupstað árið 1974 hugsar til fjölskyldu og vina í fámenna plássinu. Lífið 4.1.2025 07:03
Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Snjóflóðahætta er á Vestfjörðum eftir mikið fannfergi síðustu daga og er vegurinn um Súðavíkurhlíð lokaður. Nokkur snjóflóð féllu á vegi á Vestfjörðum í nótt. Innlent 26.12.2024 19:33
Súðavíkurhlíð opin til 16 Búið er að opna fyrir umferð um Súðavíkurhlíð, en vegna snjóflóðahættu verður veginum lokað aftur klukkan 16 í dag. Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu. Innlent 26.12.2024 14:18
Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Snjóflóðahætta er á Vestfjörðum en nokkur snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíðina í nótt og lokaðist vegurinn um hlíðina. Þung færð er víða enn um landið þó jólaveðrið sem hefur verið að hrjá landsmenn sé að mestu gengið niður. Þá er Öxnadalsheiði enn lokuð og óvíst hvort það takist að opna fyrir umferð um hana í dag. Innlent 26.12.2024 12:26
Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Eitt lítið snjóflóð féll niður í Raknadalshlíð í morgun. Vegur að Patreksfirði er lokaður. Innlent 23.12.2024 10:14
Barst með snjóflóði út í sjó og fékk hjartaáfall á tíu metra dýpi Sæmundur Gíslason, sautján ára sjómaður, lifði af tvö mannskæð snjóflóð í Neskaupstað 20. desember 1974. Þá fórust tólf manns. Lífið 20.12.2024 09:01
Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Skipað hefur verið í rannsóknarnefnd vegna snjóflóðsins í Súðavík í janúar árið 1995. Nefndinni er meðal annars ætlað að varpa ljósi á hvernig snjóflóðavörnum var háttað, almannavarnaaðgerðir í aðdraganda og kjölfar flóðsins og eftirfylgni stjórnvalda. Innlent 26.11.2024 10:30
Þetta reddast eða hvað? Frasinn í yfirskrift greinarinnar er ákaflega mikið notaður, meðvitað og ómeðvitað, í íslensku þjóðfélagi og hafa nokkrar greinar birst með sömu eða svipaðri yfirskrift síðustu vikur og mánuði. Ekki er hlustað á varnaðarorð eða ábendingar, vegna þess að þetta kemur ekki frá réttum aðila, telst vera óþarf kvabb, fyrir hendi er skortur á framsýni og víðsýni eða að einhver annar á að borga. Skoðun 15.8.2024 23:30
Óvissuástandi aflýst fyrir norðan og austan Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið aflýst á Austfjörðum og Norðurlandi. Innlent 9.4.2024 08:22
Öllum rýmingum aflétt á Austurlandi Hættustigi og rýmingum vegna snjóflóðahættu á Seyðisfirði hefur verið aflétt. Rýmingar sem gripið var til á Austurlandi hafi því verið aflétt að fullu. Óvissustig vegna snjófljóðahættu er enn í gildi á Austfjörðum. Innlent 8.4.2024 15:41
Aflétta rýmingu í Neskaupstað en ekki Seyðisfirði Búið er að aflétta hættustigi og rýmingu í Neskaupstað. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að úrkomulítið sé orðið í Norðfirði, bloti kominn í snjóinn og að lítill snjór sé í neðri hluta hlíða. Veður 8.4.2024 09:12
Endurmeta rýmingar í fyrramálið Rýmingar á merktum svæðum á Seyðisfirði og í Neskaupstað vegna snjóflóðahættu eru enn í gildi. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið. Innlent 7.4.2024 21:44
Rýma svæði á Seyðisfirði og Neskaupstað vegna snjóflóðahættu Veðurstofa Íslands hefur eflt til rýminga á tveimur svæðum á Seyðisfirði og einu á Neskaupstað frá klukkan tíu í kvöld vegna snjóflóðahættu. Innlent 6.4.2024 18:24
Óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum Það hefur verið óvenjumikið af snjóflóðum af mannavöldum síðustu daga. Um páskana og fyrir páska snjóaði mikið og blés í hvössum norðaustanáttum með þeim afleiðingum að mikill snjór safnaðist til fjalla. Vindflekar hafa byggst upp í flestum viðhorfum og veikleikar þróast innan snjóþekjunnar. Innlent 4.4.2024 23:39