Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 40 ›
Framsókn hringi nú í allar auglýsingastofurnar „Þú getur rétt ímyndað þér hvort Framsóknarflokkurinn sé ekki að hringja í allar auglýsingastofurnar núna. Hvaða slagorð komið þið með fyrir okkur til að bjarga þessu. Það eru fundir hjá VG og Sjálfstæðisflokkurinn er bara að vona að þetta leysist fram til 30. nóvember. Þetta verða áhugaverðir dagar framundan“ Innlent 13.10.2024 19:33
Framsóknarflokkurinn fundar í kvöld Þingflokkur Framsóknarflokksins fundar klukkan átta í kvöld til að bregðast við ákvörðun Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra en hann tilkynnti í dag að stjórnarsamstarfinu yrði slitið og boðað yrði til kosninga í nóvember. Þetta staðfesti Ingibjörg Ólöf Isaksen, þinflokksformaður Framsóknarflokksins, í samtali við Vísi. Innlent 13.10.2024 19:00
Brotthvarf Katrínar hafi verið dauðadómur samstarfsins „Upphafið að þessu öllu saman var þegar að Katrín labbaði frá þeim. Það var eiginlega dauðadómur þessarar ríkisstjórnar. Það eru allt aðrar áherslur sem koma með þessum nýja formanni Vinstri grænna. Hún með sín þrjú prósent heldur virkilega að hún sé með dagskrávaldið og ætlar að ákveða kosningar og ég veit ekki hvað og hvað.“ Innlent 13.10.2024 17:44
Viðbrögð landsmanna: „Er hægt að kaupa flugelda?“ Ýmis konar viðbrögð berast frá landsmönnum vegna stórtíðinda dagsins um að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar væri sprungin. Vísir tók saman það helsta af samfélagsmiðlum. Innlent 13.10.2024 17:41
„Mér er létt að við séum búin að taka ákvörðun um að slíta” Utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins segist vera létt yfir því að búið sé að taka ákvörðun um að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu. Þetta skrifar Þórdís í færslu á Facebook nú fyrir stundu. Innlent 13.10.2024 17:10
Blöskrar ákvörðun Bjarna og segja hana heigulshátt „Ungu Framsóknarfólki blöskrar ákvörðun formanns Sjálfstæðisflokksins um að slíta ríkisstjórnarsamstarfi á þessum tímapunkti og leitast við að ganga til kosninga í nóvember. Okkur þykir þetta heigulsháttur, þetta er gert með hagsmuni hans flokks í huga umfram hagsmuni þjóðarinnar.“ Innlent 13.10.2024 17:09
„Loksins tækifæri fyrir þjóðina“ „Þetta er fyrst og fremst loksins tækifæri fyrir þjóðina. Það er jákvætt að fólkið sé aftur að fá valdið í sínar hendur, þannig við erum bara einbeitt í því að bjóða upp á nýtt upphaf fyrir fólk með Samfylkingunni.“ Innlent 13.10.2024 17:02
Taldi þingrof og kosningar ekki vera næst á dagskrá Formaður Vinstri grænna er hugsi yfir þeirri stöðu sem upp er komin í stjórnmálunum eftir að forsætisráðherra tilkynnti um að hann vilji rjúfa þing og boða til kosninga. Þá sé það umhugsunarefni fyrir Sjálfstæðisflokkinn að þetta sé í annað sinn sem stjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar heldur ekki út kjörtímabilið. Ákvörðun Bjarna hafi því komið sér á óvart. Innlent 13.10.2024 16:57
„Framkoma Bjarna kom svolítið flatt upp á mann“ Það kom flatt upp á Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformann Pírata, að Bjarni Benediktsson hafi boðað að þing verði rofið og boðað til kosninga með þeim hætti og hann gerði í dag. Hins vegar fagnar hún því að ríkisstjórnin sé sprungin. Innlent 13.10.2024 16:43
Leggur fram tillögu um þingrof og kosningar í nóvember Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur upplýst formenn Framsóknar og Vinstri grænna um að hann muni leggja fyrir forseta Íslands tillögu um þingrof og alþingiskosningar í nóvember. Bjarni mun funda með forseta Íslands klukkan níu í fyrramálið. Innlent 13.10.2024 15:40
Ríkisstjórnin sprungin Bjarni Benediktsson forsætisráðherra Íslands tilkynnti á blaðamannafundi í dag að hann hefði ákveðið að rjúfa þing og boða til kosninga í lok nóvember. Hann ætlar sér sjálfur að vera áfram formaður og gerir ráð fyrir því að ríkisstjórnin starfi fram að kosningum. Bjarni fer á fund Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, klukkan níu í fyrramálið. Innlent 13.10.2024 14:51
Hægt að hafa vinnufrið „ef engin er vinnan“ Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir flokkinn ekki geta horft framhjá yfirlýsingu Vinstri grænna um að ákveðin mál stjórnarsáttmálans muni ekki klárast. Það sé vissulega hægt að hafa vinnufrið á meðan vinnan sé engin. Innlent 13.10.2024 12:22
Þurfa að læra að lifa með takmörkunum vegna jarðhræringanna Formaður framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur segir að fólk þurfi að læra að lifa með þeim takmörkunum sem jarðhræringarnar á Reykjanesi setja á sama tíma og unnið sé að því að auka aðgengi að bænum. Tillögur um það verða kynntar á allra næstunni. Innlent 13.10.2024 11:35
Þetta er búið. Kjósum! Það er stundum sagt að vika sé langur tími í pólitík. Þessa pólitíska mælieining hefur samt eiginlega öðlast nýja merkingu í þeim feigðardansi sem stigin er í stjórnarráðinu dag og nótt, viku eftir viku. Við takmarkaða hrifningu landsmanna. Skoðun 13.10.2024 08:02
Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, birti í dag færslu á Facebook þar sem hún tjáði sig um mál Yazan Tamimi og að félags- og vinnumarkaðsráðherra hafi hringt í ríkislögreglustjóra í tengslum við málið. Hún eyddi færslunni nokkrum klukkutímum eftir birtingu þegar hún vakti hörð viðbrögð í athugasemdakerfinu. Innlent 12.10.2024 20:32
Of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins gerir ráð fyrir því að Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins hafi óskað eftir umboði flokks síns til þess að slíta samstarfi ríkisstjórnarinnar á fundi þingflokksins í Valhöll í gær. Í ljósi yfirlýsinga innan úr VG væri of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram samstarfinu. Innlent 12.10.2024 15:01
„Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Félags- og vinnumarkaðsráðherra segist aðeins hafa hringt í ríkislögreglustjóra til þess að afla upplýsinga nóttina sem senda átti Yazan Tamimi og fjölskyldu úr landi. Hann hafi ekki farið fram á að ríkislögreglustjóri stöðvaði brottflutninginn. „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra,“ segir hann. Innlent 12.10.2024 13:57
Ríkisstjórn sem situr áfram fyrir sig, ekki þig Til núverandi stjórnarsamstarfs var stofnað á grundvelli pólitískrar inneignar Katrínar Jakobsdóttur, þáverandi formanns Vinstri grænna. Um það efast sennilega enginn sem leyfir sér að horfa á stöðu mála af sanngirni og raunsæi. Skoðun 12.10.2024 13:32
Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest „Ef hinir stjórnarflokkarnir treysta sér ekki til að standa við og vinna að stjórnarsáttmálanum verður það að koma fram á allra næstu sólarhringum,“ segir formaður Framsóknarflokksins. Innlent 12.10.2024 11:40
Ríkisstjórnin á hengiflugi Formenn stjórnarflokkanna munu að öllum líkindum nota dagana fram að reglulegum ríkisstjórnarfundi á þriðjudag til að ræða óróleikann í stjórnarsamstarfinu. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði eftir skyndifund þingflokks Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í gær að afstaða Vinstri grænna til frekari breytinga á útlendingalögum væri „vandamál.“ Innlent 12.10.2024 11:10
Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins vill að allir þeir sem koma að landmærum Íslands til að sækja um hæli verði tafarlaust sendir til baka. Þeir missi jafnframt réttinn til að sækja um vernd á Íslandi. Þá væri ekki hægt að ætlast til að Íslendingar aðlagi sig að menningu og siðum þeirra sem hingað flytja, heldur verði fólk sem vilji búa hér að aðlaga sig að íslensku samfélagi. Innlent 12.10.2024 08:02
Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs „Ég les nú í þetta að ef við notum líkingu frá jarðeldunum á Reykjanesi að þá er augljóst, og það má öllum vera augljóst, að það er að safnast meira og meira fyrir í kvikuhólfið en hins vegar hvenær gýs, er ómögulegt að segja. Það er hratt landris sem mun enda með gosi.“ Innlent 11.10.2024 23:51
Netverjar keppast við að tjá sig um fundinn „Eftir mikið haverí verður stærsta fréttin úr Valhöll þennan sólarhringinn hvort MR eða Versló vinnur ræðukeppni.“ Innlent 11.10.2024 21:14
Berum brjóstin Í þessum mánuði er bleikur október, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Því er viðeigandi að ræða brjóstakrabbamein og mikilvægi forvarna gegn því. Skoðun 11.10.2024 19:31
Hvers vegna ekki að kjósa strax? Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins sagði fyrir síðustu kosningar að öllu máli skipti hvort eftir kosningar tæki við sundurlaus samtíningur margra flokka eða öflug ríkisstjórn sem gæti tekist á við stór verkefni og hefði burði til að leysa áskoranir til framtíðar. Skoðun 11.10.2024 19:03
„Meðvituð um að það eru veikleikar í stjórnarsamstarfinu“ „Við erum auðvitað að leggja okkar mat á stöðu flokksins og okkar mat á stöðu stjórnarsamstarfsins sem að margir segja að standi veikt og við erum meðvituð um að það eru veikleikar í stjórnarsamstarfinu. Okkar verkefni er að auðvitað að ná árangri í okkar málaflokkum fyrir þjóðina. Það er eðlilegt að við ræðum það þegar það er spenna í samstarfinu eins og allir sjá að hafi verið og getur oft gerst í aðdraganda kosninga.“ Innlent 11.10.2024 18:18
Þurfi ekki skarpskyggni til að sjá krísuástandið „Það er krísuástand á stjórnarheimilinu. Það blasir við okkur. Það þarf ekki mikla skarpskyggni til að sjá það,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, í samtali við fréttastofu. Innlent 11.10.2024 16:41
Sjálfstæðisflokkurinn tilbúinn í kosningar Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir alla stjórnmálamenn og -flokka ávallt eiga að vera tilbúna í kosningar. Hún vill meina að Sjálfstæðisflokkurinn sé tilbúinn í kosningar. Innlent 11.10.2024 16:37
Efla Hagstofuna í kjölfar talnaruglsins Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur skipað nefnd sem skila á tillögum um hvernig megi efla Hagstofu Íslands sem miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar í landinu. Innlent 11.10.2024 14:13
Hundalógík ríkisstjórnarinnar í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er áformað að skerða framlag ríkisins til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóðanna á næsta ári og fella það síðan alveg niður. Skoðun 11.10.2024 14:02