Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 37 ›
Leitt ef ríkisstjórn er ekki treystandi í kjarasamningsviðræðum Forseti ASÍ segir áríðandi að frumvarp innviðaráðherra um bætta stöðu leigjenda verði samþykkt fyrir þinglok. Þingmaður Pírata, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, segir frumvarpið fast í nefnd því ríkisstjórnin geti ekki komið sér saman um þinglok. ASÍ skorar á Alþingi að ljúka málinu fyrir þinglok. Innlent 14.6.2024 13:05
Útlendingafrumvarpið hefur verið samþykkt Útlendingafrumvarp Guðrúnar Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra hefur verið samþykkt á Alþingi. Atkvæðagreiðslunni lauk fyrir skemmstu. Innlent 14.6.2024 12:07
Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Andrés Ingi Jónsson gerði, í umræðu um atkvæðagreiðslu í útlendingamálinu, athugasemd við að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, væri með lífverði í þinghúsinu. Innlent 14.6.2024 11:43
Vill styðja vantrauststillögu komi hún fram Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar steig í pontu í dagskrárliðnum störf þingsins og lýsti því yfir að ef fram kæmi vantrauststillaga frá Miðflokknum á hendur Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra þá myndi hann styðja þá tillögu heilshugar. Innlent 14.6.2024 10:49
Miðflokksmenn íhuga að leggja fram vantrauststillögu Þingflokkur Miðflokksins er með það til skoðunar hjá sér að leggja fram vantrauststillögu gegn Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra vegna ákvarðanatöku hennar um hvalveiðar Innlent 14.6.2024 06:45
Frumvarp um bætta stöðu leigjenda strandar hjá ríkisstjórn Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir þingkona Framsóknarflokksins segir það stefnu velferðarnefndar að ljúka meðferð á frumvarpi innviðaráðherra um húsaleigulög fyrir þinglok. Frumvarpið hefur það markmið að bæta réttarstöðu leigjenda. Þingmaður stjórnarandstöðu segir málið stranda á ríkisstjórninni sjálfri. Þau geti ekki komið sér saman um hvernig eigi að ljúka þingi og það tefji þetta mál, eins og önnur. Innlent 14.6.2024 06:45
Ert þú í tengslum? Gott að eldast er aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk sem byggir á nýrri hugsun í þjónustu við þennan stækkandi hóp í samfélagi okkar. Áætlunina fékk ég samþykkta á Alþingi í fyrra. Með henni er leitast eftir að breyta og bæta þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að gera hana einstaklingsmiðaðri. Jafnframt er áhersla lögð á andlega, líkamlega og félagslega heilsueflingu en með virkni og félagslegri samveru er stuðlað að heilbrigðri öldrun. Skoðun 13.6.2024 15:00
Sundrung á stjórnarheimilinu að koma upp á yfirborðið Deila dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra um starfshætti lögreglu og netsölu áfengis er til marks um ósætti á stjórnarheimilinu að sögn Eiríks Bergmanns, prófessors í stjórnmálafræði. Innlent 13.6.2024 12:11
„Forsætisráðherra með dólg og svo rokinn úr salnum í fýlu“ Þingfundur hófst nú klukkan 10:30 og byrjaði með látum í umræðu um fundastjórn forseta. Þingmenn stjórnarandstöðunnar komu upp í pontu hver á fætur öðrum og auglýstu eftir fjárlagafrumvarpinu. Innlent 13.6.2024 11:25
Mikilvægt að ómenningu sé ekki sýnt umburðarlyndi Diljá Mist Einarsdóttir þingkona Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi til dómsmálaráðherra varðandi heiðurstengt ofbeldi og umfang þess á Íslandi. Hún segir tilefnið vera ljótt mál um ofbeldi innan palestínskrar fjölskyldu á Suðurnesjum sem virðist vera heiðurstengt. Innlent 13.6.2024 10:54
Willum blandar sér í málið og útskýrir bréfið Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur nú blandað sér í umræðu ráðherra um netsölu áfengis með tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem hann fer yfir bréfið sem hann sendi Sigurði Inga Jóhannssyni fjármálaráðherra fyrr í þessum mánuði. Bréfið varð til þess að Sigurður Ingi sendi lögreglu erindi um málið. Innlent 13.6.2024 10:50
Flóttamannastraumurinn renni þangað sem stærstu glufurnar finnast Dómsmálaráðherra fagnar því að boðaðar séu veigamiklar breytingar á útlendingalöggjöf í áraraðir. Í eldhúsræðu sinni sagði hún málefni útlendinga eru viðkvæman málaflokk en hún hræðist ekki vegferðina sem er fram undan í útlendingamálum. Innlent 12.6.2024 22:43
„Vinstri vængurinn er ekki brotinn, en hann er laskaður“ Eva Dögg Davíðsdóttir þingkona Vinstri grænna sagði í ræðu sinn í eldhúsdagsumræðum á þingi í kvöld mikilvægt að verja vinstrið og koma í veg fyrir skautun. Hún ræddi tímann og mikilvægi ákvarðana sem teknar eru í nútíð fyrir framtíð. Innlent 12.6.2024 21:45
„Virðist ætla að verða nokkuð afkastamikið þing“ Lokasprettur þingsins er hafinn með tilheyrandi eldhúsdagsumræðum sem fara fram í kvöld. Forsætisráðherra segir stefna í nokkuð afkastamikið þing. Innlent 12.6.2024 20:20
Ríkisstjórnin hafi sett efnahag venjulegs fólks á hvolf Formaður Samfylkingarinnar heitir því að flokkurinn muni endurheimta og tryggja efnahagslegan stöðugleika á Íslandi, nái flokkurinn í ríkisstjórn. Í eldhúsdagsræðu sinni í kvöld sagði hún ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa sett efnahag venjulegs fólks á hvolf, en Samfylkingin hafi getuna til að rétta úr kútnum. Innlent 12.6.2024 19:59
„Það að sá sem fer með fjárveitingarvaldið standi að þessu er sérstaklega ámælisvert“ Framkvæmdastjóri netverslunar með áfengi segir óeðlilegt að pólitískir valdhafar reyni að hafa áhrif á sakamálarannsóknir og vitnar þar í bréf sem fjármálaráðherra sendi lögreglu í gær. Dómsmálaráðherra sendir fjármálaráðherra kaldar kveðjur vegna málsins. Innlent 12.6.2024 19:31
Guðrún vill lagabreytingar ekki pólitísk afskipti Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir mjög mikilvægt og hollt að minna stjórnmálamenn og alla sem vinna í stjórnmálum á það að meðferð sakamála geti aldrei lotið pólitískum afskiptum. Það segir Guðrún um yfirlýsingu sína sem birtist á vef stjórnarráðsins um það sama. Innlent 12.6.2024 19:22
Biðla til stjórnvalda að klára málið Konur segja stjórnvöld hafa sýnt þeim algjört tómlæti í næstum tvö ár þrátt fyrir að opinber greinargerð sýni að þær voru beittar alvarlegu ofbeldi á meðferðarstofnun sem unglingar. Þær segja að vistin þar hafi skilið eftir djúp sár og margar þeirra glími enn við afleiðingarnar. Stjórnvöld þurfi að viðurkenna mistökin og bera ábyrgð. Innlent 12.6.2024 19:00
Fjármálaráðherra segist ekki hafa hvatt til sakamálarannsóknar Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra segist ekki vera að hvetja til sakamálarannsóknar á fyrirtækjum sem flytji inn áfengi og selji á Netinu, með bréfi sínu til Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Dómsmálaráðherra gefur í skyn að með bréfinu hafi Sigurður Ingi haft pólitísk afskipti af störfum lögreglunnar. Innlent 12.6.2024 17:46
Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður, svokallaðar eldhúsdagsumræður, fara fram á Alþingi í kvöld og hefjast klukkan 19:40. Innlent 12.6.2024 17:30
Pólitísk afskipti ráðherra tilefni til alvarlegra áhyggja Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir aðgerðir Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra og Sigurðar Inga Jóhannssonar fjármálaráðherra gagnvart íslenskum fyrirtækjum tilefni til mikilla áhyggja. Innlent 12.6.2024 16:54
Dómsmálaráðherra skammar fjármálaráðherra fyrir afskipti Dómsmálaráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem kemur fram að ráðuneyti stjórnarráðsins og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eigi ekki að hafa afskipti af því hvort eða hvernig mál séu tekin til rannsóknar sem sakamál. Innlent 12.6.2024 15:08
Áfengissalar kvarta undan afskiptum ráðherra af lögreglu Sante ehf., sem heldur úti netverslun með áfengi, hefur sent kvörtun til Umboðsmanns Alþingis þar sem kvartað er undan „óeðlilegum pólitískum afskiptum“ fjármála- og efnahagsráðherra af lögreglurannsókn. Innlent 12.6.2024 14:06
Leyfið til að drepa langreyði - óforsvaranleg ákvörðun Þann 1. júní var gert opinbert að skýrsla MAST yfir hvalveiðitímabilið 2023 sýndi ekki fram á tölfræðilega marktækan mun frá árinu 2022 þegar dauðatími hvala var metinn „óásættanlegur“ og fagráð um velferð dýra sem starfar á vegum MAST komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri til mannúðleg leið til að drepa stórhveli. Það hefði átt að vera nóg til að binda enda á alla von um endurnýjað veiðileyfi. Skoðun 12.6.2024 14:01
Bjarkey verði að sæta ábyrgð Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir matvælaráðherra hafa viljandi gert Hval hf. ókleift að veiða langreyðar í sumar. Hún telur að fyrirtækið fari í mál við ríkið og að borgarar megi ekki sætta sig við það að ráðherrar brjóti lög. Innlent 12.6.2024 13:23
Á þriðja tug mála bíða afgreiðslu og óvissa um frestun þingfunda Forseti Alþingis er vongóður um að samkomulag takist á næstu sólarhringum um afgreiðslu mála fyrir þingfrestun. Rúmlega tuttugu mál væru það langt komin að þau ættu að ná afgreiðslu. Hins vegar væri ekkert því til fyrirstöðu að funda lengra inn í júnímánuð ef á þyrfti að halda. Innlent 12.6.2024 11:52
Forsendur ríkisstjórnarinnar hafi verið slegnar af borðinu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir endurnýjaða ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafa lagt áherslu á mál sem Miðflokkurinn hafi verið búinn að hamast á þar á undan. Ríkistjórnin sé síðan ekki búin að gera neitt í þessum málum. Innlent 12.6.2024 09:08
Yrðu stórtíðindi í íslenskum stjórnmálum ef VG dytti út af þingi Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði segir miklu líklegra að Vinstri græn komist yfir fimm prósenta þröskuldinn í næstu kosningum en að þau geri það ekki. Í nýjustu könnunum mældist flokkurinn með sögulega lágt fylgi. Tilkynnt var fyrir helgi að flýta ætti landsfundi flokksins. Ólafur fór yfir stöðuna í stjórnmálum á Íslandi í Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 11.6.2024 23:39
Bjarni ferðaðist um Malaví með vélinni sem fórst Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir það óhugnanlega tilfinningu að hugsa til þess að hann hafi aðeins fyrir nokkrum vikum ferðast innanlands í Malaví í sömu flugvél og varaforseti landsins, Saulos Chilima, var í þegar hann, og níu aðrir, létust í flugslysi í gær. Innlent 11.6.2024 22:47
„Þetta eru engar eðlilegar eða venjulegar dýraveiðar“ Matvælaráðherra hefur sætt gagnrýni fyrir ákvörðun sína um að heimila hvalveiðar úr mörgum ólíkum áttum. Sigursteinn Másson stjórnarmaður í Dýraverndarsambandi Íslands og Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins fóru yfir málið í Kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 11.6.2024 21:01