Styrkir til stjórnmálasamtaka
Styrkjamálið hefur engin áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið Formaður Flokks fólksins segir það ekki hafa nokkur áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið að fjármálaráðherra samstarfsflokksins þurfi að skera úr um hvort að endurgreiða þurfi ríkisstyrki. Hann segir að reynt sé að draga fram „tittlingaskít“ til að kasta rýrð á samstarfið. Innlent 29.1.2025 09:30
Af styrkjum Formaður Framsóknar vill að fram fari rannsókn á ríkisstyrkjum til stjórnmálaflokka enda hefur komið í ljós að fimm flokkar hafa á liðnum árum fengið styrk án þess að vera rétt skráðir. Sigurður Ingi er með þessu að biðja um rannsókn á því hvers vegna ráðuneyti í hans eigin ríkisstjórn blessaði þessa styrki án þess að skráning flokkanna væri rétt. Skoðun 29.1.2025 08:01
Inga iðrast og biðst afsökunar á símtali Inga Sæland félagsmálaráðherra iðrast símtals sem hún átti við skólameistara Borgarholtsskóla og biðst afsökunar á því. Hún segist hvatvís að eðlisfari en verði að átta sig á nýrri stöðu sem ráðherra. Innlent 28.1.2025 19:32
Viðvörunarljós hefðu átt að blikka í ráðuneytinu Fjármálaráðherra segir ljóst að eitthvað hafi farið úrskeiðis þegar stjórnmálaflokkar fengu greitt úr ríkissjóði, án þess að uppfylla skilyrði fyrir slíkum greiðslum. Viðvörunarljós hefðu átt að blikka inni í fjármálaráðuneytinu löngu áður en málið komst í hámæli í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar. Innlent 28.1.2025 13:59
Telur umræðu um styrki flokkanna háværa umfram tilefni Umræðan um mögulega ofgreidd framlög til stjórnmálaflokka er hávær umfram tilefni og tekur ekki nægt mið af kjarna málsins og markmiði laga um gagnsæi. Þetta segir fyrrverandi framkvæmdastjóri Vinstri grænna sem var formaður nefndar sem undirbjó breytingar að lögum um styrki til stjórnmálaflokka. Sjálfstæðisflokkurinn telur sig ekki þurfa að greiða styrki til baka. Innlent 28.1.2025 13:01
„Líta svo á“ að Sjálfstæðisflokkurinn hafi uppfyllt lögin Sjálfstæðisflokkurinn lítur svo á að hann hafi uppfyllt skilyrði laga til þess að fá fjárstyrk frá ríkinu þrátt fyrir að hann hafi ekki verið skráður sem stjórnmálasamtök þegar styrkur var greiddur út árið 2022. Flokkurinn þáði þá 167 milljónir króna úr ríkissjóði. Innlent 28.1.2025 10:17
Af skráningum stjórmálaflokka og styrkjum til þeirra Stuðningsmenn Flokks fólksins og aðrir andstæðingar Sjálfstæðisflokksins, töldu sig heldur betur hafa komist í feitt þegar að fram kom í fjölmiðlum að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fengið útgreiddan styrk frá ríkinu árið 2022, tveimur og hálfum mánuði áður en flokkurinn kláraði að skrá flokkinn með þeim hætti er lög frá árinu 2021 kveða á um. Skoðun 28.1.2025 09:31
Kallar eftir rannsókn og endurgreiðslu á styrkjum til stjórnmálaflokka Formaður Framsóknarflokksins kallar eftir því að ríkisstyrkir til stjórnmálaflokka verði rannsakaðir í kjölfar umfjöllunar um að nokkrir flokkar hafi fengið slíka styrki án þess að uppfylla skilyrði laga. Hann vill að flokkar sem hafa fengið þannig greitt verði látnir endurgreiða styrkina. Innlent 28.1.2025 08:42
Siðapostuli Konan var kosin á þing vegna þess að hún sagðist ætla að tryggja öllum tiltekin lágmarkslaun. Fólkið kaus hana í auðgunarskyni. Allir hefðu átt að vita að loforðið var blekking, því ekki var hægt að efna það. Þetta hefur nú komið í ljós svo hún er „fallin frá“ loforðinu. Skoðun 28.1.2025 07:02
Myndi setja ríkisstjórnina í „algjöra úlfakreppu“ Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segir flokkinn ekki geta endurgreitt greiðslur úr ríkissjóði sem hann hefur fengið undanfarin ár, þrátt fyrir að uppfylla ekki lagaleg skilyrði um skráningu sem stjórnmálaflokkur. Verði flokknum gert að endurgreiða peningana muni flokkurinn fara í þrot. Innlent 27.1.2025 19:26
Þáðu líka styrk án réttrar skráningar Fleiri stjórnmálaflokkar en Flokkur fólksins hafa þegið framlög úr ríkissjóði án þess að uppfylla skilyrði laga um skráningu sem stjórnmálasamtök. Til að mynda þáði Sjálfstæðisflokkurinn 167 milljónir króna árið 2022, rétt áður en skráningu flokksins var breytt. Innlent 27.1.2025 11:32
Almannafé til stjórnmálasamtaka Nú hefur komið í ljós að bæði Flokkur fólksins og Vinstri græn fengu styrki sem eru ætlaðir stjórnmálasamtökum – án þess að flokkarnir væru skráðir stjórnmálasamtök í stjórnmálasamtakaskrá hjá Skattinum. Sem er afdráttarlaust og ótvírætt skilyrði styrkveitingarinnar. Hvað segir stjórnsýslufræðingur í slíku máli? Skoðun 27.1.2025 11:01
Styrkir til Flokks fólksins Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að framlög úr ríkissjóði til stjórnmálaflokka byggjast á lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka nr. 162/2006. Á II. kafla þessara laga voru gerðar breytingar með lögum nr. 109/2021, þar sem fjallað er um „Framlög ríkis og sveitarfélaga til stjórnmálastarfsemi.“ Þar er gerð grein fyrir skilyrðum þess að stjórnmálaflokkar fái úthlutað fé úr ríkissjóði og frá sveitarfélögum. Skoðun 27.1.2025 07:36
Allir starfsmenn VG missa vinnuna seinna á árinu Framtíðin verður að leiða í ljós hvað verður um Vinstri græn og raunar vinstrið í heild sinni að sögn framkvæmdastjóra flokksins. Flokkurinn fær engin fjárframlög frá ríkinu þetta kjörtímabilið. Innlent 25.1.2025 23:02
„Það á auðvitað að fara að lögum“ Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að fara eigi að lögum og að Flokkur fólksins fái ekki 70 milljóna króna styrk úr opinberum sjóðum eins og til stóð, þar sem hann uppfyllir ekki lagaskilyrði til þess. Innlent 24.1.2025 12:31
„Óvandaðir falsfréttamiðlar koma fram við fólk eins og fífl“ Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, svarar gagnrýni Diljár Mistar Einarsdóttur og annarra fullum hálsi og sakar „óvandaða falsfréttamiðla í eigu auðmanna og ákveðinna stjórnmálaafla“ um að koma fram við fólk eins og fífl. Innlent 22.1.2025 21:33
Ætla að breytast í stjórnmálaflokk á fyrsta landsfundinum í sex ár Formaður Flokks fólksins segir að til standi að breyta skráningu flokksins úr félagasamtökum í stjórnmálaflokk á landsfundi í febrúar. Fundurinn verður sá fyrsti hjá flokknum í sex ár. Flokkurinn sé ekki á flæðiskeri staddur þegar komi að peningum. Innlent 21.1.2025 12:17
Flokkur fólksins fengið 240 milljónir þrátt fyrir ranga skráningu Skrifstofa Alþingis hefur staðfest að Flokkur fólksins uppfylli ekki skilyrði fyrir úthlutun fjárstyrkja til stjórnmálaflokka. Flokkurinn hefur þegið 240 milljónir króna þrátt fyrir að vera enn skráður sem „félagasamtök“ í fyrirtækjaskrá. Innlent 21.1.2025 06:27