Bandaríkin
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 334 ›
Bandaríkjamenn opinbera gögn um rannsóknir á uppruna Covid-19 Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem kveða á um að allar upplýsingar sem stjórnvöld vestanhafs búa yfir um uppruna kórónuveirunnar SARS-CoV-2 verði gerðar opinberar. Erlent 21.3.2023 08:27
Víggirtu dómshús eftir að Trump hvatti til mótmæla Lögregluyfirvöld í New York í Bandaríkjunum undirbúa sig nú fyrir það að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, verði hugsanlega veitt réttarstaða sakbornings í ríkinu. Lögreglumenn reistu varnargirðingar við dómshús á Manhattan í dag eftir að Trump hvatti fylgjendur sína til mótmæla. Erlent 20.3.2023 20:44
Handtakið Davíð Það hljómar eins og lélegur brandari að 20 ára afmælisdegi ólögmætrar innrásar í Írak sé „fagnað“ af Alþjóða Stríðsglæpadómstólnum með því að gefa út ákæru á hendur Pútin forseta Rússlands fyrir að flytja um sex þúsund munaðarlaus börn af stríðssvæði. Skoðun 20.3.2023 17:30
Rupert Murdoch er trúlofaður Ástralsk-bandaríski fjölmiðlamógúllinn Rupert Murdoch og kærasta hans Ann Lesley Smith eru trúlofuð. Lífið 20.3.2023 14:27
Spilling og óöryggi plaga Írak 20 árum eftir innrás hinna „viljugu“ Í dag eru 20 ár liðin frá því að 295 þúsund hermenn Bandaríkjanna og „bandalags viljugra“ réðust inn í Írak. Um það bil 200 þúsund almennir borgarar létust, 45 þúsund íraskir her- og lögreglumenn og fleiri en átta þúsund Bandaríkjamenn; hermenn og verktakar. Erlent 20.3.2023 12:31
Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa. Viðskipti erlent 20.3.2023 11:17
Ætlaði að opna fyrir bankandi gesti en var bitinn af krókódíl Karlmaður í Flórída-fylki í Bandaríkjunum var bitinn af krókódíl í lærið er hann opnaði útidyrahurð sína eftir að hafa heyrt þar bank. Hann hlaut ekki lífshættulega áverka. Erlent 20.3.2023 09:09
Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. Erlent 20.3.2023 07:47
Yfirtakan muni líklega róa markaði í Evrópu Íslenskur greinandi segir að yfirtaka UBS á Credit Suisse muni líklega róa markaði í Evrópu en bankinn hafi verið svarti sauðurinn að ákveðnu leyti. Það að kaupverðið sé langt undir markaðsvirði komi ekki á óvart þar sem úlfatími sé á fjármálamarkaði. Bandaríkjamenn þurfi einnig að huga að lagabreytingum vegna veikleika sem komu bersýnilega í ljós í síðustu viku. Viðskipti erlent 19.3.2023 21:28
Grófu undan endurkjöri Carters og spiluðu með líf fimmtíu og tveggja gísla Fyrir rúmum fjórum áratugum tóku Demókratar á vegum Repúblikanans Ronalds Reagans þátt í því að koma í veg fyrir endurkjör Jimmy Carter, þáverandi forseta, með því að spila með líf 52 bandarískra gísla í Íran. Maður sem heitir Ben Barnes viðurkenndi nýverið að hann hefði tekið þátt í þessu verkefni. Erlent 19.3.2023 16:52
Enn einni eldflauginni skotið frá Norður-Kóreu Enn einni eldflauginni var skotið frá Norður-Kóreu í morgun. Að þessu sinni var um að ræða skammdræga eldflaug og var henni skotið til austurs, á haf út frá Kóreuskaganum. Erlent 19.3.2023 10:07
Sögð undirbúa neyðarráðstafanir vegna yfirtöku UBS á Credit Suisse Yfirvöld í Sviss eru sögð undirbúa neyðarráðsstafanir til að flýta fyrir yfirtöku svissneska bankans UBS á Credit Suisse en ríkisstjórnin þar í landi kom saman á neyðarfundi í kvöld. Titringur hefur verið á mörkuðum víða um heim en íslenska fjármálakerfið er sterkt að sögn fjármálaráðherra. Hann hefur litlar áhyggjur af áhrifum, sem gætu þó orðið einhver. Viðskipti erlent 18.3.2023 20:43
Trump segir að hann verði handtekinn Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að hann verði handtekinn á þriðjudaginn. Það verði gert vegna rannsóknar á greiðslum hans til tveggja kvenna í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 18.3.2023 12:40
Biden segir augljóst að Pútín sé sekur um stríðsglæpi Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fagnar því að dómarar Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC) hafi í gær gefið út handtökuskipun á hendur Vladimír Pútín, forseta Rússlands, fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Pútín er sakaður um að bera ábyrgð á því að fjöldi barna hafi verið flutt frá Úkraínu til Rússlands en Biden sagði augljóst að svo væri. Erlent 18.3.2023 09:57
Stjarna úr The Wire látin Leikarinn Lance Riddick, sem gerði garðinn frægan í lögregluþáttunum The Wire, er látinn aðeins sextugur að aldri. Lífið 17.3.2023 19:41
Jóakim og fjölskyldan flytja til Bandaríkjanna Jóakim Danaprins hefur verið ráðinn til starfa á skrifstofu varnarmála í sendiráði Danmerkur í bandarísku höfuðborginni Washington DC. Hann mun flytja vestur um haf í sumar ásamt Mary eiginkonu sinni og yngstu börnum. Lífið 17.3.2023 13:13
Stal þyrlu en brotlenti henni strax Misheppnaður þyrluþjófur reyndi að ræsa fjórar þyrlur á flugvelli í Sacramento í Bandaríkjunum á miðvikudagsmorgun. Honum tókst að ræsa eina þeirra en brotlenti henni um leið og hann tók á loft. Erlent 17.3.2023 10:19
Afstaða annarra óbreytt þrátt fyrir ákvörðun Pólverja Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði í samtali við TV2 í gær að samræður ættu sér stað milli stjórnvalda á Vesturlöndum um þann möguleika að sjá Úkraínumönnum fyrir orrustuþotum. Erlent 17.3.2023 07:58
Bankar sameinast um að bjarga First Republic Nokkrir stórir bandarískir bankar hafa tekið sig saman og sett þrjátíu milljarða dollara inn í bankann First Republic til að forða honum frá falli. Viðskipti erlent 17.3.2023 07:24
Taylor Swift kemur aðdáendum rækilega á óvart Söngkonan Taylor Swift tilkynnti í dag að hún hygðist gefa út fjögur glæný lög á miðnætti í tilefni af tónleikaferðalagi hennar, þar sem hún fylgir eftir plötunni „miðnætti“ (e. Midnight). Lífið 16.3.2023 22:15
Trommarinn sem myrti móður sína látinn Bandaríski trommarinn Jim Gordon er látinn, 77 ára að aldri. Gordon átti farsælan feril sem trommari og lék með mörgum af skærustu stjörnum heims. Síðar fóru geðræn vandamál að gera vart við sig. Hann lét lífið í fangelsi þar sem hann afplánaði dóm fyrir að myrða móður sína. Lífið 16.3.2023 15:04
Tekist á um dánarbú Leonards Cohen Einkaerfingjar kanadíska ljóðskáldsins og tónlistarmannsins Leonards Cohen saka umboðsmann söngvarans um að reyna að ræna dánarbúinu innan frá. Dánarbúið er metið á tæpar 50 milljónir dala og þessa dagana er tekist á um það fyrir dómstólum í Los Angeles. Erlent 16.3.2023 14:01
Fyrsti fundur ráðamanna Japans og Suður-Kóreu í tólf ár Fumio Kishida, forsætisráðherra Japans, og Yoon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu, hittust í morgun og er það í fyrsta sinn sem leiðtogar ríkjanna gera það í tólf ár. Í aðdraganda fundarins samþykktu ráðamenn í báðum ríkjum að taka skref til að binda enda á langvarandi deilur þeirra. Erlent 16.3.2023 12:30
Birtu myndband af þotunni lenda á drónanum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur birt myndband sem sýnir þegar rússneskri herþotu var flogið á bandarískan dróna yfir Svartahafi. Myndbandið sýnir rússneska flugmenn reyna að varpa eldsneyti á drónann og í annarri tilrauninni lendir ein herþotan utan í drónanum svo hreyfill hans skemmist. Erlent 16.3.2023 10:08
Rússar sagðir komnir á staðinn þar sem dróninn brotlenti Rússar eru mættir á staðinn þar sem flygyldi Bandaríkjamanna brotlenti á Svartahafi. Mark Milley, formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna, segir drónann líklega á töluverðu dýpi og að erfitt verði að ná honum upp. Erlent 16.3.2023 07:51
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hóta að banna TikTok Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hótað því að banna samfélagsmiðilinn TikTok ef kínverskir fjárfestar selja ekki hlut sinn í fyrirtæknu. Áhyggjur eru uppi um að gögn fyrirtækisins endi í höndum yfirvalda í Kína. Viðskipti erlent 16.3.2023 07:28
Rússar ætla að sækja drónann í Svartahaf Rússar ætla að reyna að sækja brak bandaríska drónans sem brotlenti í Svartahafi í gær. Bandaríkjamenn segja drónann hafa lent í hafinu eftir að rússneskri herþotu hafi verið flogið utan í hann. Erlent 15.3.2023 15:00
Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. Erlent 15.3.2023 14:20
Bein útsending: Opinbera nýja búninga fyrir tunglferðir komandi ára Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og fyrirtækisins Axiom Space ætla að kynna nýja geimbúninga sem notaðir verða í Artemis áætluninni í dag. Um er að ræða búninga sem geimfarar munu væntanlega klæðast yfirborði tunglsins á komandi árum. Erlent 15.3.2023 14:00
Deilt um markaðsleyfi þungunarrofslyfja í Bandaríkjunum Alríkisdómari í Amarillo í Texas mun í dag hlýða á málflutning í máli sem samtök andstæðinga þungunarrofs hafa höfðað gegn Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna til að fá þungunarrofslyfið mifepristone bannað. Erlent 15.3.2023 10:29