Kosningar 2009
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 16 ›
Geir H. Haarde tekur ábyrgð á FL styrk Fyrrum forsætisráðherrann Geir H. Haarde tekur alla ábyrgð á að Sjálfstæðisflokkurinn veitti styrk FL Group viðtöku í lok desember árið 2006. Þá var Geir formaður flokksins. Hann segir jafnframt í yfirlýsingu að framvkæmdarstjórar flokksins, núverandi og fyrrverandi, beri enga ábyrgð á þessu máli. Innlent 8.4.2009 18:12
Guðlaugur Þór: Ekki inn í fjármálum flokksins „Ég er ekki inn í fjármálum flokksins," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins varðandi þrjátíu milljón króna styrk sem FL Group veitti Sjálfstæðisflokknumi lok desember 2006. Innlent 8.4.2009 18:07
Kjartan vissi ekki um FL styrkinn Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vissi ekki af 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006. Hann heyrði fyrst af styrknum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær og segir málið sér algjörlega óviðkomandi. Innlent 8.4.2009 17:16
Samfylkingin stærst í Kraganum Samfylkingin mælist með mest fylgi flokka í Suðvesturkjördæmi samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Ríkisútvarpið birtir í dag. Innlent 8.4.2009 16:31
Bolli í 17: Trúi ekki að Kjartan hafi samþykkt þetta Ásgeir Bolli Kristinsson, betur þekktur sem Bolli í Sautján, trúir því hreinlega ekki að Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hafi samþykkt styrk frá FL Group upp á 30 milljónir rétt undir lok árs 2006. Innlent 8.4.2009 16:17
FL málið í höndum Bjarna og Þorgerðar Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ræddi 30 milljóna króna styrk FL Group til flokksins í árslok 2006 á miðstjórnarfundi sem haldinn var í dag, en boðað var til fundarins fyrr í vikunni. Innlent 8.4.2009 15:43
Reglum breytt vegna vandræðalegrar stöðu Framsóknarflokksins Með breytingum á samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköpum borgarstjórnar er verið að koma til móts við vandræðalega stöðu Framsóknarflokksins, að mati borgarfulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna. Innlent 8.4.2009 14:54
Varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins hneykslaður á styrk FL Group Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, er hneyksluð á 30 milljón fjárstyrk sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk í lok árs 2006. Innlent 8.4.2009 14:07
Stjórnarskrárfrumvarpið fært til í dagskrá Umdeilt frumvarp forystmanna allra flokka utan Sjálfstæðisflokks um breytingar á stjórnarskránni hefur verið fært til á dagskrá Alþingis. Þetta var niðurstaða fundar þingflokksformanna og forseta Alþingis í hádeginu. Umræða um frumvarpið hefur staðið undanfarna daga og sjálfstæðismenn verið sakaðir um málþóf. Innlent 8.4.2009 14:04
Aldrei heyrt um neitt í líkingu við FL-styrkinn Þorgeir Baldursson fyrrverandi formaður fjármálaráðs Sjálfstæðisflokksins segist aldrei hafa heyrt um styrk sem sé eitthvað í líkingu við þær 30 milljónir króna sem flokkurinn fékk frá FL-Group árið 2006. Þorgeir segist hafa verið hættur þegar umræddur styrkur barst. Vilhjálmur Egilsson núverandi formaður fjármálaráðs segist hafa byrjað eftir að styrkurinn var veittur. Hvorugur þeirra segist vita hver gegndi stöðunni í millitíðinni en fjármálaráð sér um að afla styrkja fyrir flokkinn. Innlent 8.4.2009 13:17
VG með allt uppi á borði Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstri Grænna, segir að flokkurinn hafi ávallt haft bókhald sitt opið. Hægt sé að nálgast endurskoðaða reikninga flokksins á heimasíðu hans aftur til ársins 2003. Reikningar flokksins hafi verið birtir frá því löngu áður en lög um að flokkarnir opni bókhald sitt tóku gildi árið 2007. Upplýst hafi verið um öll framlög umfram hálfa milljón króna. Innlent 8.4.2009 12:09
Samfylkingin ber við trúnaði og neitar að gefa upp helstu styrktaraðila Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar neitar að gefa upp hverjir voru helstu styrktaraðilar flokksins á árinu 2006. Sýna þurfi styrkjendum trúnað. Framlag FL Group til Sjálfstæðisflokksins undir lok þess árs, nam ríflega helmingi af samanlögðum framlögum lögaðila til flokksins árið eftir. Innlent 8.4.2009 12:02
Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að styrk FL Group Sjálfstæðisflokkurinn hafði frumkvæði að því sjálfur að biðja um 30 milljóna króna fjárstyrk frá FL Group. Nokkrir forystumenn flokksins segjast ekki hafa haft hugmynd um umræddan styrk. Innlent 8.4.2009 12:00
Jóhanna skipar starfshóp um siðareglur ráðherra Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur í samræmi við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 17. mars skipað starfshóp sem ætlað er að semja drög að siðareglum fyrir ráðherra í ríkisstjórn Íslands. Páll Þórhallsson, lögfræðingur í forsætisráðuneytinu, er formaður starfshópsins. Innlent 8.4.2009 11:22
Kjör neytenda myndu stórbatna við aðild Íslands að ESB Talsmaður neytenda telur réttindi neytenda lítið breytast þó að aukaaðild Íslands að ESB yrði að fullri aðild. Öðru máli gegni hins vegar um kjör neytenda sem myndu stórbatna við aðild sem og möguleikar íslenskra aðila til þess að bæta stöðu neytenda hérlendis. Innlent 8.4.2009 10:40
Sjálfstæðismenn gagnrýndu forseta Alþingis Sjálfstæðismenn gagnrýndu fundarstjórn Guðbjarts Hannessonar, forseta Alþingis, í upphafi þingfundar í dag. Þingmennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir, Ásta Möller og Pétur Blöndal sögðust öll hafa viljað leggja óundirbúnar fyrirspurnir fyrir ráðherra en sá liður var ekki á dagskrá né sérstök umræða um störf þingsins. Arnbjörg sagði forseta umturna öllum venjum í þinginu með því að hafa hvorugan liðin á dagskrá. Innlent 8.4.2009 10:21
FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn ári eftir risastyrk FL Group styrkti ekki Sjálfstæðisflokkinn árið 2007. Fram kom í fréttum okkar í gærkvöld að félagið lagði þrjátíu milljónir inn á reikning flokksins í lok árs 2006. Frjálsyndi flokkurinn fékk heldur ekki styrk frá FL Group árið 2007. Innlent 8.4.2009 09:34
Skora á stjórnvöld að tryggja sumarannir Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, taka undir þá kröfu stúdenta að háskólar landsins opni dyr sínar til að mæta atvinnuleysi námsmanna í sumar. Framhaldsskólar þurfa sömuleiðis að koma til móts við nemendur sína nú meðan tímabundið atvinnuleysi er mest. Ungir jafnaðarmenn segja að hið opinbera tapar miklum peningum á að bregðast ekki við með þessum hætti. Þá mótmæla Ungir jafnaðarmenn misrétti milli nemenda einkarekinna og opinberra háskóla. Innlent 8.4.2009 09:16
Við höfum reynsluna Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sagði Sjálfstæðisflokkinn bera mikla ábyrgð með innleiðingu frjálshyggju sem þróast hafi í taumlausa græðgisvæðingu og gróðadýrkun, ofurlaun, bruðl og siðleysi. Innlent 7.4.2009 23:15
Þingið þarf að afsala sér valdi tímabundið Þar sem Alþingi hefur gert margar árangurslitlar tilraunir til að breyta stjórnarskránni á síðustu 40-50 árum er nauðsynlegt að taka stjórnarskrárgjafarvaldið tímabundið úr höndum þingsins og færa til þjóðarinnar. Innlent 7.4.2009 23:16
Skuldir sliga heimilin „Það er grafalvarleg staðreynd að 50 til 100 hafa að jafnaði misst atvinnu á hverjum einasta degi síðustu vikur og mánuði,“ sagði Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, sem sagði atvinnuleysi átján þúsund manns óviðunandi og kröfur um róttækar aðgerðir stjórnvalda því eðlilegar. Stuðla yrði að mannfrekum framkvæmdum og huga að fjölbreyttum atvinnutækifærum. Innlent 7.4.2009 23:15
Björn Bjarnason: Hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu „Ég vissi þetta ekki og hefði aftekið þessa ráðstöfun fjár með öllu hefði ég haft pata af henni og séð þetta rétt," segir Björn Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurður út í þrjátíu milljón króna fjárstyrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn veitti styrknum viðtöku þann 29. desember árið 2006, aðeins tveimur dögum áður en lög um hámarkstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. Innlent 7.4.2009 23:23
Árni M: Ég hafði enga hugmynd „Ég hafði enga hugmynd. Ég heyrði þetta bara fyrst í fréttunum áðan," sagði fyrrum fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins, Árni M. Mathíesen, spurður hvort hann hefði heyrt af risaháum styrk FL Group til Sjálfstæðisflokksins í lok desember árið 2006, aðeins þremur dögum áður en lögin tóku gildi um hámarksstyrk fyrirtækja til stjórnmálaflokka. Innlent 7.4.2009 22:10
Sigurður Líndal: Siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög „Það er siðferðislega ámælisvert að hagnýta sér lög sem maður sjálfur átti þátt í að samþykkja, þó þau hafi ekki formlega tekið gildi," segir Sigurður Líndal, lagaprófessor við frétt Stöðvar 2 þar sem sagt var frá því að FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 30 milljónir þann 29. desember 2006, aðeins þremur dögum áður en lög um hámarksstyrki til stjórnmálaflokka tóku gildi. Innlent 7.4.2009 21:38
Vilja afnema verðtryggingu um næstu áramót Guðjón Arnar Kristjánsson segir að Frjálslyndi flokkurinn hafi varað við verðtryggingu lána fyrir kosningarnar 2007. Innlent 7.4.2009 20:55
Þurfum aukna tekjuöflun og aðhald í ríkisrekstri Steingrímur Sigfússon fjármálaráðherra sagði að starfsöm og samhent ríkisstjórn sem tók við 1. febrúar hefði komið miklu í verk eftir að nýfrjálshyggja Sjálfstæðisflokksins hafði beðið skipbrot eftir átján ár. Innlent 7.4.2009 20:43
Hefur áhyggjur af stöðu námsmanna Birkir J. Jónsson segir það grafalvarlegt mál að 50 – 100 manns hafi misst vinnuna á hverjum degi undanfarna mánuði og að 18 þúsund manns séu Innlent 7.4.2009 20:35
Aldrei mikilvægara en nú að kveða á um þjóðareign náttúruauðlinda Jóhanna Sigurðardóttir sagði við eldhúsdagsskrárumræður að ríkisstjórnin hefði ekki tekið við góðu búi en tekist hefði að snúa vörn í sókn Innlent 7.4.2009 20:20
Einungis tveir mæla með samþykkt stjórnskipunarfrumvarpsins Bjarni Benediktsson segir það dapurlegt að síðustu daga á Alþingi hafi ríkisstjórnin reynt að knýja fram breytingar á stjórnarskránni án þess að samstaða væri um þaði á Alþingi í fyrsta skipti í 50 ár. Innlent 7.4.2009 20:12
FL Group styrkti Sjálfstæðisflokk um þrjátíu milljónir FL Group styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjátíu milljónir króna aðeins nokkrum dögum áður en lögum var breytt um hámarksframlög til stjórnmálaflokka. Skattrannsóknarstjóri hefur reikning um þennan styrk meðal annars til rannsóknar. Innlent 7.4.2009 18:34