William & Kate

Fréttamynd

Kjóllinn hennar Kate

Enn er allt á huldu um hver hannar og hvernig brúðarkjóll Kate Middleton verður er hún gengur í það heilaga með Vilhjálmi bretaprins þann 29. apríl næstkomandi. Bæði Sarah Burton, sem hannar fyrir tískuhús Alexander McQueen, og Bruce Oldfield þykja líkleg.

Lífið
Fréttamynd

Konungleg brúðkaupspítsa - kjóllinn úr osti

Eigendur Papa John´s Pizza í Bretlandi fengu til liðs við sig matarlistamann sem gerði mósaíklistaverk úr áleggi sem sýndi brúðhjónin verðandi, Willam prins og Kate Middleton. Konunglega brúðkaupið fer fram þann 29. apríl og hefur gripið um sig eins konar æði í Bretlandi vegna þessa. Fjöldi fyrirtækja hefur reynt að nýta brúðkaupið til að vekja athygli á vörum sínum og þjónustu, og er leið Papa John´s Pizza vægast sagt frumleg. Á pizzunni góðu er brúðarslör Kate gert úr sveppum og kjóllinn hennar úr osti, en fatnaður Williams er búinn til úr salami-pylsu og papriku. Pizzuna þarf að sérpanta.

Erlent
Fréttamynd

Fallegustu prinsessur og prinsar heims

Vefsíðan BeautifulPeople.com fékk yfir hundrað þúsund manns til að velja tíu fallegustu prinsessur heims og kom nokkuð á óvart að Kate Middleton, tilvonandi eiginkona Vilhjálms Bretaprins, þótti fallegri en Díana prinsessa, móðir Vilhjálms.

Lífið
Fréttamynd

Snilldarbrúðkaup sem þú verður að sjá

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá auglýsingu símafyrirtækisins T-Mobile sem fer eins og eldur í sinu um internetið. Um er að ræða sviðsetningu af dansandi brúðkaupi Vilhjálms krónprins og Kate Middleton sem ganga í heilagt hjónaband 29. apríl næstkomandi. Stöð 2 gera þessu brúðkaupi aldarinnar ríkuleg skil. Boðið verður uppá nærri 6 klukkustunda langa útsendingu frá sjálfu brúðkaupinu þar sem fylgst verður grannt með aðdragandanum, fagnaðarlátunum og svo að sjálfsögðu frá athöfninni sjálfri.

Lífið
Fréttamynd

Íslenskt fyrirtæki gerir konunglegt brúðkaupsforrit

Smáforritið The Royal Wedding; Your Personal Guide hefur litið dagsins ljós í netverslun Apple en forritið er gefið út af íslenska sprotafyrirtækinu Locatify. Með forritinu er hægt að fræðast um allt sem viðkemur fyrirhuguðu brúðkaupi Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Um er að ræða samstarfsverkefni nokkurra sérhæfðra fyrirtækja sem leggja fram reynsluríka sérfræðinga, hverja á sínu sviði, að því er fram kemur í tilkynningu. "Með innblæstri og sameinuðum sköpunarkrafti varð til smáforrit um fyrirhugað brúðkaup Kate Middleton and Prince William sem veitir einstaka og gagnvirka upplifun í formi margmiðlunar.“

Innlent
Fréttamynd

Bein útsending frá brúðkaupi aldarinnar á Stöð 2

Vilhjálmur krónprins Bretlands gengur að eiga Kate Middleton föstudaginn 29. apríl. Stöð 2 sýnir beint frá brúðkaupinu auk þess sem sýndir verða nokkrir vandaðir þættir um brúðhjónin, brúðkaupið og undirbúning þess og sögu konunglegra brúðkaupa.

Stöð 2
Fréttamynd

Konunglegt brúðkaup á tveimur stöðvum

"Jú, ég er búin að fallast á að lýsa þessu fyrir Stöð 2. Við erum ekki búin að ákveða öll smáatriði en þetta verður örugglega mjög skemmtilegt,“ segir Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður.

Lífið
Fréttamynd

Talið að áhorfsmet falli

Nú styttist óðum í hið konunglega brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Talið er að allt að tveir milljarðar manna um allan heim muni fylgjast með brúðkaupinu í beinni útsendingu í sjónvarpi eða á netinu. Þetta sagði talsmaður breska forsætisráðuneytisins í samtali við Reuters-fréttastofuna í dag. Um 750 milljónir manna fylgdust með brúðkaupi Díönu og Karls Bretaprins árið 1981, en talið er að áhorfsmet verði slegið.

Erlent
Fréttamynd

Þarf sex hárgreiðslumenn

Hin tilvonandi prinsessa Kate Middleton ætlar ekki að ganga með úfið hár inn kirkjugólfið 29. apríl næstkomandi, því hún hefur ráðið heila sex hárgreiðslumenn til að sjá um hárið sitt þennan merkisdag.

Erlent
Fréttamynd

Tveir milljarðar manna munu horfa á brúðkaupið

Búist er við því að tveir milljarðar manna um allan heim muni verða límdir við sjónvarpsskjái eftir þrjár vikur þegar Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton ganga í það heilaga. Þá er talið að um 500 þúsund manns muni flykkjast út á götur Lundúnaborgar til að berja prinsinn og brúði hans augum.

Erlent
Fréttamynd

Hringlaus Bretaprins

Nú styttist óðum í hið konunglega brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Tímaritið People hefur þó heimildir fyrir því að hinn tilvonandi brúðgumi neiti að bera hring á fingri.

Lífið
Fréttamynd

Uppskriftin leyndarmál

Undirbúningur að brúðkaupi Vilhjálms Prins og Kate Middleton sem fer fram í lok næsta mánaðar er í fullum gangi. Brúðkaupstertan var kynnt í dag en uppskriftin er hins vegar leyndarmál.

Erlent
Fréttamynd

Forsetahjónin ekki boðin

Íslensku forsetahjónunum er ekki boðið til brúðkaups Vilhjálms prins í Bretlandi og Kate Middleton sem fram fer í Westminster Abbey í Lundúnum 29. apríl. Fjölda þjóðarleiðtoga er boðið til athafnarinnar en flestir koma frá ríkjum breska samveldisins eða tengjast konungsfjölskyldunni blóðböndum.

Innlent
Fréttamynd

McQueen tískuhúsið hannar fyrir Middleton

Brúðarkjóllinn sem Kate Middleton ætlar að klæðast þegar að hún gengur upp að altarinu með Vilhjálmi Bretaprins er hannaður af Söru Burton í Alexander McQueen tískuhúsinu. Burton, sem er bresk að uppruna, tók við sem yfirhönnuður hjá fyrirtækinu eftir að

Erlent
Fréttamynd

Elton í brúðkaupið

Sir Elton John hefur staðfest að hann hafi fengið boðskort í brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton og verður á meðal gesta. Elton hafði upphaflega neitað því að hann og eiginmaðurinn, David Furnish, yrðu meðal gesta en hefur nú leiðrétt það. Brúðkaupið verður sem kunnugt er 29. apríl næstkomandi.

Lífið
Fréttamynd

Konunglegur niðurskurður

Stóra málið í Bretlandi er án nokkurs vafa að 1.900 manns fengu um helgina boðskort í brúðkaup þessa áratugar, hjá þeim Kate Middleton og Vilhjálmi Bretaprins.

Lífið
Fréttamynd

Krónprinsparið býður 1900 manns í brúðkaupið sitt

Tilkynnt hefur verið að Vilhjálmur prins og Katrín verðandi eiginkona hans ætli að bjóða 1900 manns í brúðkaupsveislu sína þann 29.apríl næstkomandi. Það er Breska ríkisútvarpið sem greinir frá en engin nöfn hafa verið nefnd. Meira en helmingur gesta eru fjölskyldumeðlimir og vinir.

Innlent
Fréttamynd

Harry verður svaramaður Vilhjálms

Vilhjálmur Bretaprins hefur beðið litla bróður sinn Harry um að verða svaramaður í hinu konunglega brúðkaupi sem stendur fyrir dyrum þegar hann kvænist Kate Middleton.

Lífið
Fréttamynd

Kvikmynd um ástarsamband Vilhjálms og Kate

Bandarísk stjórnvarpsstöð hefur ákveðið að framleiða kvikmynd um ástarsamband Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Þau munu ganga í það heilaga þann 29. apríl næstkomandi og hafa fjölmargir sagt að um brúðkaup áratugarins verði að ræða.

Erlent