Erlent

Slá minjapeninga um konunglegt brúðkaup

Konunglega kanadíska myntsláttan hefur ákveðið að gefa út sérstaka minjapeninga í tilefni af brúðkaupi þeirra Villiams prins og Kate Middleton í Bretlandi.

Um verður að ræða sérútgáfu af 20 dollara kanadískri silfumynt annarsvegar og 25 senta mynt með mynd af hinum komandi brúðhjónum hinsvegar.

Minjapeningar þessir eru einkum ætlaðir söfnurum en forstjóri myntsláttunnar segir að þeir séu einnig einstakt tækifæri fyrir almenning í Kanada að fagna konunglegum tengslum landsins við Bretland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×