Fram náði stigi í lokin í markaleik á móti FH

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
FH-ingar fögnuðu þremur mörkum í Kaplakrika í dag.
FH-ingar fögnuðu þremur mörkum í Kaplakrika í dag. Vísir/Diego

Fram og FH gerðu 3-3 jafntefli í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Alex Freyr Elísson skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á lokamínútunum.

Fram komst yfir í byrjun en FH svaraði með tveimur mörkum í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Fram jafnaði í seinni en FH komst aftur yfir. Alex Freyr tryggði sínum mönnum stigið með sínu öðru marki í leiknum og Fram endaði þar með fjögurra leikja taphrinu sína. Kjartan Kári Halldórsson skoraði tvö mörk fyrir FH.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira