Everton jafnaði metin í uppbótatíma 12. febrúar 2025 21:34 James Tarkowski var hetja Everton þegar hann skoraði jöfnunarmarkið undir lokin. Getty/Carl Recine Liðin gerðu því 2-2 jafntefli í síðasta borgarslagnum á Goodison Park. Miðvörðurinn James Tarkowski jafnaði metin með þrumuskoti þegar allt leit út fyrir að Liverpool væri að vinna leikinn. Myndbandsdómarar voru lengi að skoða markið en það stóð og Everton fagnaði unnu stigi. Svekkelsið var mikið hjá leikmönnum Liverpool sem horfðu þarna á eftir tveimur stigum í baráttunni um titilinn. Fram að jöfnunarmakrinu leit allt út fyrir að Mohamed Salah væru enn á ný að verða hetja Liverpool á þessu tímabili. Hann var bæði með mark og stoðsendingu í leiknum. Salah hefur nú skorað 22 mörk og gefið 14 stoðsendingar í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Þetta var frestaður leikur síðan í desember en um leið síðasti borgarslagurinn á Goodison Park því Everton kveður þennan leikvang eftir tímabilið. Liverpool liðið var allt annað en sannfærandi í þessum mikla baráttuleik og var ekki búið að gera mikið í seinni hálfleiknum þegar Mohamed Salah tók til sinna ráða. Mohamed Salah hafði lagt upp fyrra markið í fyrri hálfleik þegar Alexis Mac Allister jafnaði metin með skalla eftir fyrirgjöf Salah. Everton hafði fengið draumabyrjun þegar Beto skoraði eftir stungusendingu frá Jarrad Branthwaite á 11. mínútu. Everton liðið var betra liðið í seinni hálfleik þar til að Liverpool náði góðri sókn. Curtis Jones átti skot í varnarmann en boltinn datt fyrir fætur Salah sem skoraði. Undir lokin fór miðvörðurinn fram og skoraði glæsilegt mark. Það voru mikil læti í lokin og Curtis Jones, leikmaður Liverpool og knattspyrnustjórinn Arne Slot fengu báðir rautt spjald. Enski boltinn