Leik lokið: Kefla­­vík - Njarð­­vík 99-79 | Meistararnir komnir á blað eftir frá­bæran fjórða leik­hluta

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
diego
vísir/Diego

Íslandsmeistarar Keflavíkur unnu góðan sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík þegar liðin mættust í 2. umferð Bónus-deildar kvenna í körfuknattleik í kvöld. Lokatölur 99-79 eftir frábæran fjórða leikhluta heimakvenna.

Keflavík hafði frumkvæðið lengst af í kvöld en Njarðvík átti gott áhlaup í þriðja leikhluta og gerði leikinn spennandi. Í þeim fjórða náði Keflavík hins vegar vopnum sínum á ný. Njarðvíkurliðið virkaði þreytt og þá fór Thelma Dís Ágústsdóttir á kostum og raðaði niður þriggja stiga körfum.

Keflavík vann leikhlutann 32-14 og leikinn 99-79.

Nánari umfjöllun og viðtöl má lesa á Vísi síðar í kvöld

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira