Willian tryggði Chelsea stig á Anfield

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Chelsea-menn fagna jöfnunarmarki Willians.
Chelsea-menn fagna jöfnunarmarki Willians. vísir/getty
Willian tryggði Chelsea stig gegn Liverpool á Anfield þegar hann jafnaði metin í 1-1 fimm mínútum fyrir leikslok.

Engin breyting varð á stöðu liðanna í ensku úrvalsdeildinni. Chelsea er áfram í 3. sætinu og Liverpool í því fimmta.

Staðan var markalaus í hálfleik en Mohamed Salah kom Liverpool yfir gegn sínum gömlu félögum á 65. mínútu.

Egyptinn fékk þá boltann inn fyrir vörn Chelsea frá Alex Oxlade-Chamberlain og skoraði framhjá Thibaut Courtois, markverði gestanna. Salah er markahæstur í ensku úrvalsdeildinni með 10 mörk.

Chelsea sótti í sig veðrið eftir þetta og Willian jafnaði metin á 85. mínútu, aðeins rúmum tveimur mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður. Fyrirgjöf hans sveif þá yfir Simon Mignolet í marki Liverpool. Lokatölur 1-1.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira