Fréttir
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 334 ›
Vinnuhópar funda eftir hádegi Formenn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins héldu stjórnarmyndunarviðræðum sínum áfram nú fyrir hádegi. Eftir hádegi munu vinnuhópar á vegum flokkanna funda um einstök málefni. Innlent 9.12.2024 12:35
Netsamband komið á Skagaströnd á undan áætlun Viðgerð er lokið á ljósleiðarastrengnum sem tengir Skagaströnd við netið. Viðgerð lauk nokkrum klukkustundum á undan áætlun. Gert var ráð fyrir að henni myndi ljúka um klukkan þrjú en henni lauk rétt fyrir klukkan eitt. Strengurinn fór í sundur vegna vatnavaxta í Hrafná. Innlent 9.12.2024 11:44
Kanna með dróna hvort eldgosinu sé lokið Veðurstofan bíður nú færis til að geta kannað með drónaflugi hvort að eldgosinu sé lokið. Flogið verður með dróna yfir svæðið í dag til að staðfesta. Innlent 9.12.2024 11:40
Viðræðum haldið áfram og rafmagnslaust í Vík Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um stjórnarmyndunarviðræðurnar sem staðið hafa síðustu daga. Innlent 9.12.2024 11:23
Sýrlenska þjóðin á krossgötum: Hver er Abu Mohammed al-Jolani? Abu Mohammed al-Jolani er fyrirferðarmikill þessa dagana enda leiddi skyndisókn hans og bandamanna hans í gegnum varnir Aleppo, Hama og Homs í Sýrlandi til falls einræðisstjórnar sem hafði verið við völd í Sýrlandi í meira en hálfa öld. Þykir hann líklegur til að reyna að mynda nýja ríkisstjórn í Sýrlandi en hvort honum takist það og hvernig sú ríkisstjórn mun líta út er erfitt að segja til um. Erlent 9.12.2024 11:13
Hundruð sækja um aðstoð í aðdraganda jóla Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir jólin erfið mörgum fjölskyldum. Í fyrra hafi samtökin aðstoðað um 1.700 fjölskyldur. Hún segist ekki eiga von á fjölgun í ár en það komi í ljós eftir jól. Fjöldinn geti verið svipaður. Hún segir Íslendinga sem leiti til þeirra oft þá sömu ár eftir ár en að hópur útlendinga taki breytingum. Á morgun byrja samtökin að úthluta jólagjöfum til fjölskyldna sem hafa sótt um til þeirra. Innlent 9.12.2024 10:16
Úthluta þingsætum á morgun Landskjörstjórn kemur saman til fundar á morgun, þriðjudaginn 10. desember, klukkan 11:00 til að úthluta þingsætum á grundvelli kosningaúrslita í kjördæmum eftir alþingiskosningarnar sem fóru fram þann 30. nóvember síðastliðinn. Innlent 9.12.2024 10:02
Fyrsta árið sem fer yfir einnar og hálfrar gráðu múrinn Öruggt er nú að árið sem er að líða verði það hlýjasta í mælingarsögunni samkvæmt evrópskum vísindamönnum. Árið 2024 verður jafnframt það fyrsta þar sem meðalhiti jarðar verður einni og hálfri gráðu yfir meðaltali fyrir iðnbyltingu. Erlent 9.12.2024 09:43
Líklegasta kanslaraefnið heimsótti Kænugarð Friedrich Merz, leiðtogi Kristilegra demókrata, og líklegur eftirmaður Olafs Scholz sem kanslari Þýskalands, kom til Kænugarðs til þess að fullvissa úkraínska ráðamenn um áframhaldandi stuðning í morgun. Úkraínustríðið er efst á baugi í kosningabaráttunni í Þýskalandi. Erlent 9.12.2024 08:53
Róleg nótt hjá björgunarsveitunum þrátt fyrir leiðindaveður Nóttin var fremur róleg hjá björgunarsveitum landsins þrátt fyrir leiðindaveður og vatnavexti. Innlent 9.12.2024 07:54
Bærinn keyrður á varaafli eftir bilun Rafmagnsnotendur í Vík og í Mýrdalnum öllum hafa verið beðnir um að fara sparlega með rafmagnið, en RARIK vinnur nú að því að koma rafmagni á svæðið eftir að bilun varð í aðveitustöð. Innlent 9.12.2024 07:39
Netlaust á Skagaströnd eftir slit Slit hefur orðið á stofnljósleiðarastreng á Skagaströnd og verður því netlaust þar næstu klukkutímana. Innlent 9.12.2024 07:35
Dregur úr vindi og úrkomu með morgninum Lægðir á Grænlandssundi og hæð yfir Skotlandi stýra veðrinu í da gen draga mun úr vindi og úrkomu með morgninum. Veður 9.12.2024 07:12
Grunaður um að kvelja og pína konu dögum saman Kristján Markús Sívarsson er grunaður um að hafa beitt konu miklu ofbeldi á tveggja vikna tímabili á heimili hans. Hann situr í gæsluvarðhaldi á meðan lögregla rannsakar málið. Innlent 9.12.2024 07:02
Hyggur á náðun uppreisnarseggja og afnám sjálfvirks ríkisborgararéttar Donald Trump, fyrrverandi og verðandi Bandaríkjaforseti, segist ætla að skoða það alvarlega að náða þá sem voru sakfelldir fyrir árásina á þinghús Bandaríkjanna 6. janúar 2021, eftir að honum mistókst að ná endurkjöri. Erlent 9.12.2024 06:58
Einn fluttur á slysadeild eftir slys á Höfðabakkabrú Einn var fluttur á slysadeild nú í morgunsárið þegar bílslys varð á Höfðabakkabrú í Reykjavík. Innlent 9.12.2024 06:40
Jay-Z kærður fyrir að nauðga þrettán ára stúlku Tónlistar- og athafnamaðurinn Shawn Carter, betur þekktur undir listamannsnafninu Jay-Z, hefur verið sakaður um að nauðga þrettán ára gamalli stúlku árið 2000. Erlent 9.12.2024 06:34
Hver er Assad? Læknaneminn sem varð að einræðisherra Stjórn Bashar al-Assad í Sýrlandi var steypt af stóli í morgun af uppreisnarmönnum eftir borgarastríð sem hefur geisað þar í þrettán ár. Þar með lauk 24 ára valdatíð hans en jafnframt fimmtíu ára valdatíð Assad-fjölskyldunnar. Erlent 8.12.2024 23:38
„Þetta er búið að valda fólkinu í hverfinu mikilli sorg“ „Út með illsku og hatur inn með gleði og frið,” segir í texta Magnúsar Eiríkssonar við jólasmellinn Gleði og friðarjól. Það sem veitir einum gleði er þó ekki alltaf til þess fallið að skapa friðarjól. Þannig eru nágrannaerjur vegna jólaskrauts fastur liður á aðventunni að sögn formanns Húseigendafélagsins. Íbúi í Laugardal sem er hætt að skreyta vegna deilna við nágranna segir það huggun harmi gegn að nú fái skrautið notið sín á öðrum heimilum. Innlent 8.12.2024 21:32
Bandaríkin gerðu 75 loftárásir gegn ISIS í Sýrlandi Bandaríkjaher gerði meira en 75 loftárásir á skotmörk Íslamska ríkisins í Sýrlandi í dag. Markmið árásanna hafi verið að þurrka út herbúðir ISIS í miðhluta Sýrlands. Erlent 8.12.2024 21:20
Aurflóð rann yfir veginn og honum lokað Aurflóð varð rétt í þessu úr Eyrarhlíð og rann yfir veginn sem liggur um svæðið. Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að loka veginum vegna hættu sem steðjar að vegfarendum. Innlent 8.12.2024 20:12
Góð hjartaðir hljómsveitastrákar í Hveragerði Þeir eru góð hjartaðir fimmtán og sextán ára strákarnir í Hveragerði, sem hafa ákveðið að halda styrktartónleika fyrir „Sjóðinn góða“ á Suðurlandi, sem er fyrir þá sem minna mega sín í jólamánuðinum og yfir jólin. Nafn hljómsveitarinnar vekur sérstaka athygli. Innlent 8.12.2024 20:05
Leiðtogi uppreisnarmanna sé bandamaður Bandaríkja Leiðtogi uppreisnarmanna í Sýrlandi sameinaði mismunandi fylkingar og beið eftir því að athygli Rússlands væri í Úkraínu og athygli Írans í Ísrael til að grípa til skyndisóknar gegn Assad-stjórninni sem væri þá veik án viðvarandi stuðnings sinnar helstu bandamanna. Aðgerðir uppreisnarmanna voru vel skipulagðar. Erlent 8.12.2024 19:58
„Lausamunir eiga ekki að vera lausir á þessum árstíma“ Upplýsingafulltrúi Landsbjargar biðlar til fólks að vera ekki á ferðinni og huga að lausamunum. Björgunarsveitir væru í viðbragðsstöðu víða á landinu og hafi verið nóg um verkefni í dag. Innlent 8.12.2024 19:55
Assad hlaut hæli í Rússlandi af mannúðarástæðum Bashar al-Assad, forseti Sýrlands sem var steypt af stóli í nótt, flýði til Moskvu og fékk þar hæli. Þetta fullyrða miðlar í Rússlandi sem segja Assad og fjölskyldu hans hafa fengið hæli af mannúðarástæðum. Erlent 8.12.2024 18:28
Kaflaskil í Sýrlandi, aftakaveður og nágrannaerjur vegna jólaljósa Rússnesk stjórnvöld veittu Assad Sýrlandsforseta hæli í Rússlandi eftir að uppreisnarmenn steyptu stjórn hans af stóli í morgun. Sýrlendingar víða um heim hafa fagnað falli stjórnarinnar en mikil óvissa ríkir um framtíð stjórnarfars í landinu. Innlent 8.12.2024 18:10
Galið að lán miðist við stýrivexti Seðlabankans „Til að bæta gráu ofan á svart, þá miðast óverðtryggð og allt að því verðtryggð lán á Íslandi að stórum hluta til við stýrivexti Seðlabankans. Í mínum huga er þetta alveg galið. Seðlabankavextir eru sú prósenta sem að fjármálastofnanir fá fyrir að leggja pening inn í Seðlabankann til sjö daga í senn. Vaxtakjör íslenskra heimila, óverðtryggðra og óbeint verðtryggðra vaxta miðast við sjö daga innlán hverju sinni. Það segir sig nokkuð sjálft að þegar þú ert að líta á þessar sveiflur að þá eru miklu meiri sveiflur í skammtíma vöxtum.“ Innlent 8.12.2024 18:09
Yfirlit yfir allar framkvæmdir Samgöngusáttmálans Fólk getur nú kynnt sér allar framkvæmdir við stofnvegi, Borgarlínu og göngu- og hjólastíga á nýrri upplýsingagátt sem heitir Verksja.is Innlent 8.12.2024 16:48
Tveir fluttir með þyrlu eftir bílveltu fyrir austan Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar flutti tvo sem slösuðust í bílveltu í Fagurhólsmýri rétt fyrir hádegi á Reykjavíkurflugvöll og voru þeir fluttir þaðan á Landspítalann. Innlent 8.12.2024 16:20
Jólamánuðurinn „þungur og erfiður“ fyrir margar fjölskyldur Viðbúið er að hátt í tvö þúsund fjölskyldur leiti til Hjálparstarfs kirkjunnar nú fyrir jólin. Jólahátíðin er annasamasti tími ársins hjá stofnuninni en félagsráðgjafi segir ljóst að húsnæðiskostnaður geri fjölskyldum sérstaklega erfitt fyrir nú. Innlent 8.12.2024 14:56