Fréttir
65 66 67 68 69 70 71 72 73 … 334 ›
Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli Eitt barn var útskrifað af gjörgæslu í gær og fjögur liggja þar inni vegna Ecoli sýkingar. Yfirlæknir segist ekki eiga von á að þeim fjölgi mikið sem þurfi að leggjast inn vegna sýkingarinnar. Innlent 31.10.2024 13:01
Fækka áramótabrennum í Reykjavík um fjórar Fækka á áramótabrennum í Reykjavík úr tíu í sex. Erindi þess efnis var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í gær. Þær brennur sem lagt er til að verði lagðar af eru þær sem haldnar hafa verið við Rauðavatn, í Suðurfelli , Laugardal og Skerjafirði. Innlent 31.10.2024 12:58
Þau skipa framboðslista Pírata í kosningunum Píratar hafa sent frá sér samþykkta framboðslista fyrir þingkosningarnar sem fram fara 30. nóvember næstkomandi. Flokkurinn stóð fyrir prófkjöri fyrr í mánuðinum þar ljóst var hverjir myndi skipa efstu sætin á listum flokksins. Innlent 31.10.2024 12:39
Bein útsending: Vítt og breitt um almannavarnamál Árleg ráðstefna almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra verður haldin í dag á milli klukkan 13:00 og 16:15, á Hilton Reykjavík Nordica. Á ráðstefnunni, sem haldin er í þriðja sinn verður eins og áður fjallað vítt og breitt um almannavarnarmál á Íslandi. Sjá má ráðstefnuna í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 31.10.2024 12:32
„Þegar þú liggur yfir þessu dag og nótt þá byrjar þú að þekkja þá“ Sólheimajökulshópurinn sem Sólheimajökulsmálið svokallaða hefur verið kennt við var spjallhópur fólks á samfélagsmiðlinum Signal þar sem árshátíðarferð var skipulögð. Þar var rætt var um að fara á Sólheimajökul. Sá hópur er ekki beinlínis sá meinti glæpahópur sem er grunaður í málinu þó að þeir innihaldi að miklu leiti sömu meðlimi. Þetta kom fram í framburði lögreglumanns í Héraðsdómi Reykjavíkur. Innlent 31.10.2024 12:32
Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta Matvæla- og veitingafélag Íslands, Matvís, hefur verið dæmt skaðabótaskylt vegna eftirlitsheimsóknar á veitingastaðinn Flame í Reykjavík. Fulltrúar stéttarfélagsins bökuðu eigendum staðarins tjón með því að fá starfsfólk staðarins til að hætta í vinnunni. Þó er talið sannað að starfsfólkinu hafi ekki verið greidd laun í samræmi við lög. Innlent 31.10.2024 12:24
Fá greitt 150 þúsund krónum minna en læknar í sömu stöðu Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Fíh, hefur sent inn kæru til Kærunefndar jafnréttismála vegna þess að forstöðuhjúkrunarfræðingar á tveimur sviðum Landspítalans fá greidd um 150 þúsund krónum lægri laun en forstöðulæknar á sömu sviðu. Innlent 31.10.2024 11:40
Matráður segir upp á Mánagarði Matráður leikskólans Mánagarðs þar sem upp kom svæsin E.coli-sýking í síðustu viku hefur sagt upp störfum. Leikskólinn verður lokaður út vikuna. Innlent 31.10.2024 11:40
Listum skilað í Hörpu og lokadagur Norðurlandaráðsþings Í hádegisfréttum förum við í Hörpu þar sem flokkarnir sem bjóða fram til Alþingis skiluðu inn listum sínum fyrir komandi kosningar. Innlent 31.10.2024 11:38
Ekki nauðvörn og fimm ára dómur fyrir manndrápstilraun stendur Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni Skúla Helgasonar sem dæmdur var í fimm ára fangelsi í Landsrétti fyrir tilraun til manndráps með því að stinga mann ítekað með vasahníf. Maðurinn vildi meina að um neyðarvörn hafi verið að ræða og að Landsréttur hefði ekki tekið tillit til þess. Innlent 31.10.2024 11:18
Eitt barn útskrifað af gjörgæslu Eitt barn hefur verið útskrifað af gjörgæslu Landspítalans vegna E. coli sýkingarinnar sem greindist á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Ellefu eru inniliggjandi og enn fjögur á gjörgæslu. Greint er frá á vef RÚV. Rannsókn á E.coli smiti á leikskólanum Mánagarði beinist aðallega að mati sem börnin neyttu þann 17. október. Þá fengu börnin hafragraut, spaghettí og melónur í kaffitímanum. Innlent 31.10.2024 11:09
Ný flaug flaug lengra en áður Yfirvöld í Norður-Kóreu skutu í morgun upp langdrægri skotflaug, sem virðist vera af nýrri tegund, og flaug hún bæði hærra og lengra en aðrar eldflaugar einræðisríkisins hafa áður gert. Erlent 31.10.2024 11:09
Ábyrg framtíð býður bara fram í Reykjavík norður Flokkurinn Ábyrg framtíð hyggst bjóða fram lista í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi þingkosningum. Innlent 31.10.2024 10:34
Leita manns sem skildi eftir sprengiefni á lestarstöð í Berlín Lögreglan í Berlín í Þýskalandi leitar nú manns sem skildi eftir tösku fulla af sprengiefni á lestarstöð og flúði þegar lögreglumenn reyndu að stöðva hann í gær. Enn hefur ekki tekist að bera kennsl á manninn. Erlent 31.10.2024 09:43
Skiluðu meðmælalistum í Hörpu Frestur stjórnmálaflokkanna til að skila framboðslistum sínum til alþingiskosninganna 30. nóvember rennur út klukkan tólf á hádegi. Skila má listum rafrænt eða í Hörpu. Vísir verður í beinni útsendingu úr Hörpu þar sem kemur í ljós hvaða flokkar ná að skila listum. Innlent 31.10.2024 09:25
Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Sigursteinn Másson stjórnarmaður í Dýraverndarsambandi Íslandi, DÍS, segir það ólýðræðislegt og valdníðslu að taka ákvörðun í starfsstjórn um að gefa út nýtt starfsleyfi til hvalveiða. Jón Gunnarsson aðstoðarmaður forsætisráðherra i matvælaráðuneytinu segir umsóknina til afgreiðslu í ráðuneytinu. Það megi ekki tefja afgreiðslu auk þess sem það þurfi að tryggja fyrirtækjunum fyrirsjáanleika. Hann hafi verið enginn síðustu tvö ár. Innlent 31.10.2024 09:10
Sækja hraðar fram í Dónetsk Rússneskar hersveitir hafa gert umfangsmiklar árásir á undanförnum dögum og vikum í suðausturhluta Úkraínu, nánar tiltekið í Dónetskhéraði. Varnarlínur Úkraínumanna virðast hafa gefið verulega eftir og hafa þær fallið saman á einhverjum stöðum. Erlent 31.10.2024 09:02
Lilja Rafney skipar annað sætið á lista Flokks fólksins Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrverandi þingmaður Vinstri grænna, skipar annað sæti á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Eyjólfur Ármannsson þingmaður leiðir listann. Innlent 31.10.2024 08:49
Þau eru í framboði fyrir Sósíalistaflokkinn Sósíalistaflokkurinn birti í gærkvöldi framboðslista sína í öllum kjördæmum. Búið var að tilkynna um flesta oddvita áður. Sanna Magdalena Mörtudóttir er pólitískur leiðtogi flokksins á sviði Alþingis og oddviti í Reykjavíkurkjördæmi suður. Flokkurinn bauð fyrst fram til Alþingis á landsvísu í síðustu kosningum 2021 en náði ekki manni inn. Flokkurinn á tvo menn í borgarstjórn og hefur boðið þar fram tvisvar og náð manni inn. Innlent 31.10.2024 07:46
Élja- og snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri Útlit er fyrir vestan- og norðvestanátt í dag, víða á bilinu átta til þrettán metra á sekúndu. Élja- eða snjókomubakkar sækja að úr vestri og norðri og þeir sem sækja norðan að eru efnismeiri. Veður 31.10.2024 07:22
Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Félag íslenskra heimilislækna hefur sent á félagsmenn sína og stjórnvöld ályktun og tilmæli um að heimilislæknar muni ekki gefa út svokölluð „fit to fly“ vottorð fyrir hælisleitendur sem á að vísa úr landi. Þau telji þau það stríða gegn siðareglum lækna og mannréttindasáttmálum. Þau vilja að reglugerð um vottorðin sé breytt. Innlent 31.10.2024 07:18
Trump lék ruslakarl í Wisconsin Bandarísku forsetaframbjóðendurnir Kamala Harris og Donald Trump voru bæði stödd í Wisconsin ríki í gærkvöldi þar sem þau komu fram á fjöldafundum. Erlent 31.10.2024 07:15
Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Ökumenn þurfa í sumum tilfellum að greiða hátt í helmingi hærra gjald en ella ef þeir vilja fá ökuskírteini sitt á plasti eftir áramót. Gjald á útgáfu stafrænna ökuskírteina verður aftur á móti óbreytt. Innlent 31.10.2024 07:03
Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Ungir umhverfissinnar bjóða á laugardaginn í matarveislu úr rusli og hrekkjavökuhátíð lífvera. Náttúruverndarfulltrúi hjá Ungum umhverfissinnum segir að samtökin vilji gera loftslagsmál heit aftur og draga úr efasemdum. Innlent 31.10.2024 07:03
Frestur til að skila framboðslistum rennur út í dag Frestur til að skila inn framboðslistum til Alþingiskosninga rennur út á slaginu tólf í dag. Í gær bárust þær fréttir frá Landskjörstjórn að búið væri að skila inn 26 listum víðsvegar að af landinu ásamt tilskildum fjölda meðmæla. Innlent 31.10.2024 06:56
Ógnuðu afgreiðslumanni með hníf Tilkynnt var um þjófnað í verslun í miðbæ. Þegar starfsmaður hafi ætlað að ræða við þjófana hafi einn þeirra dregið upp hníf og þeir svo hlaupið burt. Málið er í rannsókn hjá lögreglu en fram kemur í dagbók lögreglu að lögregla telur sig vita hverjir þjófarnir eru. Innlent 31.10.2024 06:43
Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Halda á leit áfram í Valencia á Spáni þar sem hamfaraflóð hófust í fyrradag. Alls eru 95 látin en líklegt er að sú tala eigi eftir að hækka þegar líður á daginn. Mikill fjöldi viðbragðsaðila frá lögreglu, her og björgunarsveitum mun í dag leita að fólki. Tugir eru enn týnd. Erlent 31.10.2024 06:31
Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ Eggert Gunnarsson, dýralæknir og faðir Dags B. Eggertssonar, hefur látið í ljós óánægju sína með orð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, þess efnis að Dagur sé aukaleikari og ekki ráðherraefni flokksins. Innlent 30.10.2024 23:25
„Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Stofnandi Lýðræðisflokksins hafnar því að vera bendlaður við öfgahyggju, og formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn vera að færast til vinstri. Þá þykir formanni Viðreisnar fróðlegt að hlusta á málfutning flokkanna sem best megi lýsa sem „Litla- og Stóra-Miðflokki.“ Innlent 30.10.2024 22:00
Skrekkur í lausu lofti vegna verkfalls: „Þetta er út í hött“ „Það eru allir mjög svekktir yfir þessu, enda er þetta einn stærsti viðburður ársins,“ segir Marta Maier 10. bekkingur og formaður nemendaráðs Laugalækjarskóla. Kennarar skólans hófu verkfallsaðsgerðir í dag og ýmislegt er í lausu lofti í vegna þess, svo sem Skrekksviðburður nemenda. Innlent 30.10.2024 21:57