Fastir pennar

Fjötur eða frelsi

Jónína Michaelsdóttir skrifar

Ég man ekki hvort ég var tólf eða þrettán ára þegar ég kom einhverju sinni hlaupandi upp stigann heima á Langholtsvegi, reif upp hurðina, skellti henni á eftir mér og tjáði mig í miklum ham um ómerkilegheit einnar vinkonu minnar. Mér hefði þótt hún skemmtileg og fín stelpa,en nú hefði mér borist til eyrna hvernig hún talaði um mig. Ég hefði greinilega ekki haft á réttu að standa.

Fastir pennar

Afmörkuð listaverk?

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Kristinn E. Hrafnsson, myndlistarmaður og stjórnarmaður í LHÍ, skrifaði grein í Moggann 8. september þar sem hann átelur þau sem lýst hafa efasemdum um nýbyggingu Listaháskólans á Laugavegi. Hann krefst þess að byggingin sé "glæsilegt mannvirki" og sakar fólk um áhugaleysi, þekkingarskort og leti, segir að þau láti "hjá líða að rýna í formfræði, fagurfræði og hugmyndagrunn byggingarinnar".

Fastir pennar

Mörgum ofbýður

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Ákvörðun Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra um að stefna ljósmæðrafélaginu fyrir félagsdóm vegna fjöldauppsagna er ber vott um mikla hörku í garð hóps sem augljóslega hefur setið eftir meðan aðrir hafa notið góðæris og uppsveiflu síðustu ára.

Fastir pennar

Nei

Þorsteinn Pálsson skrifar

Mesti trúverðugleikavandi ríkisstjórnarinnar á rætur í ólíkum viðhorfum stjórnarflokkanna til þess hvernig skipa eigi peningamálastjórninni til frambúðar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki alfarið horfið frá því mati að krónan geti dugað. Samfylkingin vill þar á móti taka upp evru.

Fastir pennar

Við hvað eru menn hræddir?

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Það er út af fyrir sig gleðiefni að nú glittir í að reglur um skráningu eigna þingmanna líti dagsins ljós. Svo virðist þó sem reglur þessar verði í nokkru skötulíki þegar upp verður staðið.

Fastir pennar

Hvaðan koma peningarnir?

Þorvaldur Gylfason skrifar

Fáar spurningar hafa verið lagðar jafnoft fyrir mig að undanförnu hvar sem ég kem. Danir spyrja: hvaðan komu peningarnir, sem gerðu Íslendingum kleift að kaupa hvert fyrirtækið á fætur öðru í Danmörku? - Magasin du Nord, Illum, Hotel d'Angleterre.

Fastir pennar

Hreyfanlega vinnuaflið

Jón Kaldal skrifar

Íslenskt samfélag er þessar vikur og mánuði að ganga í gegnum merkilega tilraun sem aldrei hefur verið reynd áður hér á landi. Það má kalla hana: Hvernig hegðar hreyfanlegt vinnuafl sér í hnattvæddum heimi?

Fastir pennar

Krókurinn sem beygist

Einar Már Jónsson skrifar

Í Frakklandi hélt agúrkutíðin innreið sína í sumarbyrjun, þegar haldinn var síðasti ríkisstjórnarfundurinn. Við það tækifæri færði Carla Bruni öllum ráðherrunum, þrjátíu og átta að tölu, nýjasta geisladisk sinn „Eins og ekkert hafi gerst", og skýrðu fjölmiðlar frá þessari höfðinglegu gjöf.

Fastir pennar

Beðið eftir bununni

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Frammistöðukvíði getur víða komið fram og átt sér margvíslegar birtingarmyndir. Á útlenskunni nefnist þetta "performance anxiety“ og er gjarnan tengt óvissu manna um eigin getu í bólinu.

Fastir pennar

Vindingar

Þorsteinn Pálsson skrifar

Upplýst hefur verið að gera eigi breytingar á lögum um Ríkisútvarpið ohf. Markmiðið mun vera að takmarka hversu langt sú stofnun má ganga í að niðurgreiða auglýsingar með ríkisstyrkjum. Lengi hefur verið ljóst að Ríkisútvarpið fylgdi ekki réttum leikreglum samkeppnisréttarins. Þegar stofnuninni var breytt í hlutafélag varð þessi skekkja enn meiri en fyrr.

Fastir pennar

Eðli starfa

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, gæti gert nánast hvern sem er að femínista. Haft var eftir honum í Morgunblaðinu á laugardaginn var að ekki ætti að fara eingöngu eftir menntun þegar komi að röðun stétta í launaflokka, heldur eigi "miklu frekar að taka mið af eðli starfa“.

Fastir pennar

Siðareglur á Alþingi

Svanborg Sigmarsdóttir skrifar

Reykjavíkurborg ákvað nýlega að setja á fót nefnd til að undirbúa siðareglur borgarfulltrúa, og er það vel. Hugmyndin um sérstaklar siðareglur fyrir stjórnmálamenn er hvorki ný á nálinni, né séríslensk.

Fastir pennar

Bjallavirkjun er blöff

Jón Kaldal skrifar

Undir lok vikunnar kom fram, flestum að óvörum, að Landsvirkjun hefði áhuga á að stífla Tungnaá og mynda þrjátíu ferkílómetra uppistöðulón norðan friðlandsins að Fjallabaki. Lónið yrði með stærstu stöðuvötnum landsins en áætlað er að Bjallavirkjun, sem það á að þjóna, muni framleiða 46 megavött af orku.

Fastir pennar

Maður fólksins í landinu

Þorsteinn Pálsson skrifar

Orð geta stækkað menn og smækkað eftir atvikum. Orðið stækkaði Sigurbjörn Einarsson biskup. Hann var andans maður tuttugustu aldarinnar. Um það efast fáir. Síst er ofmælt að nafn hans sé við hlið þeirra sem fram til þessa hefur verið skipað á fremsta bekk kirkjusögunnar.

Fastir pennar

Hvað á að gera?

Þorsteinn Pálsson skrifar

Sennilega hefur ádeilan um aðgerðaleysi bitið meir í ríkisstjórnina en flest annað síðustu mánuði. Með því að ríkisstjórnin hefur sannarlega aðhafst sitthvað til þess að bregðast við aðsteðjandi efnahagsvanda er vel skiljanlegt að aðgerðaleysishugtakið hljómi eins og hvellandi bjalla í eyrum forystumanna stjórnarflokkanna.

Fastir pennar

Hver er stefnan?

Björn Ingi Hrafnsson skrifar

Skýrsla forsætisráðherra um efnahagsmál og umræður um hana á Alþingi á þriðjudag var í senn fróðleg og gagnleg við þær erfiðu aðstæður sem nú eru uppi í íslenskum þjóðarbúskap.

Fastir pennar

Svipmynd af ritstjórn

Þorvaldur Gylfason skrifar

Dagbækur Matthíasar Johannessen fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins á vefnum þurfa ekki að koma neinum á óvart, þótt þar sé greint frá einkasamtölum milli manna.

Fastir pennar

Gott skrið

Þorsteinn Pálsson skrifar

Það er nýr háttur á Alþingi að koma saman í septemberbyrjun til að ljúka afgreiðslu óútræddra mála frá liðnu vori. Áður þurfti að byrja slíkar umræður að nýju við upphaf næsta þings. Nú er unnt að taka til við þær þar sem frá var horfið. Þetta losar lítið eitt um þá tímaspennitreyju sem þingumræður festast í á hverju vori.

Fastir pennar

Skothríðin

Einar Már Jónsson skrifar

Vera má að einhverjum finnist undarlegt hve Nikulás Sarkozy forseti skipar mikið rúm á þessum blöðum mínum, en þá er því til að svara að það er nánast ógerningur að skrifa um einhver frönsk málefni þessa stundina, hver sem þau eru, án þess að hann skjóti upp kollinum einhvers staðar í einhverjum línum eða þá á milli þeirra.

Fastir pennar

Beðið eftir Godot

Jón Kaldal skrifar

Á Alþingi í dag mun Geir Haarde forsætisráðherra flytja skýrslu um stöðu efnahagsmála. Það eru örugglega engar ýkjur að segja að fárra framsagna Geirs hafi verið beðið með jafn mikilli eftirvæntingu.

Fastir pennar

Njótið þess að vera til

Jónína Michaelsdóttir skrifar

Sigurhátíðin í miðborg Reykjavíkur 27. ágúst verður lengi í minnum höfð. Gleðin og stoltið yfir afreki íslenska handboltaliðsins í Kína kveikti í hverju hjarta og eldurinn læstist um sál og sinni.

Fastir pennar

Tímaskekkju-tuddaskapur

Auðunn Arnórsson skrifar

Kalt stríð. Þessi uppvaknings-frasi frá síðustu öld tröllreið heimsfréttunum og allri umræðu um alþjóðamál alla síðastliðna viku.

Fastir pennar

Bestu stjórnmálamenn í heimi

Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður skrifaði pistil á heimasíðu sína í síðustu viku þar sem hann velti vöngum yfir því hvort setja ætti stjórnmálamönnum siðareglur en kemst ekki að afdráttarlausri niðurstöðu - er svo sem tilbúinn að skoða það en er ekki alveg viss og sér ýmis vanhöld á því að slíkt sé framkvæmanlegt.

Fastir pennar

Aðgerða enn beðið

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Með skömmu millibili hafa nú forstöðumenn greiningardeilda stóru viðskiptabankanna þriggja birt greinar þar sem fjallað er um stöðu bankanna í íslensku hagkerfi og um leið stefnu stjórnvalda í hagstjórninni. Þungi er í skrifunum.

Fastir pennar

Klám og kvenfrelsi

Jón Kaldal skrifar

Hvenær, hvar og af hverju fólk vill vera nakið er enn einu sinni orðið deiluefni í höfuðborginni.

Fastir pennar

Afreksfólk kostar silfur og gull

Svanborg Sigmarsdóttir skrifar

Mikill fjöldi manns lét ekki súld aftra sér frá því að mæta í miðborgina í gær og hylla ólympíufarana. Afrek landsliðsins í handbolta var það sem trekkti helst að, svo og silfurverðlaunin. Þó má ekki gleyma öðrum afrekum. Það er til dæmis mjög góður árangur að setja Íslandsmet, þrátt fyrir að Íslandsmetin hafi ekki dugað til verðlaunasætis.

Fastir pennar

Olía, skattar og skyldur

Þorvaldur Gylfason skrifar

Sumir skjóta upp kryppu í hvert skipti sem skatta ber á góma. Þar á meðal eru bandarískir repúblikanar með Bush forseta fremstan í flokki (og bráðum John McCain, forsetaframbjóðanda, sem býðst til að halda áfram á sömu braut og Bush): þeir hafa beitt sér mjög fyrir skattalækkun, einkum handa auðmönnum.

Fastir pennar

Leyndardómur árinnar

Einar Már Jónsson skrifar

Fyrir nokkru birtust í gluggum hljómplötuverslana geisladiskar þar sem kínverskur píanóleikari, kona að nafni Zhu Xiao-Mei (framborið: Dzjú Hsjá-Mei) lék seinni bókina af

Fastir pennar

Varnarleikurinn

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Þeir sem komið hafa nálægt hópíþróttum þekkja mikilvægi þess að bæði sé spiluð sókn og vörn. Leikurinn vinnst ekki á varnarleiknum einum saman, en að sama skapi er hætt við að illa fari ef lítið hald er í vörninni.

Fastir pennar

Lýst eftir stefnu í flugvallarmálinu

Steinunn Stefánsdóttir skrifar

Enn er tekinn við nýr meirihluti í Reykjavík, sá fjórði á kjörtímabilinu. Í hvert sinn sem nýr meirihluti hefur tekið við í borginni það sem af er kjörtímabilinu hefur verið beðið með eftirvæntingu eftir stefnu í nokkrum umdeildum málum. Framtíð flugvallarins í Vatnsmýri er eitt þeirra.

Fastir pennar