Formúla 1

McLaren í fyrsta og öðru sæti

Heimsmeistarinn Lewis Hamilton var með besta tíma á seinni æfingu keppnisliða á Búdapest brautinni í dag og félagi hans Heikki Kovalainen var aðeins 47/1000 á eftir honum. Kovalainen var sneggstur á fyrri æfingunni.

Formúla 1

Alonso: Button enn líklegasti meistarinn

Fernando Alonso telur að Jenson Button sé enn líklegasti Formúlu 1 meistarinn í ár, þó Red Bull liðið hafi unnið tvö síðustu mót. Button er með 20 stiga forskot á Sebastian Vettel og Mark Webber sem voru í fyrsta og öðru sæti í síðustu mótum.

Formúla 1

Kovalainen stal senunni í Búdapest

Finninn Heikki Kovalainen á McLaren náði besta tíma á fyrstu æfingu keppnisliða í Búdapest í morgun. Hann náði tímanum í síðasta mögulega hringnum eftir 90 mínútna æfingatíma á brautinni.

Formúla 1

Mark Webber áfram hjá Red Bull

Ástralinn Mark Webber hefur skrifað undir samning við Red Bull um áframhaldandi veru hjá liðinu 2010. Þetta var tilkynnt í dag í Ungverjalandi, en Formúlu 1 verður þar um helgina.

Formúla 1

Dauðaslys rætt í Rásmarkinu

Hið hörmulega dauðaslys í Bretlandi um síðustu helgi verður rætt í Rásmarkinu á Stöð 2 Sport í kvöld. Henry Surtees lést í slysinu, en Kristján Einar Kristjánsson ók með honum í Formúlu 3 í fyrra.

Formúla 1

Brawn bjartsýnn á gott gengi

Ross Brawn, framkvæmdarstjóri Brawn liðsins segir að bíll liðsins hafi verið endurbættur frá síðsta móti og liðið ætli sér stóra hluti í Ungverjalandi um næstu helgi. Brawn liðið er með forystu í stigakeppni ökumanna og bílasmiða.

Formúla 1

Bretar í sjokki vegna kappakstursslyss

Breskir áhugamenn um kappakstur og ökumenn í ýmsum mótaröðum í kappakstri Í Bretlandi eru í sjokki vegna dauðaslyss Henry Surtees á sunnudaginn. Hann lést eftir að dekk úr öðrum bíl sem keyrði á vegg lenti í höfði hans í miðri keppni.

Formúla 1

Vatanen ósáttur við forseta FIA

Finninn Ari Vatnane sem býður sig fram til forseta FIA í október er ósáttur við framgöngu Max Mosley forseta FIA í síðustu viku. Þá sendi Mosley bréf frá sér til aðildarfélaga FIA og lýsti yfir stuðningi við Jean Todt, sem einnig ætlar að bjóða sig fram til forseta.

Formúla 1

Sonur frægs ökumanns fórst í kappakstri

Sviplegt slys varð í Formúlu 2 keppni í Bretlandi í dag, þegar sonur frægs ökumanns lést í keppni. Henry Surtees, 18 ára sonur John Surtees lést eftir að hjól af öðrum bíl skall í höfði hans og hann rotaðist. Bíll hans endasentist á vegg og hann lést af sárum sínum á spítala.

Formúla 1

Ökumönnum Red Bull frjálst að kljást

Þó mikið sé undir hjá Red Bull keppnisliðinu sem hefur unnið tvö síðustu Formúlu 1 mót, þá segir Christian Horner að Mark Webber og Sebastian Vettel sem frjálst að keppa af fullri hörku við hvorn annan. Liðið á góða möguleika á titlum í ár, eftir gott gengi.

Formúla 1

Alonso eygir enn Ferrari sæti 2010

Ferrari vill ná í Fernando Alonso fyrir árið 2010 og skipta honum út fyrir Kimi Raikkönen sem hefur ekki unnið mót síðan í Barcelona 2008. Svo mæla fróðir menn hjá Autosport stærsta Formúlu 1 riti heims, en Toyota hefur boðið Raikkönen starf á næsta ári og Brawn liðið hefur líika borið víurnar í hann.

Formúla 1

Max Mosley hættir sem forseti FIA

Max Mosley sem verið hefur forseti FIA í 16 ár hyggst ekki bjóða sig fram enn eitt kjörtímabilið, en kosið verður í október. Hann sendi öllum aðildarfélögum FIA skeyti þess efnis í dag.

Formúla 1

Ecclestone heppinn að halda starfinu

Stjórnarmaður CVC sem á og rekur sjónvarps og mótaréttinn á Formúlu 1 segir að Bernie Ecclestone sé heppinn að hafa haldið starfinu, eftir ummæli þar sem hann mærði atorku Hitlers í liðinni viku. Sir Martin Sorell segir að í öllum öðrum fyrirtækjum hefði Ecclestone verið látinn fara

Formúla 1

Barrichello runninn reiðin vegna taps

Brasilíunaðurinn Rubens Barrichello var æfur út í Brawn liðið eftir kappaksturinn á Nurburgring á sunnudaginn. Taldi að liðið hefði klúðrað málum, þannig að hann tapaðiu af sigurmöguleikanum.

Formúla 1

Webber stoltur af fyrsta sigrinum

Ástralinn Mark Webber vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 með Red Bull, sem varð í fyrsta og öðru sæti, en Sebastian Vettel fylgdi í kjölfar Webbers. Webber fótbrotnaði illa og axlarbrotnaði í vetur, en með strangri endurhæfingu gat hann stigið um borð í Formúlu 1 bíl í upphafi tímabilsins.

Formúla 1

Webber og Vettel í fyrsta og öðru sæti

Red Bull liðið vann glæsilegan tvöfaldan sigur á Nurburgring Formúlu 1 brautinni í dag: Mark Webber vann sinn fyrsta Formúlu 1 sigur á ferlinum og saman rúlluðu hann og Vetttel Brawn liðinu upp í þessu móti.

Formúla 1

Webber vonast eftir fyrsta sigrinum

Fjórir fremstu ökumenn í stigamótinu í Formúlu 1 ræsa af stað í þýska kappaksturinn í hádeginu í dag og eru fremstu menn á ráslínu. Mark Webber er fremstur og Rubens Barrichello við hliði hans. Fyrir aftan eru Jenson Button og Sebastian Vettel, en þessir kappar berjast um titilinn og beint fyrir aftan verður Lewis Hamilton, núverandi meistari. Spáð er regnskúum á meðan keppni stendur, en svipað veður hristi upp í tímatökunni í gær.

Formúla 1

Webber fljótastur í ævintýralegri tímatöku

Ástralinn Mark Webber var fljótastur allra í skrautegri og spennandi tímatöku á Nurburgring brautinni í Þýsklandi í dag. Veðurguðirnir stríddu ökumönnum, sem þurftu að taka mikilvægar ákvarðnir undir miklu álagi. En toppmennirnir í titilslagnum eru í fyrstu fjórum sætunum á ráslínu.

Formúla 1

McLaren og Ferrari aftur í toppslaginn

Teikn virðast á lofti eftir lokaæfingu keppnisliða í Formúlu 1 á Nurburgring í morgun. McLaren og Ferrari eru aftur farinn að berjast um besta tíma því Lewis Hamilton á McLaren var með besta tíma dagsins, fyrir tímatökuna sem er í hádeginu.

Formúla 1

Hamilton kom öllum á óvart

Bretinn Lewis Hamilton kom keppinautum sínum í opna skjöldu í fyrsta skipti á árinu með því að ná besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða í dag. McLaren liðið hefur ekki riðið feitum hesti frá mótum ársins og spurning hvort liðið sé loks að snúa við blaðinu.

Formúla 1

Ari Vatanen býður sig fram til forseta FIA

Rallökumaðurinn og fyrrum heimsmeisati, Finninn Ari Vatanen hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta FIA. Miklar væringar hafa verið á milli Formúlu 1 liða og Max Mosley núverandi forseta FIA og vona margir aðilar að framboð Vatanen fái fylgi meðal meðlima FIA og klúbba sem starfa undir hatti sambandsins.

Formúla 1

Red Bull og Brawn hraðskeiðastir bíla í dag

Red Bull og Brawn liðið var í fyrstu sætunum á fyrstu æfingi Formúlu 1 liða á Nurburgring brautinni í morgun. Mark Webber frá Ástralíu náði besta tíma, en Jenson Button frá Englandi varð annar. Flestir eiga von á slag um sigur á milli ökumanna Red Bull og Brawn í mótinu um helgina, en rigningu er spáð meira og minna alla helgina. Það var reyndar þurrt á brautinni í morgun.

Formúla 1

Upphlaup á fundi FIA og FOTA

Forráðamenn Formúlu 1 liða gengu af fundi með samningarmönnum FIA í dag, þar sem verið var að ræða framtíðarreglur í íþróttinni. Er ljóst að grær ekki heilt á milli þessara aðila, sem þóttust þó hafa samið frið á dögunum. Málið er orðið einn allsherjar farsi og íþróttinni síst til framdráttar.

Formúla 1

Fimm þýskir ökumenn á heimavelli

Það verður fjör á áhorfendapöllunum á Nurburgring í Þýskalandi um helgina. Heimamenn eiga fimm starfandi Formúlu 1 ökumenn og Sebastian Vettel vann síðustu keppni sem fram fór á Red Bull.

Formúla 1

Engar liðsskipanir í vændum hjá Brawn og Red Bull

Engin hætta er á því enn sem komið er að forystuliðin í Formúlu 1 mótinu beiti liðsskipunum til að ráða því hvaða ökumaður eigi meiri sjéns í titilinn. Jenson Button og Rubens Barrichello hjá Brawn og Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull er frjálst að keppa af fullri hörku gegn hvor öðrum.

Formúla 1