Erlent
136 137 138 139 140 141 142 143 144 … 334 ›
Finnskur ráðherra segir af sér vegna tengsla við hægriöfgamenn Vilhelm Junnila, efnahagsráðherra Finnlands, tilkynnti að hann ætlaði að segja af sér í dag í kjölfar uppljóstrana um tengsl hans við hægriöfgamenn og grín um nasisma. Junnila entist aðeins í ráðherrastóli í um viku. Erlent 30.6.2023 11:23
Mæðgin látin eftir harmleik í Eystrasalti Sjö ára drengur féll frá borði ferju í Eystrasalti síðdegis í gær. Móðir drengsins er sögð hafa stokkið út í sjóinn á eftir syni sínum til að bjarga honum. Þau fundust í sjónum en voru ekki með meðvitund og hafa nú bæði verið úrskurðuð látin. Erlent 30.6.2023 10:32
Lögreglumaður sem brást ekki við skólaskotárás sýknaður Kviðdómur í Flórída í Bandaríkjunum sýknaði skólalögreglumann sem var sakaður um að flýja af hólmi þegar byssumaður hóf skothríð í framhaldsskóla í Parkland árið 2018. Byssumaðurinn náði að skjóta sautján manns til bana áður en lögregla hafði hendur í hári hans. Erlent 30.6.2023 09:15
Enn mótmælt á götum Frakklands Mótmælaaldan í Frakklandi hélt áfram í nótt, þriðju nóttina í röð og nú voru tæplega 700 handteknir víðsvegar um landið. Erlent 30.6.2023 08:53
Að minnsta kosti 230 létust í pílagrímsförinni til Mekka Yfir 2.000 manns eru sögð hafa þjáðst af hitatengdum kvillum á meðan Hajj-pílagrímaförinni stóð. Um 1,8 milljón múslíma er sögð hafa farið pílagrímsförina en hitinn fór upp í allt að 48 stig. Erlent 30.6.2023 07:57
Bandaríkjamenn íhuga að senda klasasprengjur en Ungverjar taka í bremsuna Bandaríkjamenn eru nú sagðir íhuga alvarlega að senda Úkraínumönnum klasasprengjur, til notkunar í gagnsókn þeirra gegn Rússum. Frá þessu greina miðlar vestanhafs. Erlent 30.6.2023 07:09
Ekki ákærður vegna harmleiksins á tónleikunum Rapparinn Travis Scott verður ekki ákærður fyrir aðkomu sína að því þegar tíu ungir tónleikagestir létust eftir troðning á tónlistarhátíðinni Astroworld, sem Scott hélt árið 2021. Erlent 30.6.2023 00:02
Refsa þurfi Ísraelsmönnum til að koma á friði Margverðlaunaður ísraelskur blaðamaður segir að Ísraelsmenn muni ekki láta af hernaði sínum og aðskilnaðarstefnu gagnvart Palestínumönnum fyrr en alþjóðasamfélagið refsi þeim. Núverandi ríkisstjórn landsins væri versta fasista- og öfgatrúarstjórn frá stofnun Ísraelsríkis. Erlent 29.6.2023 23:31
Hlaut 24 ára dóm fyrir að láta myrða kollega sinn Pólitískur ráðgjafi sem borgaði tveimur mönnum fimmtán þúsund Bandaríkjadali fyrir að myrða kollega sinn var dæmdur í 24 ára fangelsi í Bandaríkjunum í dag. Morðingjarnir tveir hlutu sextán og tuttugu ára dóma. Erlent 29.6.2023 21:25
Stefna norskum stjórnvöldum vegna nýrra olíuleyfa Tvenn náttúruverndarsamtök segjast ætla að stefna norska ríkinu vegna ákvörðunar stjórnvalda um að gefa út nítján ný leyfi fyrir olíu- og gasvinnslu í gær. Þau saka ríkisstjórnina um að brjóta gegn stjórnarskrá og hunsa skuldbindingar sínar í mannréttindamálum með leyfunum. Erlent 29.6.2023 15:43
Banna jákvæða mismunun kynþátta Hæstiréttur Bandaríkjanna bannaði tveimur af helstu háskólum landsins að taka tillit til kynþáttar við innritun nemenda í dag. Svokallaðri jákvæðri mismunun hefur verið beitt um áratugaskeið til þess að vega upp á móti afleiðingum aldalangrar mismununar kynþátta í Bandaríkjunum. Erlent 29.6.2023 14:36
Ráðist inn í sænska sendiráðið í Bagdad vegna Kóranbrennu Hópur reiðra mótmælenda réðst inn í sænska sendiráðið í Bagdad. Mótmælin voru boðuð eftir að írakskur maður kveikti í Kóraninum fyrir utan mosku í Stokkhólmi í gær. Fjöldi múslimaríkja hefur fordæmt bókabrennuna. Erlent 29.6.2023 14:06
Sögð ætla að lýsa vinsælt sætuefni mögulegan krabbameinsvald Undirstofnun Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) er sögð ætla að lýsa gervisætuefnið aspartam mögulegan krabbameinsvald í næsta mánuði. Aspartam er notað í fjölda sykurlausra gosdrykkja og tyggigúmmí svo eitthvað sé nefnt. Erlent 29.6.2023 12:20
Tsipras hættir eftir að Syriza beið afhroð í kosningum Alexis Tsipras, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, hefur ákveðið að segja af sér formennsku í vinstriflokknum Syriza eftir að flokkurinn beið afhroð í nýafstöðnum þingkosningum. Erlent 29.6.2023 12:18
Vilja banna forsætisráðherra á Facebook rétt fyrir kosningar Sjálfstæð eftirlitsnefnd Meta leggur til að Facebook-aðgangi forsætisráðherra Kambódíu verði lokað í sex mánuði vegna myndbands sem hann birti þar sem hann hótaði pólitískum andstæðingum ofbeldi. Innan við mánuður er til kosninga í Kambódíu. Erlent 29.6.2023 11:43
Svara ekki spurningum um örlög hátt setts hershöfðingja Stjórvöld í Kreml svara ekki spurningum um Sergei Surovikin, fyrrverandi yfirmann innrásarhersins í Úkraínu, sem ekkert hefur spurst til frá því að málaliðaforingi gerði uppreisn gegn hermálayfirvöldum um helgina. Óstaðfestar heimildir herma að Surovikin hafi verið handtekinn. Erlent 29.6.2023 11:20
Réttarhöld yfir Kevin Spacey hafin Réttarhöld yfir bandaríska leikaranum Kevin Spacey eru hafin. Spacey er ákærður fyrir alls tólf kynferðisbrot gegn fjórum drengjum. Erlent 29.6.2023 10:35
Flutningur hælisleitenda til Rúanda dæmdur ólöglegur Breskur áfrýjunardómstóll komst að þeirri niðurstöðu að Rúanda teldist ekki öruggt ríki og því væru áform stjórnvalda um að senda hælisleitendur þangað ólögleg í dag. Dómarar töldu verulega hættu á að hælisleitendur væru sendir til heimalands síns þaðan. Erlent 29.6.2023 10:23
Dæmdur í ótímabundið fangelsi fyrir morðið á Miu Hinn 38 ára gamli Thomas Thomsen sem fundinn var sekur í gær um morðið á Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku á síðasta ári og fyrir tilraun til nauðgunar og ósæmilega meðferð á líki hennar var í dag dæmdur í ótímabundið fangelsi. Um er að ræða dóm sem kveðinn er upp yfir föngum sem taldir eru sérstaklega hættulegir. Erlent 29.6.2023 10:16
Meintur flugumaður Rússa handtekinn í Kramatorsk Volodómír Selenskí Úkraínuforseti segir að meintur njósnari fyrir Rússa sem sagður er hafa aðstoðað við mannskæða árás í borginni Kramatorsk verði ákærður fyrir landráð. Erlent 29.6.2023 09:55
Heyrðu öldunið þyngdarbylgna sem ganga um alheiminn Alheimurinn er fullur af þyngdarbylgjum sem ganga um tímarúmið samkvæmt niðurstöðum fimmtán ára langrar og byltingarkenndrar rannsóknar alþjóðlegs hóps vísindamanna. Uppgötvunin á þessum þyngdarbylgjubakgrunni alheimsins er sögð hjálpa fræðimönnum að skilja hvernig vetrarbrautir myndast og þróast. Erlent 29.6.2023 09:30
Ríkisfjölmiðill áminntur vegna myndskeiðs af kynlífi höfrunga Fjölmiðlaeftirlitsstofnun Nýja-Sjálands hefur veitt ríkisfjölmiðlinum TVNZ áminningu fyrir að heimila náttúrulífsþátt fyrir alla aldurshópa. Ákvörðunin var tekin eftir að einn áhorfandi kvartaði undan atriði sem sýndi mökun höfrunga. Erlent 29.6.2023 07:56
Óeirðir í Frakklandi aðra nóttina í röð Að minnsta kosti 150 voru handteknir í nótt eftir mótmæli almennings aðra nóttina í röð í Frakklandi eftir að lögregla skaut sautján ára gamlan ökumann til bana sem hafði ekki sinnt stöðvunamerkjum. Erlent 29.6.2023 07:13
Líkamsleifar fundust í flakinu af Titan Líkamsleifar hafa fundist í brakinu af kafbátnum Titan, sem fórst skammt frá flakinu af Titanic fyrir um tveimur vikum síðan. Fimm voru innanborðs þegar slysið átti sér stað. Erlent 29.6.2023 06:54
Fjórtán ára tvíburar meðal fallinna í árás Rússa Tíu manns, þeirra á meðal fjórtán ára tvíburasystur, féllu í eldflaugaárás Rússa á veitingastað í borginni Kramatorsk í austurhluta Úkraínu í gærkvöldi. Tugir bygginga, þeirra á meðal fjöldi skóla og leikskóla eyðilögðust í árásinni. Erlent 28.6.2023 19:46
NASCAR-stjarna dregur sig í hlé eftir blóðugan fjölskylduharmleik Sjöfaldi NASCAR-meistarinn Jimmie Johnson keppir ekki um helgina eftir að foreldrar og ungur frændi eiginkonu hans fundust látin á mánudag. Svo virðist sem að tengdamóðir hans hafi skotið eiginmann sinn og barnabarn til bana áður en hún svipti sig lífi. Erlent 28.6.2023 14:15
Samþykkja leyfi fyrir nítján olíu- og gasvinnsluverkefni við Noreg Norsk stjórnvöld gáfu grænt ljós á nítján olíu- og gasvinnsluverkefni á landgrunni sínu í dag. Heildarfjárfestingin er sögð nema meira en 200 milljörðum norskra króna, jafnvirði meira en 2.500 milljarða íslenskra króna. Erlent 28.6.2023 13:46
Dæmdur sekur fyrir morðið á Miu Thomas Thomsen, 38 ára gamall karlmaður, hefur verið dæmdur sekur vegna morðsins á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku á síðasta ári. Þá var hann fundinn sekur um tilraun til að nauðga henni og ósæmilega meðferð á líki hennar sem hann sagaði í sundur í 231 búta. Erlent 28.6.2023 11:49
Telja hershöfðingja hafa vitað af áformum Prigozhin Bandaríska leyniþjónustan telur að háttsettur rússneskur hershöfðingi hafi vitað af því að Jevgeníj Prigozhin, leiðtogi Wagner-málaliðahersins, ætlaði að gera uppreisn gegn hermálayfirvöld fyrir fram. Forseti Hvíta-Rússlands segist hafa komið í veg fyrir að Pútín Rússlandsforseti léti drepa Prigozhin. Erlent 28.6.2023 11:43
Trump kærir konuna sem hann braut á kynferðislega Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur kært E Jean Carroll sem hann var dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega á. Carroll hefur sagt Trump hafa nauðgað sér. Erlent 28.6.2023 11:42