Innlent
Telur að nokkrir bíði átekta vegna forsætisráðherra
Almannatengill hjá ráðgjafafyrirtæki telur að nokkrir hugsanlegir frambjóðendur til forseta Íslands neyðist til að bíða átekta því forsætisráðherra hefur ekki enn sagt af eða á með framboð.
Kvöldfréttir Stöðvar 2
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag tillögu um tafarlaust vopnahlé á Gasa og fulltrúi ráðsins segir atkvæðagreiðsluna sögulega. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 mætir Þórdís Ingadóttir prófessor og sérfræðingur í alþjóðarétti í myndver og fer yfir þýðingu þess.
Börnin nýbúin að taka brunaæfingu
Engin grunnskólabörn voru í Húsaskóla í Grafarvogi í dag, þar sem eldur kom upp síðdegis í dag. Um 40 leikskólabörn á leikskólanum Fífuborg og 20 börn á frístundaheimilinu Kastala voru í húsinu. Aðstoðarskólastjóri segir börnin hafa vitað upp á hár hvernig bregðast ætti við, vegna brunaæfingar sem haldin var á dögunum.
Skallaði mann, sló hann með priki og beit
Karlmaður hlaut í síðustu viku þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir líkamsárás.
Nýtt merki Samfylkingarinnar hlaut gullið
Samfylkingin vann gullverðlaun í flokknum Firmamerki á FÍT-verðlaununum sem veitt voru síðastliðinn föstudag. Þá vann Samfylkingin jafnframt til silfurverðlauna í flokknum Mörkun fyrirtækja. Nýtt merki og nýtt útlit flokksins var tekið í notkun í mars á síðasta ári og hannað af Sigurði Oddssyni sem er grafískur hönnuður og hönnunarstjóri í New York.
Jörðin í Grindavík gaf sig undan vinnuvél
Vinnutæki af gerð sem kölluð er búkolla í daglegu máli hrundi að hluta til ofan í sprungu í Grindavík í dag. Verið var að álagsprófa nokkrar götur sem lokaðar voru almenningi. Vitað var af nokkrum sprungum og holrýmum og þungum ökutækjum var ekið um svæðið til að kanna burðargetu og öryggi gatnanna.
Dregið úr gosinu en land rís enn
Svo virðist sem dregið hafi úr eldgosinu við Sundhnúksgíga síðasta sólarhringinn. Virkni í gígunum er minni og mögulega slökknað í minnstu gígunum. GPS-mælingar síðustu daga benda þó til þess að landris sé í gangi í Svartsengi, en mun hægara en áður. Það bendir til þess að enn safnist kvika í söfnunarsvæðið undir Svartsengi þótt eldgos sé í gangi.
Sveinn hlaut gullmerki Heimdallar
Sveinn R. Eyjólfsson, fyrrverandi blaðaútgefandi, hlaut gullmerki Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, á árshátíð félagsins á laugardag.
Búið að slökkva eldinn í Húsaskóla
Búið er að slökkva eld sem kviknaði í þaki Húsaskóla í Grafarvogi í dag. Skólinn hefur verið tæmdur og öllum börnum komið í skjól í nálægu íþróttahúsi.
Ríkið gefst upp á landtökutilburðum
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið eftir eignatilkall til lands að Syðri Fljótum í Skaftárhreppi sem deilt hefur verið um í mörg ár. Bændur að Syðri Fljótum hafa staðið í stappi við ríkið í mörg ár. Þau fagna niðurstöðunni en velta fyrir sér hve langan tíma málið hefur tekið með tilheyrandi kostnaði.
Lögreglan leitar að Toyotu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkgráum Toyotu-bíl sem er af gerðinni Yaris, árgerð 2014. Skráningarnúmer bílsins er NMA 87.
Kvörtun Axels Péturs vísað frá
Kvörtun Axels Péturs Axelssonar, sem hefur hug á að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, hefur verið vísað frá Persónuvernd.
Gistu tvær nætur í Madríd eftir ferð til Venesúela
Kostnaður vegna fylgdar 180 Venesúela til síns heima var rúmar fjórar milljónir króna. Þetta kemur fram í bréfi til Allsherjar- og menntamálanefndar.
Segir Bitcoin alþjóðlegt vandamál
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir mikla raforkunotkun orkuvera sem grafa eftir rafmyntum hér á landi ekki samrýmast umhverfisstefnu landsins. Katrín var til viðtals hjá Financial Times um matvælaframleiðslu og fæðuöryggi, og loftslags- og umhverfismál í tengslum við málefnið. Hafði hún þá orð á því að raforka landsins væri verðmæt og ætti að vera notuð í uppbyggilegri verkefni en rafmyntagröft.
Telur morgunljóst að nýju búvörulögin séu ólögleg
Stjórnsýslufræðingur segir að nýsamþykkt búvörulög hafi verið ólöglega sett því breytingarfrumvarpið hafi breyst of mikið við aðra umræðu. Hann telur að málið yrði dæmt ógilt ef það færi fyrir dómstóla.
Sparkaði í ólétta konu og réðst á móður hennar
Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að ráðast á tvær konur, mæðgur. Árásirnar áttu sér stað á sama tíma, þann fjórtánda desember 2021.
Níu svæði í Grindavík girt af
Búið er að girða af níu svæði í Grindavík sem talin eru hættuleg og vísbendingar eru um holrými. Það var gert um helgina í kjölfar niðurstaðna jarðkönnunnarverkefnis almannavarna. Verkefnastjóri segir vísbendingar um að fleiri svæði í bænum séu verr farin.
Ólíklegt að öll aðildarfélög BHM gangi saman til viðræðna
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM losna þann 1. apríl. Formaður telur ólíklegt að öll 24 aðildarfélög gangi saman til viðræðna. Ekki hefur verið boðað til funda við viðsemjendur en hún á von á því að það skýrist eftir páska.
Götur í Grindavík girtar af og enn deilt um búvörulögin
Í hádegisfréttum verður rætt við verkefnastjóra jarðkönnunarverkefnis Almannavarna en níu svæði í Grindavík hafa verið girt af. Aðeins hefur dregið úr virkni gossins á Reykjanesi en það er þó enn í fullum gangi og tveir stærstu gígarnir eru enn vel virkir. Einnig verður rætt við stjórnsýslufræðing sem gerir alvarlegar athugasemdir við hina þinglegu meðferð á nýsamþykktum búvörulögum sem hart hefur verið deilt um. Í íþróttapakka dagsins verður síðan hitað upp fyrir stórleikinn á morgun þegar Íslendingar mæta Úkraínu í Póllandi til að keppa um laust sæti á EM í fótbolta næsta sumar.<div><iframe width="752" height="423" src=https://www.visir.is/player/beint/visir frameborder="0" scrolling="no" seamless="seamless" allowfullscreen></iframe> </div>Embed: Hádegisfréttir
Spænskir kokkanemar elda íslenskan saltfisk
Íslenskur saltfiskur var í aðalhlutverki þar sem færasti saltfiskkokkur Spánar var valinn í Mérida á Spáni í vikunni. Keppnin var haldin í þriðja skipti í ár en 18 skólar frá öllum landshlutum Spánar tóku þátt að þessu sinni. Spánn er stærsti markaðurinn fyrir íslenskan saltfisk og er hann uppistaðan í mörgum vinsælum réttum þar í landi.
Kæra Ómar til lögreglu og kvarta til siðanefndar og Persónuverndar
Ungt par hefur ákveðið að kæra lögmanninn Ómar R. Valdimarsson vegna birtingar hans á viðkvæmum persónuupplýsingum um það á samfélagsmiðlum. Ómar birti tölvupóstsamskipti sín við parið á Facebooksíðu lögmannsstofu sinnar vegna deilu um störf hans í flugbótamáli fólksins.
Bein útsending frá gosstöðvunum
Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Eitthvað dró úr virkni í nótt en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan.
Fylgdist með ókunnugum karlmanni fara inn í bílinn hans
Íbúi í Grindavík er orðinn langþreyttur á því að ókunnugir geti valsað um í Grindavík. Ókunnugur karlmaður fór inn í bílinn hans í innkeyrslunni við yfirgefið hús hans í bænum. Hann kallar eftir aðgangspössum til Grindvíkinga og betra eftirlits til að standa vörð um eigur Grindvíkinga.
Barn ók leigubíl í leyfisleysi
Myndskeið af ungu barni aka leigubíl um götur Breiðholts hefur verið í mikilli dreifingu á samfélagsmiðlum um helgina. Lögreglan segir málið unnið í samstarfi við foreldra og barnaverndaryfirvöld.
Helga bætist líklega í hópinn á miðvikudag
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, býður fjölmiðla velkomna til heimilis síns klukkan 12 miðvikudaginn 27. mars.
Breytingar á búvörulögum eigi ekki að skila sér í hærra verðlagi
Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar og þingmaður Framsóknarflokksins, segir breytingar á búvörulögum og endurskoðun á starfsskilyrðum og utanumhaldi á matvælaframleiðslu sem tengist kjöti löngu tímabæra. Þórarinn ræddi samþykkt laganna og aðstæður bænda í Bítinu á Bylgjunni í morgun.
Dró úr virkninni í nótt í fyrsta sinn frá því að gosið hófst
„Það hefur svona aðeins dregið úr virkninni í nótt,“ segir Elísabet Pálmadóttir náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands um stöðuna á eldgosinu á Reykjanesskaga.
1.434 beiðnir borist Google frá Íslandi um að fjarlægja 6.399 leitarniðurstöður
Google hafa borist 1.434 beiðnir frá Íslandi þar sem þess var óskað að samtals 6.399 leitarniðurstöður yrðu fjarlægðar úr leitarvél stórfyrirtækisins, á grundvelli niðurstöðu Evrópudómstólsins frá árinu 2014.
Nokkur útköll þar sem kalla þurfti til foreldra og barnavernd
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti þó nokkrum útköllum í gærkvöldi og nótt þar sem ungmenni komu við sögu og í þremur tilvikum þurfti að kalla til foreldra og fulltrúa barnaverndar.
Hávær hvellur heyrðist víða um höfuðborgarsvæðið
Hávær hvellur ómaði um höfuðborgarsvæðið laust fyrir klukkan ellefu í kvöld. Margir í Kópavogi og Garðabæ urðu varir við sprenginguna og er hún til umtals í hverfahópum á Facebook.