Golf

40 hafa náð draumahögginu í ár

Það sem af er golfvertíð 2007 eru komnar 40 tilkynningar til skrifstofu GSÍ um holu í höggi. Einhverjir fleiri en þeir sem eru á listanum hér fyrir neðan hafa eflaust náð draumahögginu í ár en ekki tilkynnt það á réttu eyðublaði og sent til GSÍ. Á meðan að svo er ekki er afrekið ekki viðurkennt af Einherjaklúbbnum og því ekki skráð.

Golf

Elding eyðilagði hús Tiger Woods

Tiger Woods missti á föstudaginn hús sem hann átti í Florida. Elding fór í húsið og gjöreyðilagði það. Tiger keypti 12 hektara jörð í Jupiter Island í Flórída í janúar í fyrra, en þar eru fyrir nokkur hús og kostaði jörðin um 38 milljónir bandaríkjadala.

Golf

Birgir Leifur kemst ekki inn á Opna breska

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, komst ekki inn í forkeppnina fyrir Opna breska Meistaramótið. Hann skráði sig í forkeppnina en var fimmti á biðlista inn í mótið, en þar leika margir af sterkustu kylfingum Evrópu.

Golf

Storm vann Opna franska

Enski kylfingurinn Graeme Storm sigraði á Opna franska meistaramótinu sem lauk í París í dag og var þetta jafnframt fyrsti sigur hans á Evrópumótaröðinni. Hann lék lokahringinn á 66 höggum og lauk 72 holum á samtals sjö höggum undir pari.

Golf

Perry skaust í efsta sæti á Buick mótinu

Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry lék annan hringinn á Buick Open í Michigan í gær á 63 höggum og deilir nú efsta sæti með Jim Furyk og Brett Ougley. Þeir eru allir á samtals 10 höggum undir pari, en þrír kylfingar eru einu höggi á eftir.

Golf

Hansen leiðir Opna franska

Þegar þremur hringjum er lokið á Opna franska mótinu í golfi er Søren Hansen með bestan árangur. Hansen hefur farið hringina á sjö undir pari. Simon Khan kemur næstur með sex undir pari.

Golf

Kylfingur í krókódílskjafti

Bandarískur kylfingur, Bruce Burger að nafni, var hætt kominn á Lake Venice-vellinum í Flórida á mánudaginn þegar krókódíll réðist á hann við 6. braut vallarins. Krókódíllinn var rúmlega þriggja metra langur og beit í handlegginn á Burger og reyndi að draga hann út í vatnið.

Golf

1350 þúsund söfnuðust í Stjörnugolfi Sýnar

Stjörnugolf Sýnar var haldið í fjórða sinn 20. júní sl. og fór mótið fram á Korpúlfsstaðavelli. Metþátttaka var í mótinu og söfnuðust 1.350 þúsund krónur, sem renna til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Þetta er einnig hæsta upphæð sem hefur safnast í Stjörnugolfi frá upphafi.

Golf

Þrír fóru holu í höggi á fjórum tímum

Sá einstæði atburður átti sér stað á Urriðavelli í gær að þrír kylfingar fóru holu í höggi á 15. brautinni á aðeins fjórum klukkutímum. Þetta voru þau Hrefna Sigurðardóttir, Bríet Þorsteinsdóttir og Hlynur Þór Haraldsson úr golfklúbbnum Oddi. Allir kylfingarnir voru þarna að slá draumahöggið sitt í fyrsta sinn á ferlinum. Þetta kom fram á kylfingur.is í dag.

Golf

Ragnhildur sigraði í Leirunni

Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR var rétt í þessu að tryggja sér sigur á Kaupþingsmótinu á Hólmsvelli í Leiru. Hún lék lokahringinn á 83 höggum og var einu höggi á undan Nínu Björk Geirsdóttur úr GKj, sem lék lokahringinn á 78 höggum. Tinna Jóhannsdóttir úr GK lék besta hringinn í dag, var á 76 höggum og hafnaði í þriðja sæti.

Golf

Heiðar notaði 10 högg á 17. holunni

Heiðar Davíð Bragason, atvinnukylfingur úr GKj, fór illa að ráði sínu á næst síðustu holunni á Bornholm Masters mótinu sem lauk í Danmörku í dag. Þegar hann kom að 17. holu var hann á sléttu pari og í 3. sæti í mótinu. Hann lék hins vegar 17. holuna á 10 höggum og féll við það ofan í 11. sæti.

Golf

Tiger Woods orðinn pabbi

Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er nú orðinn pabbi í fyrsta sinn eftir að kona hans Elin fæddi litla stúlku í nótt. Woods náði fæðingunni skömmu eftir að hann lauk keppni í öðru sæti á opna bandaríska meistaramótinu og hefur lýst því yfir að fæðingin kunni að hafa áhrif á þáttöku sína í næstu mótum. Hann á næst að keppa á Buick Open í Michigan þann 28. júní.

Golf

Cabrera: „Ég trúi þessu ekki.“

Angel Cabrera, nýkrýndur sigurvegari Opna Bandaríska Meistaramótsins í golfi, á erfitt með að átta sig á því að hann hafi virkilega sigrað á mótinu. „Mér líður frábærlega, þetta er frábær stund fyrir mig. Ég trúi þessu ekki,“ sagði Cabrera.

Golf

Endaði á fjórum yfir pari

Birgir Leifur Hafþórsson fær um 450 þúsund krónur í verðlaunafé á Saint-Omer mótinu í Frakklandi sem lauk í gær. Birgir lék hringina fjóra á fjórum höggum yfir pari, þann síðasta í gær einn yfir pari vallarsins. Birgir lauk keppni í 26. sæti á mótinu og vann sig upp um tvö sæti á peningalista mótaraðarinnar.

Golf

Cabrera vann á U.S. Open

Angel Cabrera sigraði í kvöld Opna Bandaríska Meistaramótið. Cabrera lék síðasta hringinn á 69 höggum, og lék því alla fjóra hringina á 285 höggum, eða fimm yfir pari. Tiger Woods og Jim Furyk enduðu í 2-3 sæti með sex yfir pari. Þetta er í fyrsta sinn sem að Cabrera sigrar stórmót.

Golf

Angel Cabrera með yfirhöndina á US Open

Angel Cabrera er nú með bestan árangur á Opna Bandaríska Meistaramótinu en hann er búinn með 15 holur og er á þremur undir pari. Hann var með bestan árangur eftir tvo hringi en missteig sig í gær og fór hringinn á sex yfir pari.

Golf

Tiger Woods: „Reynslan mun nýtast mér.“

Tiger Woods er sannfærður um að reynslan muni nýtast honum þegar hann leikur lokahring sinn í dag á Opna Bandaríska Meistaramótinu. Woods er tveimur höggum á eftir Aaron Baddeley, sem er með bestu stöðuna eftir þrjá hringi.

Golf

Aaron Baddeley efstur eftir 3 hringi

Ástralinn Aaron Baddeley hefur staðið sig best á Opna Bandaríska Meistaramótinu. Eftir þrjá hringi hefur hann spilað á 212 höggum, eða 2 yfir pari. Tiger Woods átti góðan hring og spilaði á 1 undir pari og komst í annað sætið, með samtals 4 yfir pari.

Golf

Frábær endasprettur hjá Birgi - lék á 72 höggum

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, byrjaði ill á lokahringnum á Open de Saint-Omer mótinu í Frakklandi í dag, en sýndi mikinn styrk með því að snúa því við þegar leið á hringinn. Hann fékk fjóra skolla á fyrstu fimm holunum.

Golf

Þremur yfir pari í Frakklandi

Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék þriðja hringinn á Saint-Omer mótinu í Frakklandi í gær á einu höggi yfir pari. Hann er því samtals á þremur yfir pari fyrir lokahringinn sem leikinn verður í dag. Birgir er í 32-40 sæti.

Golf

Birgir lauk þriðja hring á einum yfir pari

Birgir Leifur Hafþórsson hefur lokið þriðja hring á Open De Saint-Omer mótinu í Frakklandi en hann er á einu höggi yfir pari. Birgir fékk skolla á 10. holu en svo komu sex pör í röð, fugl og svo par á 18. og síðustu holunni.

Golf

Birgir á höggi undir pari í Frakklandi

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék fyrsta hringinn á Open de Saint-Omer mótinu í Lumbres í Frakklandi í dag á 70 höggum, eða einu höggi undir pari. Hann er sem stendur í 27.-44. sæti. Birgir Leifur fékk þrjá fugla á hringum í dag (1., 10. og 16. holu) og tvo skolla (á 2. og 18. holu). Fresta varð leik um tíma í dag vegna þrumveðurs sem gekk yfir völlinn.

Golf

Birgir Leifur á pari í Frakklandi

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, hefur leikið fyrstu 12 holurnar á fyrsta hring á Open de Saint-Omer mótinu, sem hófst í Lumbres í Frakklandi í morgun, á pari. Hann hefur fengið 2 fugla og tvo skolla, en hinar holurnar lék hann á pari. Hann er sem stendur í 47. sæti.

Golf

Olazabal byrjar vel á opna bandaríska

Keppni er hafin á Opna bandaríska Meistaramótinu á Oakmont vellinum í Pennsylvaniu fylki í Bandaríkjunum. 156 bestu kylfinga heims taka þátt í mótinu. Tiger Woods hóf leik með því að fá skolla á fyrstu holu, síðan kom fugl og par. Hann er því á pari eftir þrjár holur.

Golf

John og Sherry Daly benda hvort á annað

Sherry Daly hefur svarað ásökunum eiginmanns síns, John Daly, um að hún hafi reynt að stinga hann með steikarhníf. Sherry segir að John hafi klórað sig sjálfan í andliti til að reyna að fela þá staðreynd að hann hafi verið ofurölvi á fimmtudagskvöld og misst stjórn á skapi sínu.

Golf

Frábær lokahringur hjá Birgi Leifi

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék lokahringinn á Opna austurríska mótinu í Vínarborg í dag á 67 höggum, eða 4 höggum undir pari. Hann er sem stendur í 18. sæti á samtals 8 höggum undir pari.

Golf

Daly með áverka eftir konu sína

Kylfingurinn skrautlegi John Daly spilaði annan hringinn á Memphis mótinu á PGA með skrámur í andliti eftir illdeilur við konu sína. Hann hringdi í lögreglu klukkan 6 að morgni að staðartíma og hélt því fram að konan hefði ráðist að sér með steikarhníf. Hann lét þessa uppákomu ekki á sig fá og hélt áfram að leika í mótinu eins og ekkert hefði í skorist. Þar er Ástralinn Adam Scott í forystu á sjö höggum undir pari.

Golf

Besti hringurinn hjá Birgi til þessa

Birgir Leifur Hafþórsson átti ljómandi góðan hring á Opna austurríska mótinu í Vínarborg í dag en hann hóf keppni í morgun og lék þriðja hringinn á 68 höggum. Birgir er því á fjórum höggum undir pari að loknum þremur keppnisdögum. Hann lék fyrsta hringinn í mótinu á einu höggi undir pari og annan hringinn fór hann á pari.

Golf

Birgir Leifur komst áfram í Austurríki

Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lék annan hringinn á Opna austurríska mótinu í dag á 71 höggi, eða pari vallar. Hann er því samtals á 141 höggi, eða einu höggi undir pari eftir 36 holur. Hann er í 45.-59. sæti sem stendur og öruggur í gegnum niðurskurðinn. Íslenski kylfingurinn fékk 3 fugla á hringnum í dag, 12 pör og 3 skolla.

Golf