Golf

Birgir Leifur hefur leik í Suður-Afríku á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur.
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur. Mynd/Elísabet

Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, hefur á morgun leik á opna Joburg-mótinu í Suður-Afríku en mótið er liður í Evrópumótaröðinni í golfi.

Mótið fer fram í Jóhannesborg en þetta er þriðja mótið á í Suður-Afríku á rúmum mánuði sem Birgir Leifur tekur þátt í.

Hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á fyrra mótinu en varð í 50. sæti á síðara mótinu og vann sér inn 380 þúsund krónur í verðlaunafé.

Birgir Leifur hefur leik klukkan 9.20 í fyrramálið að íslenskum tíma en með honum í ráshóp verður heimamaðurinn Grant Veenstra og Englendingurinn James Morrison. Þeir eru báðir lítt þekktir.

Heimamaðurinn James Kingston stefnir að sigri á mótinu en hann bar sigur á býtum á South African Airways-mótinu í síðasta mánuði. Þar var fyrsti sigur hans á Evrópumótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×