Tíska og hönnun

Skandinavískt fjölskylduhús

Húsið er hugsað sem barnvænt fjölskylduhús þar sem allir geta notið rýmisins. Þar sem lofthæðin er mest er klifurveggur þar sem fjölskyldan getur leikið sér í Spiderman leikjum og skriðið upp lóðréttan vegginn. Hönnuðurinn hressir upp á rýmið með fjölskrúðugu litavali í húsgögnum og innréttingum. Gólfefnin eru harðgerð sem bíður börnunum upp á kapphlaup á línuskautum.

Tíska og hönnun

Sjálfbært draumahús

Þetta nútímalega hús á hitabeltiseyjunni Sentosa í Singapore er sérstaklega hannað fyrir þá sem vilja njóta loftslagsins með opið útsýni til sjávar úr öllum rýmum hússins. Opin færa íbúunum ekki bara útsýni til allra átta heldur skapa náttúrulega loftkælingu þar sem golunni frá hafinu er beint í gegnum allt húsið með verkfræðilegri hugmyndafræði náttúrunnar sem sér til þess að þarna verði aldrei og of heitt eða kalt. Hugmyndin á bakvið þessa hönnun gengur út á það að skapa hús í nánum samskiptum við náttúruna. Þetta er meðal annars er gert með því að nota sundlaugina til að tengja húsið og hafið með sjónrænum áhrifum. Bogadregið þakið endurspeglar öldur hafsins og nálægð byggingarinnar við sjóinn. Klæðningin á þakinu dregur í sig sólarljósið sem íbúarnir nota til þess að framleiða allt það rafmagn sem þeir þurfa. Hönnuðir hússins er arkítektarnir hjá Guz Architects en þeir vildu með þessu verki skapa hús sem gæfi eigendunum tækifæri til þess að búa með öllum nútímaþægindum í einstakri nálægð og sátt við náttúruna. Þeir kalla það Fiskihúsið.

Tíska og hönnun

Myndskreyttir Buffalo-skór

Hönnun danska tískumerkisins Moon Spoon Saloon þykir ólík annarri skandinavískri hönnun. Flíkurnar eru ýktar, litríkar og framandi. Sara Sachs er aðalhönnuður fatamerkisins en listamaðurinn Tal R sér um að glæða flíkurnar lífi með lit. Aðrir meðlimir Moon Spoon Saloon gengisins eru ljósmyndarinn Noam Giegst og stílistinn Melanie Buchhave.

Tíska og hönnun

Töff hús fyrir töffara

Þetta mínímalíska 500 fermetra 6 herbergja einbýlishús var byggt fyrir fjölskyldu í Tel Aviv í Ísrael fyrir tveimum árum. Það var arkítektinn Axelrod sem hannaði þetta nútímalega töffarahús sem hann kallar eHouse. Húsið er hannað út frá hugsjónum mínimalistans um að ekkert óþarfa skreyti eigi rétt á sér og allar hugmyndir þurfi að hafa notagildi en ekki bara fagurfræðilegan tilgang. Húsið er sjónsteypt með stórum gluggum sem hafa búnað sem gera það að verkum að hægt er að renna þeim til hliðar þannig að sú hlið sem snýr að garðinum opnast að mestu. Þannig getur stofan orðið sameiginlegur hluti af garðinu í einu opnu rými. Sumum kann að þykja mikil notkun glers og hrárrar steypu í innri rýmum hússins vera kuldaleg. Upplifunin er þó líklega önnur á þessum slóðum þar sem veðrið er oftast stöðugt og gott.

Tíska og hönnun

Lúxusvilla í kreppulandi

Þó svo að Argentína sé þekkt fyrir djúpa efnahagskreppu og fátækt þá er ljóst að það er engin kreppa hjá heppnum eiganda þessarar nýbyggðu lúxusvillu í Argentínu. Nútímaleg hvít villa með mjög sérstakri sundlaug sem flæðir úr garðinum og inn í húsið. Það er því hægt að stinga sér til sunds beint úr sjónvarpssófanum og synda í gegnum stofuna og út í garð. Athyglisverð hugmynd og örugglega frábært fyrir fólk í þessu heita loftslagi að geta kælt sig með því að rúlla sér úr sjónvarpssófanum í stofunni og beint ofan í ískalda sundlaug. Spurning er svo hvort klórlyktin úr lauginni sé svo endilega sá stofuilmur sem allir myndu vilja kjósa sér.

Tíska og hönnun

Tískusýning útskriftarnema í LHÍ

Tískusýning útskriftarnemenda í fatahönnun við Listaháskóla Íslands fór fram á skírdag, fimmtudaginn 21. apríl, í portinu á Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Myndatökumaður Vísis var á svæðinu og myndaði sýninguna. Níu nemendur við fatahönnunardeild sýndu lokaverkefni sín; Elsa María Blöndal, Gígja Ísis Guðjónsdóttir, Guðmundur Jörundsson, Gyða Sigfinnsdóttir, Halldóra Lísa Bjargardóttir, Hjördís Gestsdóttir, Jenný Halla Lárusdóttir, Signý Þórhallsdóttir og Sigríður M. Sigurjónsdóttir.

Tíska og hönnun

Sumarvilla á Indlandi

Þetta framandi hús stendur við lítið fiskiþorp á suðurströnd Indlands og er sumarhús fjölskyldu sem býr í London. Þetta er drauma sumarleyfisstaður þeirra sem kjósa framandi fallega staði sem túristahópar hafa enn ekki fundið. Hver myndi ekki vilja eyða sumarfríi sinna drauma í þessu sérstaka húsið við strendur suður Indlands sem endurspeglar menningu staðarins. Arkítektarnir hjá Khosla hönnuðu húsið með það í huga að íbúarni gætu notið útsýnisins 180 gráður yfir fagur blátt hafið á þessum einstaka stað. Byggingin hvílir að mestu á fjórum veggjum sem standa fyrir opnum rýmum í allar áttir sem er ætlað að skapa næmni hússins fyrir loftslagi hitabeltisins. Þakið er útpælt í þeim tilgangi að hlífa húsinu og íbúum þess sem best við sterkri sólinni úr vestri og regntímbilinu sem gengur reglulega yfir svæðið. Innrarýmið er hannað með það í huga að skapa loftflæði frá hafinu í gegnum öll rými byggingarinnar. Til þess að skapa gott loftflæði í gegnum húsið voru hannaðir sérstakir tréflekar inn í húsið til þess að hafa mætti stjórn á því hvernig golunni frá hafinu er beint í gegnum rýminn.

Tíska og hönnun

Fatahönnuðir framtíðar í Central Saint Martins

Central Saint Martins skólinn í London er einn besti og virtasti fatahönnunarskóli í heimi. Atvinnu- og áhugamenn um allan heim fylgjast spenntir með nýjum hönnuðum sem útskrifast úr skólanum á hverju ári því oftar en ekki leynast þar framtíðarstjörnurnar í tískubransanum. Meðal heimsfrægra fatahönnuða sem útskrifast hafa úr skólanum er nýstirnið Sarah Burton sem skyndilega er orðin einn þekktasti fatahönnuðurinn í dag eftir að hún hannað brúðarkjól Kate Middleton. Sarah er yfirhönnuður hjá tískuhúsi Alexander McQueen en hann vakti gríðarlega athygli fyrir framúrstefnulega hönnun sína þegar hann útskrifaðist úr Central Saint Martins fyrir tveimur áratugum. Það er því ljóst að einhver af þeim ungu nýútskrifuðu fatahönnuðum úr Central Saint Martins sem sýndu úrskriftarafurðir sýnar á dögunum, sem skoða má í myndasafninu, eiga eftir að skjótast upp á stjörnuhiminninn á næstu árum.

Tíska og hönnun

Svölustu sportbílar framtíðar

Hönnuðir helstu sportbílaframleiðanda heims keppast um að hanna framúrstefnulegastu sportbíla heims nú sem aldrei fyrr. Í meðfylgjandi myndasafni gefur að líta margt af því ferskasta sem er í gangi hjá sportbílahönnuðum meðal annars frá; Benz, BMW, Ferrari, Audi, Porsche, Lexus, Mazda, Saab og Range Rover. Margir þessara bíla er komnir af hugmyndastiginu og í hendurnar á heppnum eigendum.

Tíska og hönnun

Sexý og svalar konur hjá Gucci

Tískuhúsið Gucci kynnti á dögunum tískuna fyrir næsta haust. Yfirhönnuður þessarar línu hjá Gucci er 39 ára ítalskur fatahönnuður Frida Giannini. Hún tók við sem yfirhönnuður skömmu eftir að Bandaríkjamaðurinn Tom Ford lét af störfum fyrir Tískuhús Gucci en hún starfaði áður sem einn af aðstoðarmönnum hans. Tískuhús Gucci er eitt það stærsta í bransanum. Frida hafði það að markmiði að hanna föt fyrir konur sem þora að vera sexý og svalar. Þetta endurspeglast vel á módelunum sem klæðast þessum ofursvala og sexý fatnaði á myndunum í meðfylgjandi myndasafni. Í myndasafninu má einnig sjá þennan glæsilega yfirhönnuði Gucci, Fridu Giannini.

Tíska og hönnun

Rómantískt hús með sérstöðu

Ástralski arkítektinn Fitt De Felice hannaði þetta hús fyrir fjölskyldu sem óskaði eftir einföldu notalegu einbýlishúsi. Fjölskyldan lagði áherslu á það að húsið væri hlýlegt, nútímalegt en jafnframt notalegt. Hönnuðurinn notar margvísleg náttúruleg efni og lýsingu til þess að skapa rómantíska stemningu í þessu fallega rými. Loftið er ólíkt á milli herbergja sem gefur hverju rými sérstöðu sem er óvenjulegt því algengast er í hönnun nútímalegra einbýlishúsa að upplifunin sé sú að rýmið sé opið og flæði um allt húsið. Sérstaðan þarna virkar vel þar sem hvert rými hefur sinn sérstaka karakter og upplifun hvers herbergis þannig einstök.

Tíska og hönnun

Hönnunarmerkið bARBARA í gONGINI

Tískuverslunin GK Reykjavík hefur nýverið tekið að selja hönnun bARBÖRU í gONGINI og ætti það að vera mikið fagnaðarefni fyrir áhugafólk um skandinavíska hönnun. Ása Ninna Pétursdóttir, sem rekur GK Reykjavík ásamt sambýlismanni sínum, Guðmundi Hallgrímssyni, sýnir brotabrot af hönnun bARBÖRU í gONGINGI í meðfylgjandi myndskeiði. Hönnunarmerkið bARBARA í gONGINI var á meðal þeirra skandinavísku tískumerkja sem sýndu línur sínar á nýyfirstaðinni tískuviku í Kaupmannahöfn. Merkið er upprunalega frá Færeyjum en hefur aðsetur í Kaupmannahöfn og þykir hönnun þess dökk og framúrstefnuleg.

Tíska og hönnun

Einbýlishúsin verða varla djarfari

Þetta djarfa einbýlishús var byggt á síðasta ári í Bandaríkjunum. Húseigandinn vildi hús hannað af framúrstefnulegri dirfsku en án þess að það yrði tilgerðarlegt í vísindaskáldsögustíl. Það verður ekki annað sagt en að vel hafi tekist til í hönnuninni á þessu sérkennilega svarta húsi sem sker sig með afgerandi hætti frá villtri náttúrunni sem umlykur þessa framúrstefnulegu hönnun. Einfalt og smekklegt hús sem sýnir svo sannarlega hvernig tiltölulega djörf hönnun nýtur sín vel á sátt við náttúruna á þessum einstaklega fagra stað.

Tíska og hönnun

Fara vel við íslenskt sumar

Nælonsokkar Borghildar Gunnarsdóttur hafa vakið athygli. Hún svarar eftirspurn og býr til nýjar litasamsetningar fyrir sumarið. Ný lína undir merkinu Milla Snorrason er svo í mótun.

Tíska og hönnun

Sumarbústaðir þurfa ekki að vera flóknir

Gæti hæglega verið nútímalegt sumarhús við Þingvallavatn því umhverfið er mjög íslenskt. En svo er þó ekki því þessi sumarbústaður stendur við fagurt vatn í norður Ameríku. Hönnun hússin er einföld og smekkleg á þessum kyrrláta fallega stað. Útsýnið og umhverfið nýtur sín vel innan úr einföldu hlýlegu rými í gegnum stóra glugga sem endurspegla blárri fallegri birtu inn í húsið. Stóru gluggarnir ramma inn fallegt ytra umhverfið enda engin þörf á myndum á veggina þarna þar sem nóg er að sjá úr stofunni yfir stórbrotið umhverfið.

Tíska og hönnun

Peruhús í Perú

Þetta einbýlishús í Líma í Perú er hannað með það að markmiði að fá innrarýmið til að flæða út í ytrarýmið eða í garðinn í kringum húsið. Lýsingin gegnir lykilhlutverki í því auk þess sem hár veggur á lóðarmörkum með áberandi inngangi skilgreinir lóðina strax sem ákveðið rými og þar af leiðandi hluta af byggingunni. Stofurnar flæða út í garðinn og garðurinn sömuleiðis inn í stofurnar í mjög opnu rými nánast alveg út í götu. Á efri hæðinni njóta íbúarnir meira næðis þar sem svefnherbergi og önnur prívat rými er að finna. Nútímaleg einföld hönnun. Hvítmálað, inni og úti með gráan klassískan línolíum dúk á öllum gólfum.

Tíska og hönnun

Amish hús í Ameríku

Þetta hlýlega og fallega einbýlishús var byggt árið 2009 í Downingtown Pennsylvaniu í Bandaríkjunum. Fjölbreytt efninotkun er einkennandi bæði í ytra útliti og í herbergjum hússins. Húsið er á skógi vaxinni lóð og það sem einkennir umhverfið í næsta nágrenni eru bóndabýli Amishfólksins í Pennsylvaníu. Arkítektinn vildi gera tilraun með að reyna að endurspegla handbragðið sem einkennir að mörgum finnst fallega og staðnaða menningu Amish. Þeir hafna flestri nútímlegri tækni og hampa einfaldleikanum með því að rækta handbragðið. Þessi nútímalega bygging er handunnin að mestu með nútímalegri hugsun og hugmyndafræði.

Tíska og hönnun

Steypa á strönd

Húsið sem skoða má í myndasafni stendur við Malibuströndina í Suður Kaliforníu, rétt norðan við Los Angeles. Þarna búa margar af þekktustu kvikmyndastjörnum heims. Húsið er hrátt, steinsteipt með þá þekktu hugmyndafræði íbúðahúsa á svæðum þar sem íbúar búa við nokkuð stöðugt gott veður að ytra rýmið og innra flæði saman í eina heild.

Tíska og hönnun

Sérstök lúxusvilla í Póllandi

Þetta hús í Póllandi sem hannað er af KWK Promes arkítektum hefur vakið mikla athygli fyrir sérstaka innkeyrslu bifreiða sem liggur í göngum undir húsið. Nútímaleg hvít byggingin hvílir á hlöðnum veggjum úr náttúrulegu grjóti. Undir húsinu liggur svo innkeyrslan í mjög óvenjulegri útfærslu arkítektsins. Óvenjuleg og vel heppnuð útfærsla sem hefur vakið mikla athygli á þessu annars einfalda en glæsilega húsi sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni.

Tíska og hönnun

Haustlína Alexander McQueen 2011

Haustlínu Alexander McQueen 2011 má skoða í meðfylgjandi myndasafni. Þá má einnig sjá Söruh Burton, sem hannaði kjól Katrínar Middleton hertogayngju af Cambridge, í lok myndasafnsins.

Tíska og hönnun