Tónlist

Gummi - Stafrænn Hákon - Þrjár stjörnur

Ég sá fyrst Stafrænan Hákon (eins manns verkefni Breiðhyltingsins Ólafs Josephssonar) þegar sveitin hitaði upp fyrir Godspeed You! Black Emperor. Fannst sveitin óttalegt mald í móinn og hún hitti ekki alveg í mark.

Tónlist

Blása lífi í Presley

Hljómsveitin Minä Rakastan Sinua hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu, sem heitir Elvis, í höfuðið á konungi rokksins. Á plötunni, sem kemur út undir merkjum Smekkleysu, syngur hljómsveitin lög úr sarpi Elvis Presley með það að markmiði að blása lífi í þau á nýjan leik.

Tónlist

Ný plata og tónleikar

Nýjasta breiðskífa hljómsveitarinnar Jagúar, „Shake it good“ kemur út í dag – á sama degi og sveitin fagnar níu ára afmæli sínu. Til að fagna afmælinu og útgáfu nýju plötunnar býður sveitin í partí á tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti.

Tónlist

Rokkveisla og pylsuát á Dillon

Útvarpsstöðin Reykjavík FM ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í hátíðarhöldunum á menningarnótt og hefur ákveðið að blása til stórtónleika í bakgarði skemmtistaðarins Dillon á laugardag.

Tónlist

Miklatún á menningarnótt

Tónleikar Menningarnætur í ár verða á Miklatúni en þetta er í fjórða skipti sem þeir eru haldnir. Hingað til hafa þeir verið staðsettir á hafnarbakkanum en meðal annars í ljósi vel heppnaða tónleika Sigur Rósar á Miklatúni í fyrrasumar var ákveðið að færa þá þangað.

Tónlist

Hljómsveitin Skriðurnar

Hljómsveitin Grjóthrun í Bolungarvík hefur lengi talist fremsta sveit bæjarfélagsins. Meðlimir hafa æft í bílskúr einum góðum í ró og næði. En nú hefur orðið breyting þar á. Góður hópur kvenna hafði um nokkurt skeið hist í heimahúsi, ekki til að borða kökur og sauma út, heldur semja lög og texta og nú deila þær bílskúrnum með Grjóthruni.

Tónlist

Myndin um Sigur Rós

Sigur Rós - Heima - er nafn kvikmyndar um hljómsveitina Sigur Rós og tónleikaferð hennar um landið fyrir nokkrum misserum. Hljómsveitin lék þá á ólíklegustu stöðum og öll herlegheitin voru fest á filmu. Eftir rúman mánuð verður heimsfrumsýning á myndinni á kvikmyndahátíð í Reykjavík.

Tónlist

Ný plata með Jagúar kemur út á menningarnótt

Nýjasta hljómplata hljómsveitarinnar Jagúar, Shake It Good, kemur út laugardaginn 18. ágúst. Þetta er fjórða hlóðversplata sveitarinnar sem fagnar 9 ára afmæli sínu.Til að halda upp á útgáfu plötunnar býður Jagúar í útgáfu- og afmælispartý á nýja tónleikastaðnum Organ í Hafnarstræti.

Tónlist

Kántrýdagar á Skagaströnd um helgina

Kántrýdagar verða haldnir á Skagaströnd dagana 17.-19. ágúst næstkomandi þar sem fjölbreyttur hópur listamanna kemur fram. Meðal þess sem í boði verður má nefna kántrýtónlist, gospelsöng, íslenskt rokk og afrískan trumbuslátt.

Tónlist

Óli Palli ánægður með tveggja daga tónlistarveislu

Ólafur Páll Gunnarsson sem skipuleggur tónleika Rásar 2 á Menningarnótt í samstarfi við Landsbankann segir frábært að Íslendingum verði boðið upp á tveggja daga samfellda tónlistarveislu um helgina. Hann stendur fyrir tónleikum á Miklatúni á Menningarnótt og Kaupþing heldur afmælistónleika á Laugardalsvelli á föstudag.

Tónlist

Franskt rokk í kvöld

Franska rokksveitin Daitro heldur tvenna tónleika hérlendis í kvöld og annað kvöld. Daitro kemur frá borginni Lyon og hefur starfað saman í tæp sex ár. Hljómsveitin er oft nefnd konungur screamo-senunnar og á stóran aðdáendahóp þótt hún sé grasrótarhljómsveit. Spilar sveitin hráa, harða, en tilfinningaríka tónlist.

Tónlist

Krafturinn á Klais í kvöld

Þeir sem til þekkja segja að Klais-orgelið í Hallgrímskirkju sé Rolls í heimi kirkjuorgela. Svo mikið er víst að Kirkjulistahátíð lofar flugeldasýningu í kirkjuskipinu á Skólavörðuholti í kvöld þegar breski orgelleikarinn Christopher Herrick flytur glæsileg verk á gripinn.

Tónlist

Kolefnisjafnaðir rokkarar

Hljómsveitin Jan Mayen hefur gefið út sína aðra breiðskífu sem nefnist So Much Better Than Your Normal Life. Freyr Bjarnason átti umhverfisvænt símaspjall við gítarleikarann Ágúst Bogason.

Tónlist

Syngur 30 Presley-lög

Tvennir minningartónleikar um Elvis Presley verða haldnir í Salnum í Kópavogi á morgun en þá verða þrjátíu ár liðin síðan hann lést.

Tónlist

Harma ritskoðun

Fjarskiptafyrirtækið AT&T harmar að hafa ritskoðað texta bandarísku rokksveitarinnar Pearl Jam þar sem skotið var föstum skotum að forseta Bandaríkjanna, George W. Bush.

Tónlist

Pavarotti laus af sjúkrahúsi

Stórtenórinn Luciano Pavarotti hefur fengið leyfi lækna til að yfirgefa sjúkrahúsið á Norður-Ítalíu sem hann var lagður inná með háan hita og lungnabólgu á dögunum.

Tónlist

Van Halen sameinuð á ný

Fornfræga rokksveitin Van Halen hefur endurheimt upprunalega söngvara sinn, David Lee Roth, og er á leið í tónleikaferð. Lee Roth hefur ekki sungið með bandinu í 22 ár. Tónleikaferð sveitarinnar um Norður-Ameríku hefst í september, en hún hefur dregist örlítið vegna áfengis-, og vímuefnameðferðar gítarleikarans, sjálfs Eddie Van Halen.

Tónlist

Jens Lekman til Íslands

Sænski tónlistarmaðurinn Jens Lekman er væntanlegur hingað til lands öðru sinni um næstu helgi. Lekman hefur verið bókaður til að syngja á tónleikum í tengslum við Reyfi, menningarhátíð í Norræna húsinu sem stendur frá 18. til 26. ágúst.

Tónlist

The Bronx á Airwaves

Bandaríska hljómsveitin The Bronx hefur boðað komu sína á Iceland Airwaves-hátíðina í haust ásamt frönsku plötusnúðunum Fluokids og Brodinsky og þýsku dansboltunum Moonbotica og Patrick Chardronnet.

Tónlist

Endurútgefa Hlemm

Hljómsveitin Sigur Rós hefur endurútgefið tónlist sína við heimildarmyndina Hlemmur eftir Ólaf Sveinsson. Plata með tónlistinni kom upphaflega út árið 2003 á vegum útgáfu sveitarinnar, Krúnk, rétt eins og í þetta sinn.

Tónlist

50 cent hótar að hætta að gefa út sólóplötur

Rappgölturinn 50 cent hefur hótað því að binda enda á einleikaraferill sinn ef geislaskífa rapparans Kanye West selst betur en hans eigin, en báðar eru þær væntanlegar þann 11. september næstkomandi. 50 cent hyggst þó ekki láta af tónlistarstörfum ef svo illa fer, heldur einungis starfa með öðrum tónlistarmönnum.

Tónlist

Metnaðarfullt sjálfstraust

Vinasveitirnar Hjaltalín og Sprengjuhöllin vinna nú um stundir að frumburðum sínum. Steinþór Helgi Arnsteinsson kíkti í heimsókn til sveitanna þar sem upptökur voru í fullum gangi.

Tónlist

Selt á Franz

Miðasala á tónleika skosku hljóm­sveitarinnar Franz Ferdinand hinn 14. september nk. hefst í dag í verslunum Skífunnar, BT á landsbyggðinni og á vefsíðunni Midi.is. Tónleikarnir fara fram á Nasa og í tilkynningu segir að miðaframboð á tónleikana sé takmarkað.

Tónlist

Revíusýning hjá Slátrinu

Á laugardagskvöldið kl. 20 verður S.L.Á.T.U.R. með sýningu í aðalstöðvum sínum að Hverfisgötu 32 á revíunni ALLT GOTT. Þar með tekur þetta gamla form á sig nýtt sköpulag í faðmi raftónlistarmanna.

Tónlist

Sumarkvöld í Hömrum

Á sunnudagskvöld kl. 20 halda þær Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Sigríður Ragnarsdóttir píanóleikari tónleika í Hömrum, og eru það sjöttu tónleikarnir í sumartónleikaröð Tónlistarfélags Ísafjarðar, Sumar í Hömrum.

Tónlist

Semur í göngutúrum

Hljómsveitin Vetiver heldur tónleika á Organ í kvöld. Andy Cabric, forsprakki sveitarinnar, er spenntur fyrir tónleikunum.

Tónlist

Reykjavík! í 12 Tónum

Hin kröftuga hljómsveit Reykjavík! leikur í 12 Tónum í dag ásamt áströlsku sveitinni Because of Ghosts. Sú síðarnefnda er allþekkt í heimalandinu og er komin hingað til að freista þess að kynnast lifnaðarháttum Íslendinga.

Tónlist

Astrópía - Tónlistin úr kvikmyndinni - þrjár stjörnur

Það er sitt lítið af hverju á Astrópíu-kvikmyndaplötunni. Nokkur ný popplög tekin upp sérstaklega fyrir plötuna, ný og nýleg lög af útkomnum eða væntanlegum plötum og kvikmyndatónlistin sjálf sem Þorvaldur Bjarni samdi og sem hljóðrituð var af Sinfóníuhljómsveit Búlgaríu.

Tónlist

Söngskólinn skorar á kóra

Söngskólinn í Reykjavík og menningarnótt hyggjast efna til söngveislu á menningardaginn 18. ágúst, undir yfirskriftinni Syngjum saman við Söngskólann! Stefnt er að því að samfelld söngdagskrá verði í gangi við hús Söngskólans í Reykjavík, að Snorrabraut 54, frá 15 til 18.

Tónlist