Viðskipti erlent
312 313 314 315 316 317 318 319 320 … 334 ›
RZB þarf ríkisaðstoð eftir tap á íslensku bönkunum Austurríski bankinn Raiffeisen Zentralbank (RZB) mátti horfa upp á að allur hagnaður bankans í fyrra þurrkaðist út eftir afskriftir vegna tapa á íslensku bönkunum og Lehman Brothers. Hefur bankinn samið um ríkisaðstoð upp á 1,75 milljarða evra eða um 280 milljarða kr. af þessum sökum. Viðskipti erlent 3.4.2009 10:59
Staðan í gjaldeyrismálum þjóðarinnar er óviðunandi Viðskiptaráð telur að staðan í gjaldeyrismálum þjóðarinnar sé óviðunandi. Þetta kemur fram í nýrri skoðun sem Viðskiptaráð hefur sent frá sér. Viðskipti erlent 3.4.2009 10:12
J.C. Flowers vill kaupa Kaupþing í Lúxemborg Bandaríski fjárfestirinn J.C. Flowers mun hafa áhuga á því að kaupa Kaupþing í Lúxemborg. Reuters greinir frá þessu í dag. Viðskipti erlent 3.4.2009 08:52
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun þegar bjartsýni fjárfesta jókst í kjölfar yfirlýsinga þjóðarleiðtoga á G20-fundinum í London um að grípa til róttækra aðgerða gegn efnahagskreppu heimsins. Viðskipti erlent 3.4.2009 07:26
Finnar vilja ekki markið aftur „Það er lítill stuðningur við það í Finnlandi að ganga úr myntbandalagi Evrópusambandsins og taka aftur upp finnska markið þrátt fyrir kreppuna,“ segir Ilkka Mytty, fjármálaráðgjafi í finnska fjármálaráðuneytinu. Viðskipti erlent 3.4.2009 06:15
Stýrivextir aldrei lægri á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn lækkaði stýrivexti í gær um fjórðung úr prósenti og standa þeir nú í 1,25 prósentum. Þótt stýrivextir á evrusvæðinu hafi aldrei verið lægri bundu fjárfestar vonir við að stýrivextir færu neðar. Viðskipti erlent 3.4.2009 04:30
Dow Jones yfir 8.000 stigin Dow Jones-hlutabréfavísitalan rauf átta þúsund stiga múrinn á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum í gær. Hún hefur legið undir honum síðan í byrjun febrúar. Lægst fór vísitalan í 6.547 stig fyrir tæpum mánuði. Hækkunin síðan þá nemur rúmum 22 prósentum. Viðskipti erlent 3.4.2009 04:15
Hlutabréf hækkuðu í Bandaríkjunum Mikil uppsveifla var hlutabréfaviðskiptum í Bandaríkjunum í dag og hækkuðu helstu hlutabréfavísitölur í í kauphöllinni á Wall Street í kvöld. Hækkunina má meðal annars rekja til að þess að Bandaríska reikningsskilaráðið aflétti ákveðnum reglum á fjármálafyrirtækjum. Viðskipti erlent 2.4.2009 21:49
Stýrivaxtalækkun á ESB svæðinu undir væntingum Seðlabanki Evrópu (ECB) lækkaði stýrivexti sína um 0,25 prósentustig í hádeginu. Þessi lækkun var töluvert undir væntingum greinenda og sérfræðinga sem almennt gerðu ráð fyrir tvöfalt meiri lækkun í spám sínum. Viðskipti erlent 2.4.2009 12:42
Greiðslustöðvun Kaupþings í Lúxemborg framlengd Dómstóll í Lúxemborg hefur ákveðið að framlengja greiðslustöðvun Kaupþings í landinu um tvo mánuði en hún átti að renna út þann 8. apríl n.k. Viðskipti erlent 2.4.2009 09:35
Hækkun á Asíumörkuðum í morgun Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun og voru það bréf bílaframleiðandans Nissan sem tóku einna mestan kipp en þau hafa ekki hækkað jafnmikið á einum degi síðan árið 1974. Morgan Stanley-vísitalan hefur hækkað samtals um 20 prósent síðan 9. mars og telja sérfræðingar það merki um bata hlutabréfamarkaðarins. Talið er að leiðtogafundur 20 iðnríkja í London hafi jákvæð áhrif á markaðinn og auki bjartsýni fjárfesta. Viðskipti erlent 2.4.2009 07:35
Hlutabréf hækkuðu í Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu hækkuðu í verði í morgun og má meðal annars rekja hækkunina til vangaveltna um að japanskir og suðurkóreskir bílaframleiðendur muni græða á hugsanlegu gjaldþroti bandarísku bílarisanna General Motors og Chrysler sem nú virðist vofa yfir. Viðskipti erlent 1.4.2009 07:36
Græða þrátt fyrir samdrátt í sölu Bílaframleiðandinn Porche hefur tilkynnt um stórkostlega hagnaðaraukningu á mánuðunum sex fram til janúarloka. Aukningin er til komin vegna eignarhlutar fyrirtækisins í Volkswagen Group. Viðskipti erlent 1.4.2009 00:59
Hlutur Baugs í Debenhams settur á sölu Þrettán prósenta hlutur Baugs í Debenhams hefur verið settur á sölu. Með því að losna við Baug af hluthafalistanum vonast stjórnendur fyrirtæksins til að hægt sé að selja það. Viðskipti erlent 31.3.2009 09:48
Lækkun á mörkuðum Asíu Hlutabréf á mörkuðum í Asíu lækkuðu í verði í dag en nú er síðasti dagur fjárhagsársins í Japan og fleiri löndum álfunnar. Nikkei-hlutabréfavísitalan féll um eitt og hálft prósent og eru fjárfestar taldir hafa áhyggjur af afkomu fjármálastofnana víða um heim eftir að ríkisstjórnir í Evrópu þurftu að koma þarlendum bönkum til aðstoðar til að forða þeim frá hruni. Viðskipti erlent 31.3.2009 08:09
Forseti skammar bílarisana Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær nýjar rekstraráætlanir bílarisanna General Motors og Chrysler óásættanlega og væri réttast að fyrirtækin færu í greiðslustöðvun til að knýja fram endurskipulagningu í rekstri þeirra. Gangi það eftir geta fyrirtækin átt von á að fá viðbótarlán úr ríkissjóði. Viðskipti erlent 31.3.2009 04:30
Sarkozy hótar að ganga út af leiðtogafundi Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, hótar að ganga út af leiðtogafundi G20 ríkjanna sem hefst í London á fimmtudaginn. Leiðtogar 20 mestu efnahagsríkja heims mæta á fundinn en þar stendur til að finna leiðir til að stýra efnahagskerfi heimsins út úr kreppunni. Viðskipti erlent 30.3.2009 22:49
Sharíabankar vekja athygli víða um heim Fjárfestingar í takt við boðskap Kóranins er eitt mest ört vaxandi fyrirbærið á mörkuðum í London þessi misserin og verður ef til vill ein af mikilvægustu tekjulindum bankanna í náinni framtíð, að mati Richards Thomas, stjórnarformanns Gatehouse Bank. Viðskipti erlent 30.3.2009 15:00
Rafvirki óvænt 1.300 milljarða í mínus í banka sínum Hinn 32 ára gamli danski rafvirki, Dennis Pallesgaard varð vægast sagt fyrir áfalli þegar hann athugaði stöðuna á bankareikningi sínum um daginn. Þar stóð að hann væri 63 milljarða danskra kr. í mínus á reikninginum eða um 1.300 milljarða kr. Viðskipti erlent 30.3.2009 11:02
Hlutir í JJB Sports falla um 10% í London Hlutir í JJB Sports hafa fallið um 10% í kauphöllinni í London í morgun eftir að Kaupþing hóf að selja tæplega 29% hlut sinn í íþróttavöruverslanakeðjunni. Viðskipti erlent 30.3.2009 10:46
Fjárfestir fær 2,5 milljarða uppgjör frá Kaupþingi Norski fjárfestirinn Christian Sveaas bíður nú eftir að 139 milljónir norskra kr. eða um 2,5 milljarðar kr. rúlli inn á reikning sinn frá Kaupþingi. Bankinn hefur samykkt að greiða þessa upphæð til Sveaas en hún fraus inni í Kaupþingi þegar bankinn hrundi s.l. haust. Viðskipti erlent 30.3.2009 09:40
Kaupþing setur 29% hlut sinn í JJB Sports á uppboð Í dag mun Kaupþing setja tæplega 29% hlut sinn í íþróttavöruverslanakeðjunni JJB Sports á uppboð í London. Bæði Ernst 6 Young og PricewaterhouseCoopers munu annast söluna en alls er um 65 milljón hluti að ræða í JJB Sports. Viðskipti erlent 30.3.2009 08:52
Forstjóri GM segir af sér Rick Wagoner, forstjóri General Motors, sagði af sér í gær eftir að bandarísk stjórnvöld fóru fram á það við hann. Nú stefnir í að ríkisstjórnin komi bílaframleiðandanum til bjargar í annað skiptið með því að lána fyrirtækinu peninga og Chrysler-bílaverksmiðjunum um leið. Viðskipti erlent 30.3.2009 07:17
Lækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á mörkuðum í Asíu féllu í verði í morgun og varð lækkunin í sumum tilfellum töluverð, til dæmis hjá japanska Mizuho-bankanum sem lækkaði um tæp níu prósent. Þá lækkuðu bréf námafyrirtækisins Billington um rúm fjögur prósent í kjölfar verðlækkunar á olíu og kopar. Viðskipti erlent 30.3.2009 07:12
Bílaframleiðendur „ekki alveg í húsi“ Barack Obama forseti Bandaríkjanna segir að bílaframleiðendur séu „ekki alveg í húsi“ en á morgun kemur í ljós hvort greiðslustöðvun General Motors og Chrysler LLC verði framlengd. Unnið er að áætlun fyrirtækjanna. Viðskipti erlent 29.3.2009 19:30
Íslensku bankarnir sýna hörku gegn breskum fyrirtækjum Íslendingar mæta nú breskum fyrirtækjum af hörku þar sem ríkisstjórn landsins gerir allt til þess að hámarka verðmæti eigna, ef marka má orð bankamanns sem tekur þátt í björgunaraðgerðum. Það er breska blaðið Guardian sem fjallar um málið í dag undir fyrirsögninn, „Íslensku bankarnir sýna hörku gegn breskum fyrirtækjum“. Viðskipti erlent 29.3.2009 10:42
Bretland gæti þurft á aðstoð AGS að halda Bretar gætu þurft á aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að halda vegna efnahagsvandans. Þetta segir fjárfestirinn George Soros í dag en hann græddi einn milljarð bandaríkjadollara á svarta miðvikudeginum árið 1992. Hann segir Bretland standa brothætt gagnvart efnahagsvandanum sem nú ríður yfir heiminn. Viðskipti erlent 28.3.2009 12:30
Ekki eyða um efni fram Með hunrdað milljóna punda auð í vasanum er Simon Cowell líklega síðasti maðurinn sem þú vilt heyra gefa ráð um hvernig megi sigrast á efnahagskreppunni. Fyrir tuttugu árum missti Simon sig hinsvegar aðeins í lántökum og í kjölfarið missti hann húsið sitt, spariféð og Porche bifreið sína. Það má því segja að hann geti samsvarað sér með illa stöddum almúganum sem fylgist með sjónvarpsþáttum hans. Viðskipti erlent 28.3.2009 10:56
Endanlega gengið frá sölu Kaupþings í Svíþjóð Endanlega var gengið frá kaupum Ålandsbanken á Kaupþingi í Svíþjóð. Kaupverðið er nú sagt 388 milljónir sænskra kr. en var sagt 414 milljónir sænskra kr. eða um 5,7 milljarðar kr. þegar tilkynnt var fyrst um kaupin um miðjan febrúar. Viðskipti erlent 27.3.2009 16:35
Neyðist til að skipta um nafn á Budweiser-ölinu Bandarísku bruggverksmiðjurnar Anheuser-Busch eru tilneyddar til þess að skipta um nafn á Budweiser öli sínu í Evrópu. Þetta hefur einn af dómstólum Evrópusambandsins ákveðið. Viðskipti erlent 27.3.2009 16:00