Viðskipti erlent
324 325 326 327 328 329 330 331 332 … 334 ›
Hækkun á Asíumörkuðum Hækkun varð á hlutabréfum á asískum mörkuðum í morgun þegar vonir fjárfesta, um aðgerðir bandarískra stjórnvalda til bjargar þarlendum bönkum, styrktust. Nikkei-vísitalan í Tókýó hækkaði um tæpt prósent en þar á bæ munaði mestu um hækkun bréfa Mitsubishi UFJ-bankans, stærsta viðskiptabanka landsins, en þau hækkuðu um 4,6 prósent. Viðskipti erlent 29.1.2009 08:56
Bandarísk hlutabréf hækkuðu í dag Það var líf og fjör á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í dag. Vísitalan rauk upp vegna væntinga manna til áætlunar stjórnvalda sem eiga að losa bankana við lélegar fjárfestingar. Við lokun markaða kom í ljós að Nasdaq vísitalan hækkað um 3,5% og Dow Jones um 2,5%. Þetta er í samræmi við þær hækkanirnar sem hófust í síðustu viku. Viðskipti erlent 28.1.2009 22:01
Breska hagkerfið stendur verst allra þróaðra hagkerfa Breska hagkerfið stendur verst allra þróaðra hagkerfa að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Ísland er ekki í hópnum, enda telst landið nýmarkaður. Viðskipti erlent 28.1.2009 18:47
Fimm lönd eiga hættu á íslenskum örlögum Vefsíðan foreignpolicy.com segir að fimm lönd í heiminum eigi nú á hættu að upplifa íslensk örlög, það er nær algert hrun efnahagslífsins. Þessi lönd eru Bretland, Lettland, Grikkland, Úkranía og Nigaragúa. Viðskipti erlent 28.1.2009 15:22
Segir FIH starfsmenn ekki í vandræðum með aðra vinnu Lars Johansen bankastjóri FIH bankans í Danmörku segir að þeir starfsmenn sem sagt var upp í dag muni ekki eiga í vandaræðum með að fá aðra vinnu. "Það er mikil eftirspurn eftir starfsmönnum bankans," segir Johansen í samtali við börsen.dk. Viðskipti erlent 28.1.2009 14:12
Innkallar 1,3 milljónir Yaris-bíla vegna hugsanlegra galla Toyota hefur ákveðið að innkalla 1,3 milljónir Yaris-bíla vegna hugsanlegra galla í þeim hvað varðar öryggisbeltafestingar og stýrisstangir. Viðskipti erlent 28.1.2009 11:11
Belgíski bankinn KBC tapaði 32 milljörðum kr. á Íslandi Belgíski bankinn og tryggingarfélagið KBC tapaði 200 milljónum evra, eða tæplega 32 milljörðum kr. á íslensku bönkunum í fyrra. Viðskipti erlent 28.1.2009 10:47
Super Bowl finnur fyrir fjármálakreppunni Þegar Pittsburg Steelers og Arizona Cardianls skella saman á sunnudagsnótt í hinu bandaríska Super Bowl verður það í skugga fjármálakrerppunnar. Veisluhöldum í kringum Super Bowl hefur verið aflýst og í fyrsta sinn í sögunni hefur miðaverð á leikinn lækkað milli ára. Viðskipti erlent 28.1.2009 10:06
Noregskóngur fær efnahagsaðstoð í fjármálakreppunni Haraldur Noregskóngur og fjölskylda hans fær sinn hlut í efnahagsaðstoð norskra stjórnvalda til handa atvinnu- og fjármálalífi landsins. Alls fara 27 milljónir norskra kr. eða rúmlega 460 milljónir kr. til konungsfjölskyldunnar, í þeim pakka sem norska stjórnin hefur kynnt. Viðskipti erlent 28.1.2009 09:47
Nomura tapaði meiru á íslensku bönkunum en á Madoff Nomura Holdings stærsta verðbréfamiðlun Japans tapaði um 50 milljörðum kr. á hruni íslensku bankanna á síðasta ári. Er þetta nokkuð meira en Nomura tapaði á ponzi-svindli Bernard Madoff fjárfestis á Wall Street. Viðskipti erlent 28.1.2009 09:07
Hækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í morgun, annan daginn í röð, og voru það fjármála- og hátæknifyrirtæki sem leiddu hækkunina. Viðskipti erlent 28.1.2009 08:07
Hagnast á skortsölu Bandaríski vogunarsjóðurinn Paulson & Co, hefur hagnast um 295 milljónir punda, jafnvirði 50 milljarða króna, með skortsölu á hlutabréfum í Royal Bank of Scotland frá í september í fyrra. Viðskipti erlent 28.1.2009 00:01
Doktor Dómsdagur varar enn við hremmingum Halla mun frekar undan fæti á hlutabréfamörkuðum og munu nýmarkaðsríkin fylgja hinum ríkjunum inn í alvarlega og djúpa kreppa. Svo mælir dr. Nouriel Roubini, prófessor í hagfræði við New York-háskóla. Viðskipti erlent 27.1.2009 18:15
Ódýrara vodka nær einu gleðifréttirnar fyrir Rússa Nær einu gleðifréttirnar fyrir Rússa í fjármálakreppunni sem þar geysar eins og annarsstaðar er að verð á vodka hefur verið lækkað töluvert í landinu. Áfengisyfirvöld hafa ákveðið að lækka skatt sinn á vodka um helming, eða úr 38 rúblum á líterinn og niður í 20 rúblur. Viðskipti erlent 27.1.2009 15:56
Fjármálakreppan á Íslandi kemur við kaunin á Dönum Danskt efnahagslíf finnur verulega fyrir fjármálakeppunni á Íslandi. Danir telja að útflutningur þeirra til Íslands muni minnka um 17% í ár og þar með munu tekjur upp á hálfan milljarð danskra kr. eða um tæpa 11 milljarða kr. Viðskipti erlent 27.1.2009 13:50
Milljarðabónusar til starfsmanna UBS vekja ofsareiði í Sviss Ofsareiði ríkir nú meðal almennings í Sviss eftir að ljóst varð að stjórn UBS bankans ætlar að borga starfsmönnum sínum samtals 2 milljarða franka eða um 210 milljarða kr. í bónusgreiðslur fyrir árið í fyrra. Viðskipti erlent 27.1.2009 13:17
Vildi kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi Jon H. Nordbrekken stofnandi og eigandi Bank2 í Noregi reyndi fyrir jól að kaupa verðbréfamiðlun Landsbankans í Noregi. Ætlunin var að tæpur tugur af lykilstarfsmönnum miðlunarinnar myndu koma í vinnu hjá Bank2. Viðskipti erlent 27.1.2009 11:18
Vill draga gíruga bankastjóra fyrir dómstóla í Bretlandi David Cameron formaður breska Íhaldsflokksins segir að hann vilji að gírugir bankastjórar landsins verði dregnir fyrir dómstóla fyrir að hafa komið Bretlandi á hnéin. Viðskipti erlent 27.1.2009 10:43
Vetrarhörkur vestanhafs hækka olíuverðið Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað hratt undanfarna daga eftir að að fór niður í 34 dollara á tunnuna í síðustu viku. Í morgun var verðið á markaðinum í New York komið í 46 dollara og er skýringin sú að miklar vetrarhörkur eru nú í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 27.1.2009 08:59
Vogunarsjóður græddi 46 milljarða kr. á að skortselja RBS Vogunarsjóðurinn Paulson & Co, einn sá stærsti í heiminum, græddi 270 milljón pund eða um 46 milljarða kr. á því að skortselja hluti í Royal Bank of Scotland (RBS). Viðskipti erlent 27.1.2009 08:38
Sparifjáreigendur Kaupþings í Bretlandi enn í biðstöðu Yfir 6.000 manns sem áttu fé inni á reikningum hjá Singer & Friedlander, banka Kaupþings í Bretlandi, hafa enn ekki fengið innistæður sínar greiddar. Upphaflega lofaði bankatryggingarsjóður landsins (FSCS) að borga féið út fyrir jólin í fyrra. Viðskipti erlent 27.1.2009 08:22
Hækkun á Asíumörkuðum Hlutabréf á Asíumörkuðum hækkuðu í verði í morgun með aukinni bjartsýni fjárfesta á að lánsfé verði aðgengilegra í heiminum í kjölfar aðgerða ýmissa ríkisstjórna til að glæða efnahagslífið. Viðskipti erlent 27.1.2009 08:09
Yfir 44.000 manns misstu vinnuna í dag Yfir 44.000 manns misstu vinnu sína í dag, beggja megin við Atlantshafið. Stærstur hluti hópsins, eða 20.000 manns, voru reknir frá vinnuvélaframleiðandanum Caterpiller í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 26.1.2009 15:21
Verð á gulli rýfur 900 dollara múrinn Heimsmarkaðsverð á gulli er nú komið yfir 900 dollara á únsuna og hefur ekki verið hærra í tæpa fjóra mánuði. Fjárfestar hópast í verðbréf sem byggja á gullbirgðum auk þess sem mikil ásókn er í gullpeninga og gullstangir. Viðskipti erlent 26.1.2009 13:25
Jakkaföt fyrir 5 milljónir seljast eins og heitar lummur Jakkafataframleiðandinn Brioni er ekki banginn við kreppuna og hefur sett nýja jakkafatalínu á markaðinn þar sem stykkið, án bindis, kostar rúmlega 5 milljónir kr.. Viðskipti erlent 26.1.2009 12:17
Skipti Matadorpeningum fyrir danskar krónur Rúmlega sextugri konu í Svendborg í Danmörku tókst nýlega að skipta Matadorpeningum yfir í raunverulegar danskar krónur. Viðskipti erlent 26.1.2009 10:57
Geir Haarde einn þeirra sem bera ábyrgð á kreppunni í heiminum Geir Haarde forsætisráðherra er meðal 25 nafna sem breska blaðið The Guardian segir að beri ábyrgð á fjármálakreppunni sem nú geysar í heiminum. Viðskipti erlent 26.1.2009 10:20
McDonald´s fitnar í fjármálakreppunni McDonald´s hamborgarakeðjan hefur tilkynnt að hún muni opna 240 nýja staði í Evrópu með um 12.000 starfsmönnum í ár. Um er að ræða mesta vöxt McDonald´s í Evrópu undanfarin fimm ár. Viðskipti erlent 26.1.2009 09:33
Hættir sem stjórnarformaður Tandberg Data og selur hluti sína Guðmundur Einarsson er hættur sem stjórnarformaðir tölvufyrirtækisins Tandberg Data í Noregi og hefur hann jafnfram selt alla hluti sína í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 26.1.2009 09:17
Hollenski stórbankinn ING rekur 7.000 starfsmenn Hollenski stórbankinn ING ætlar að reka um 7.000 starfsmenn sína í ár og reyna með því að spara um einn milljarð evra eða hátt í 170 milljarða kr.. Viðskipti erlent 26.1.2009 09:02