Viðskipti erlent
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Musk sjö og hálfri billjón króna fátækari Auðjöfurinn Elon Musk mátti ekki fá 55 milljarða dala greiðslu frá fyrirtæki sínu Tesla, í formi kaupréttar árið 2018. Dómari í Delaware í Bandaríkjunum lýsti þessu yfir í kvöld, fimm árum eftir að hluthafar í fyrirtækinu höfðuðu mál vegna greiðslunnar, sem gerði Musk að einum ríkasta manni heims. Viðskipti erlent 30.1.2024 23:21
Amazon hættir við kaup á framleiðanda Roomba Amazon hefur hætt við kaup á snjallryksuguframleiðandanum iRobot. Ákvörðunin liggur fyrir örfáum dögum eftir að fréttir bárust af því að Evrópusambandið hygðist ekki veita fyrirtækinu leyfi fyrir kaupunum. Viðskipti erlent 29.1.2024 15:19
Ryanair til í að kaupa afpantaðar Boeing þotur Írska lággjaldaflugfélagið Ryanair segist vera reiðubúið til þess að kaupa Boeing farþegaþotur af gerðinni Max 10 sem afpantaðar hafa verið af bandarískum flugfélögum, á réttu verði. Viðskipti erlent 29.1.2024 11:15
Færeyingar vonast eftir hlutdeild í olíuvinnslu Færeyingar sjá tækifæri til að fá hlutdeild í gríðarmiklum umsvifum sem fylgja munu fyrirhugaðri olíu- og gasvinnslu á breska Rosebank-svæðinu. Svæðið er um 130 kílómetra norðvestur af Hjaltlandseyjum en aðeins fimmtán kílómetra austan við lögsögumörk Færeyja. Mun styttra er á svæðið frá Færeyjum heldur en frá Aberdeen, helstu olíuþjónustumiðstöð Bretlandseyja. Viðskipti erlent 28.1.2024 07:07
Segir tolla á kínverska rafmagnsbíla nauðsynlega Auðjöfurinn Elon Musk, sem meðal annars á rafmagnsbílaframleiðandann Tesla, samfélagsmiðilinn X (áður Twitter) og geimfyrirtækið SpaceX, segir nauðsynlegt að setja tolla á kínverska rafmagnsbíla. Annars muni kínverskir bílaframleiðendur valta yfir önnur fyrirtæki í heiminum sem framleiða rafmagnsbíla. Viðskipti erlent 25.1.2024 15:01
Norsk stjórnvöld veita 62 ný leyfi til olíuleitar Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Terje Aasland, hefur tilkynnt um útgáfu 62 nýrra sérleyfa til olíuleitar á norska landgrunninu. Þetta er mesti fjöldi leyfa í fjögur ár og sá fimmti mesti í olíusögu Norðmanna. Í fyrra var 47 leyfum úthlutað. Viðskipti erlent 23.1.2024 15:17
Samsung veðjar á gervigreind í nýjum Galaxy síma Suður-Kóreski tæknirisinn Samsung svipti í gær hulunni af nýjasta snjallsímanum sínum af gerðinni Galaxy S24. Fyrirtækið segir símann nýtast við byltingarkennda tækni sem muni breyta því hvernig fólk notar síma. Viðskipti erlent 18.1.2024 10:28
Apple veltir Samsung úr sessi Bandaríska fyrirtækið Apple velti á síðasta ári tæknirisanum Samsung, frá Suður-Kóreu, úr sessi á toppi snjallsímamarkaðs heimsins. Þar hafði Samsung setið í tólf ár sem fyrirtækið sem seldi flesta snjallsíma í heiminum. Viðskipti erlent 18.1.2024 10:24
Samþykktu endurskipulagningu Viaplay Hluthafar sænska streymisfyrirtækisins Viaplay Group hafa samþykkt endurskipulagningu á félaginu sem leiðir til þess að franski fjölmiðla- og fjarskiptarisinn Canal+ Group og tékkneska fjárfestingafélagið PPF hafa eignast hvor um sig 29,3 prósenta hlut í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 12.1.2024 10:56
Binda enda á 27 ára samstarf sitt Bandaríski íþróttavörurisinn Nike og bandaríski kylfingurinn Tiger Woods hafa bundið enda á samstarf sitt sem staðið hefur síðastliðinn 27 ár. Viðskipti erlent 9.1.2024 07:45
Samstarfsfólk Musk sagt hafa áhyggjur af fíkniefnaneyslu hans Elon Musk, auðugasti maður heims, er sagður neyta fíkniefna á borð við LSD, kókaín og ofskynjunarsveppi. Þetta kemur fram í umfjöllun Wall Street Journal. Viðskipti erlent 8.1.2024 23:33
Hætta sölu á Pepsí vegna „óásættanlegra verðhækkana“ Franska matvöruverslanakeðjan Carrefour hefur tilkynnt að hún muni hætta að selja Pepsí og aðrar vörur úr smiðju PepsiCo. Ástæðan er sögð sú að vörurnar séu orðnar of dýrar eftir nýjustu verðhækkanirnar. Viðskipti erlent 4.1.2024 14:41
Fyrsta konan til að vera metin á 100 milljarða dala Françoise Bettencourt Meyers, erfingi L'Oréal veldisins, er fyrsta konan til að vera metin á yfir 100 milljarða Bandaríkjadala. Bettencourt Meyers, sem er 70 ára, er í 12. sæti á Bloomberg Billionaires Index. Viðskipti erlent 29.12.2023 07:38
Kanni möguleika á lausri skrúfu í 737 Max vélum Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hvetur flugfélög til þess að skoða nýrri 737 MAX farþegaþotur vegna möguleikans á því að þar sé lausa skrúfu að finna í hliðarstýri vélarinnar. Viðskipti erlent 28.12.2023 16:39
Úr rafhlaupahjólum og snjallryksugum í sinn fyrsta rafbíl Kínverski tæknivöruframleiðandinn Xiaomi svipti í dag hulunni af fyrsta bílnum sem fyrirtækið hyggst framleiða. Bíllinn verður rafbíll og ætlar kínverska fyrirtækið sér að verða eitt af fimm stærstu bílframleiðendum veraldar. Viðskipti erlent 28.12.2023 14:22
Skapari Glock-byssunnar er látinn Austurríski verkfræðingurinn Gaston Glock, sem þekktastur er fyrir að hafa fundið upp Glock-skammbyssuna, er látinn. Hann varð 94 ára gamall. Viðskipti erlent 28.12.2023 07:42
Setja takmarkanir á kínversk leikjafyrirtæki Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag nýjar reglur sem eiga að draga úr eyðslu bæði tíma og peninga í tölvuleiki. Kína er stærsti leikjamarkaður heims og virði leikjafyrirtækja þar hríðféll eftir yfirlýsinguna. Viðskipti erlent 22.12.2023 16:53
Ræddu samruna Warner og Paramount David Zaslav og Bob Bakish, æðstu yfirmenn Warner Bros. Discovery og Paramount funduðu í þessari viku um mögulegan samruna fyrirtækjanna tveggja. Forsvarsmenn Paramount vilja selja og forsvarsmenn Warner Bros leita að nýjum samruna. Viðskipti erlent 21.12.2023 12:03
Threads aðgengilegt á Íslandi Forsvarsmenn Meta, áður Facebook, hafa gert samskiptaforritið Threads aðgengilegt víða í Evrópu og þar á meðal á Íslandi. Enn sem komið er virðist forritið aðeins aðgengilegt í tölvum og í símum Apple. Viðskipti erlent 14.12.2023 14:38
Tesla kallar inn tvær milljónir bíla vegna galla í sjálfstýringu Rafbílaframleiðandinn Tesla hefur innkallað tvær milljónir bíla eftir að eftirlitsaðilar framleiðandans í Bandaríkjunum uppgötvuðu galla í sjálfstýringarkerfi bílanna. Viðskipti erlent 13.12.2023 23:59
Hefur „efnahagslega raflostmeðferð“ á því að helminga virði pesósins Ný ríkisstjórn Argentínu hefur tilkynnt að hún muni ríflega helminga virði argentíska pesósins gagnvart Bandaríkjadal. Þetta er fyrsta skrefið í „efnhagslegri raflostmeðferð“ sem Javier Milei, nýr forseti landsins, hefur boðað. Viðskipti erlent 13.12.2023 07:23
Hvað gúgglaði fólk árið 2023? Leitarvélin Google hefur gefið út lista yfir þá hluti sem heimsbyggðin leitaði oftast að árið 2023. Viðskipti erlent 12.12.2023 15:24
Epic Games vinna mikinn sigur á Google Google hefur misnotað aðstöðu sína til að kreista fé úr framleiðendum og takmarka samkeppni á sviði forrita fyrir snjalltæki sem nota Android-stýrikerfi Google. Þessari niðurstöðu komust kviðdómendur í máli Epic Games gegn Google að í San Francisco í gær en niðurstaðan gæti haft mikil á áhrif á stýrikerfið, sem notað er út um allan heim. Viðskipti erlent 12.12.2023 11:09
Segja auglýsingaherferð Zöru hæðast að ástandinu á Gasa Spænska fataverslunin Zara er nú harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlun vegna nýrrar auglýsingaherferð sinnar. Herferðin er sögð vera gerð til að líkja eftir ástandinu á Gasasvæðinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Viðskipti erlent 11.12.2023 08:16
Vilja hækka olíuverð Ráðamenn í Rússlandi og Sádi-Arabíu hafa biðlað til annarra olíuframleiðenda í OPEC+ að draga úr framleiðslu. Olíuverð hefur lækkað töluvert að á undanförnum mánuðum en í gær hafði verðið ekki verið lægra í hálft ár. Rússar og Sádar vilja stöðva þá þróun og hækka verð á nýjan leik. Viðskipti erlent 7.12.2023 18:31
McDonald's kynnir systurkeðju Fyrsti veitingastaður keðjunnar CosMc's kemur til með að opna í þessum mánuði í Chicago í Bandaríkjunum. Skyndibitarisinn McDonald's er á bak við þessa nýju keðju sem stefnir á að veita Starbucks samkeppni á drykkjarvörumarkaðinum. Viðskipti erlent 7.12.2023 13:45
Danir taka ekki við Teslum á leið til Svíþjóðar Danskir hafnarverkamenn hafa ákveðið að styðja verkalýðsfélög í Svíþjóð í deilu þeirra gegn rafbílaframleiðandanum Tesla og munu ekki taka við Teslum sem til stendur að flytja inn til Svíþjóðar. Viðskipti erlent 5.12.2023 07:51
Þriðja hópuppsögnin á árinu hjá Spotify Forsvarsmenn sænsku tónlistarveitunnar Spotify ætla að fækka starfsfólki sínu um sautján prósent. Daniel Ek, forstjóri fyrirtækisins, tilkynnti starfsfólki þetta í morgun. Það gera um 1500 starfsmanna. Viðskipti erlent 4.12.2023 08:13
Danir vilja frekar versla „túrbó kjúkling“ Danskir neytendur versla frekar svokallaðan „túrbó kjúkling“ sem ræktaður hefur verið til þess að vaxa hratt, frekar en venjulegan kjúkling sem hefur það betra. Ástæðan er hækkandi verðlag sökum verðbólgu og stríðsins í Úkraínu. Viðskipti erlent 4.12.2023 07:51
Danir segja skilið við þúsund króna seðilinn Seðlabanki Danmerkur hefur tilkynnt að hann muni frá og með 31. maí 2025 hætta að gefa út þúsund króna seðil. Seðillinn hefur verið í umferð í sinni núverandi mynd í 47 ár eða síðan árið 1975. Viðskipti erlent 1.12.2023 07:46