Viðskipti erlent
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 334 ›
Stærsta rafmyntakauphöll heims sögð hafa óhreint mjöl í pokahorninu Bandarísk eftirlitsstofnun sakar Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims, og stofnanda hennar um misferli með fjármuni fjárfesta, að starfa án tilskilinna leyfa og brot á aragrúa reglna um verðbréf. Brotunum svipar til þeirra sem komu ljós í rekstri keppinautarins FTX sem varð gjaldþrota í haust. Viðskipti erlent 6.6.2023 08:58
Starfsmaður Amazon Ring njósnaði um konur með dyrabjöllumyndavél Fyrrverandi starfsmaður dyrabjöllumyndavéladeildar tæknirisans Amazon njósnaði um konur með myndavélum í bað- og svefnherbergjum um nokkurra mánaða skeið árið 2017. Þetta kemur fram í sátt sem bandarísk yfirvöld gerðu við fyrirtækið vegna brota á persónuverndarlögum. Viðskipti erlent 1.6.2023 10:41
Viðskiptataflið snúist við milli ESB og Rússa Rússar kaupa nú meira af Evrópusambandslöndum en öfugt. Evrópa kaupir mun minna af olíu og gasi frá Rússlandi en áður. Viðskipti erlent 1.6.2023 09:15
Sackler-fjölskyldan kemst undan ábyrgð á ópíóíðafaraldrinum Niðurstaða bandarísks áfrýjunardómstóls þýðir að Sackler-fjölskyldan, eigandi framleiðanda lyfsins OxiContins, kemst hjá persónulegri ábyrgð á ópíóíðafaraldrinum. Fjölskyldan þarf þó að sleppa takinu á lyfjafyrirtækinu og greiða milljarða dollara til að gera sátt um lyktir málaferla gegn því. Viðskipti erlent 30.5.2023 15:35
Lækka laxeldisskatt í von um að ná þingmeirihluta Fyrirhugaður auðlindaskattur á laxeldi í Noregi lækkar úr 35 prósentum niður í 25 prósent, samkvæmt samkomulagi sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa náð við tvo smáflokka í því skyni að tryggja meirihlutastuðning við málið í Stórþinginu. Upphafleg tillaga gerði ráð fyrir að skatturinn yrði 40 prósent af hreinum hagnaði. Viðskipti erlent 29.5.2023 23:44
Draumar Branson úti og starfseminni hætt að fullu Virgin Orbit, geimferðafyrirtækið sem breski auðkýfingurinn Richard Branson stofnaði árið 2017, er hætt starfsemi. Forsvarsmenn fyrirtækisins óskuðu eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og er því ferli nú lokið. Viðskipti erlent 24.5.2023 11:17
ESB sektar Meta um 183 milljarða króna Evrópusambandið hefur sektað Meta, móðurfélag Facebook, um 1,3 milljarða bandaríkjadala, um 183 milljarða króna, fyrir að hafa sent persónuupplýsingar evrópskra notenda til Bandaríkjanna. Viðskipti erlent 22.5.2023 10:09
Meta í samkeppni við Twitter Útlit er fyrir að Meta ætli í samkeppni við Twitter. Fregnir hafa borist af því að fyrirtækið muni gefa út í sumar forrit, sem tengist Instagram, þar sem notendur geta varpað fram stuttum textaskilaboðum til fylgjenda sinna og annarra. Til stendur að taka miðilinn í notkun í sumar. Viðskipti erlent 21.5.2023 10:29
Ná saman um regluverk um rafmyntir Fjármálaráðherrar Evrópusambandsríkja lögðu blessun sína yfir reglugerð um rafmyntir sem verður það fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Starfsemi rafmyntarfyrirtækja verður leyfisskyld með reglunum sem eru sagðar setja þrýsting á bandarísk og bresk stjórnvöld að setja sér sambærileg lög. Viðskipti erlent 17.5.2023 15:38
Stefna vegna áhrifa uppfærslu á drægni Tesla-bifreiða Hópur eigenda tveggja tegunda Tesla-rafbireiða hyggjast stefna framleiðandanum vegna sjálfvirkrar hugbúnaðaruppfærslu sem þeir segja að hafi dregið úr drægni bifreiðanna eða jafnvel skemmt rafhlöðu þeirra. Viðskipti erlent 13.5.2023 10:40
Linda Yaccarino ráðin nýr forstjóri Twitter Linda Yaccarino er konan sem Elon Musk, eigandi Twitter, hefur ráðið sem forstjóra Twitter. Musk hefur verið starfandi forstjóri fyrirtækisins síðan hann keypti allt hlutafé í því í október í fyrra. Yaccarino mun að sögn Musk hefja störf eftir sex vikur. Viðskipti erlent 12.5.2023 17:44
Musk segist hafa fundið konu til að stýra Twitter Kona tekur við sem forstjóri samfélagsmiðilsins Twitter ef eitthvað er að marka Elon Musk, eiganda og starfandi forstjóra miðilsins. Hann segist sjálfur ætla að halda áfram sem starfandi stjórnarformaður og tæknistjóri Twitter. Viðskipti erlent 11.5.2023 21:02
Google kynnti langlokusíma, gervigreind og fleira Forsvarsmenn Google kynntu í gær fyrsta langlokusíma fyrirtækisins, nýjan Pixel síma og sömuleiðis nýja spjaldtölvu. Þá var kynnt nýtt Android stýrikerfi sem notað er í fjölmörgum snjallsímum og spjaldtölvum í heiminum. Kynning fyrirtækisins í gær snerist þar að auki að miklu leyti um gervigreind og spjallþjarka eins og Bard. Viðskipti erlent 11.5.2023 16:02
Ítalir uggandi vegna hærra verðs á pasta Ríkisstjórn Ítalíu boðaði í vikunni til neyðarfundar vegna hás pastaverðs. Verð pasta, sem er gífurlega vinsælt á diskum Ítala, var í mars 17,5 prósentum hærra en það var ári áður, þrátt fyrir að verðlag hefði einungis hækkað um 8,1 prósent á sama tímabili og verð hveitis hefði lækkað. Viðskipti erlent 11.5.2023 15:12
Sænsk flugvélaleiga kaupir fjörutíu rafmagnsflugvélar Sænska flugvélaleigan Rockton hefur samið um kaup á allt að fjörutíu rafmagnsflugvélum af gerðinni ES-30 frá sænska flugvélaframleiðandanum Heart Aerospace. Með samningnum breytti Rocton fyrri viljayfirlýsingu í skuldbindandi kaupsamning um tuttugu flugvélar og um kauprétt á tuttugu flugvélum til viðbótar. Viðskipti erlent 10.5.2023 13:31
Þáttastjórnandi sem Fox losaði sig við færir sig yfir á Twitter Fjarhægrisinnaði sjónvarpsþáttastjórnandinn Tucker Carlson sem Fox News-sjónvarpsstöðin rak nýlega tilkynnti að hann ætlaði að byrja með nýjan þátt á samfélagsmiðlinum Twitter í dag. Carlson lýsir Twitter sem síðasta vígi málfrelsisins. Viðskipti erlent 9.5.2023 21:38
Hætti hjá Google til að vara við hættu af gervigreind Frumkvöðull í gervigreind segist hafa sagt starfi sínu hjá tæknirisanum Google lausu til þess að geta tjáð sig óheft um þær hættur sem hann telur að fylgi tækninni. Hann segist hafa gert sér grein fyrir að tölvur gætu orðið greindari en menn mun fyrr en hann taldi. Viðskipti erlent 2.5.2023 11:55
JPMorgan taka yfir First Republic-bankann Búið er að selja bandaríska bankann First Republic til annars banka, JPMorgan, eftir að bankinn fór í greiðslustöðvun. Tekur JPMorgan nú við öllum eignum og skuldum First Republic. Viðskipti erlent 1.5.2023 09:45
Verðlækkun matvæla á mörkuðum skilar sér ekki á diskana Verð á korni, grænmetisolíu, mjólkurvörum og öðrum landbúnaðarvörum hefur lækkað töluvert á mörkuðum á undanförnum mánuðum. Sú lækkun hefur þó lítið skilað sér á matardiska fólks um heiminn allan. Viðskipti erlent 27.4.2023 16:58
Prentvélar elsta dagblaðs í heimi þagna Elsta starfandi dagblað í heimi hættir að koma út á prenti eftir atkvæðagreiðslu á austurríska þinginu í dag. Blaðið hefur komið út frá árinu 1703 og sagði meðal annars frá uppgangi Mozarts og endalokum keisaraveldis Habsborgara. Viðskipti erlent 27.4.2023 14:07
Forstjóri Theranos frestar fangelsisvist með áfrýjun Elizabeth Holmes, forstjóri fallna tæknifyrirtækisins Theranos, hefur ekki afplánun á meira en ellefu ára fangelsisdómi í dag þar sem hún áfrýjaði niðurstöðu alríkisdómstóls. Samverkamaður Holmes seinkaði afplánun sinn um mánuð með sams konar áfrýjun í síðasta mánuði. Viðskipti erlent 27.4.2023 09:15
Bretar hafna stærsta samruna leikjaiðnaðarins Samkeppniseftirlit Bretlands hefur ákveðið að meina bandaríska tæknifyritækinu Microsoft að festa kaup á leikjarisanum Activision Blizzard fyrir 69 milljarða Bandaríkjadollara. Ákvörðunin er áfall fyrir forsvarsmenn fyrirtækisins sem hyggjast áfrýja. Viðskipti erlent 26.4.2023 11:50
Lentu samkomulagi um losun frá flugsamgöngum Ráðherraráð Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um nýjar reglur til þess að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda frá flugferðum í nótt. Íslensk stjórnvöld krefjast undanþága frá reglunum. Viðskipti erlent 26.4.2023 11:38
Kaupa flugvél til að flytja ferskan eldislax á markað Færeyski fiskeldisrisinn Bakkafrost, í gegnum dótturfélag sitt FarCargo, mun í sumar hefja beint flug frá Færeyjum með ferskan eldislax á erlenda markaði. Til flugsins verður notuð fraktflugvél sem sérstaklega var keypt fyrir verkefnið. Viðskipti erlent 24.4.2023 11:03
Bed Bath & Beyond gjaldþrota Verslunarkeðjan Bed Bath & Beyond hefur óskað eftir greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Mun öllum verslunum þeirra vera lokað á næstu vikum. Verða allar eignir félagsins seldar á næstu vikum. Viðskipti erlent 24.4.2023 06:39
Hrökklast frá vegna ofsafenginna viðbragða við trans áhrifavaldi Yfirmaður markaðsmála fyrir bandarísku bjórtegundina Bud light, er farinn í leyfi eftir að samstarf fyrirtækisins við trans áhrifavald vakti ofsafengin viðbrögð íhaldsmanna. Reiðir hægrimenn ákváðu að sniðganga vörur framleiðandans. Viðskipti erlent 23.4.2023 15:02
Stjörnur ósáttar við að vera bendlaðar við Twitter-áskrift Samfélagsmiðillinn Twitter heldur áfram að krukka í hvernig hann útdeilir staðfestingamerkjum til notenda sinna. Heimsþekktir einstaklingar sem misstu merkið eftir nýlegar breytingar fengu það skyndilega til baka. Þeir eru ekki allir sáttir þar sem Twitter gefur ranglega í skyn að þeir hafi greitt fyrir þjónustuna. Viðskipti erlent 23.4.2023 10:07
Olíusjóðurinn vill ekki gera olíufélag loftslagsvænna Norski olíusjóðurinn ætlar að greiða atkvæði gegn ályktun um að breska olíufélagið BP setji sér metnaðarfyllri loftslagsmarkmið á hluthafafundi í næstu viku. Hópurinn sem stendur að ályktuninni segir sjóðinn ekki framfylgja eigin fjárfestingastefnu. Viðskipti erlent 22.4.2023 11:05
Fræga fólkið ekki lengur auðkennt á Twitter Einungis þeir sem eru áskrifendur að Twitter Blue eru nú með bláa staðfestingarmerkið merkið á samfélagsmiðlinum. Í gær misstu stærstu stjörnur heims, til að mynda Cristiano Ronaldo, Justin Bieber og Kim Kardashian merkið sitt. Viðskipti erlent 21.4.2023 07:38
Óðagot hjá Google þar sem unnið er að nýrri leitarvél Forsvarsmenn Alphabet og Google hafa sett af stað margskonar verkefni sem snúa að því að berjast gegn gervigreindum og áhrifum þeirra á rekstur Google og yfirburðastöðu fyrirtækisins þegar kemur að leitarvélum á netinu. Meðal annars er verið að skoða að gera róttækar breytingar á Google leitarvélinni og að byggja nýja leitarvél frá grunni. Viðskipti erlent 16.4.2023 23:00