Auglýsingastofan Pipar/TBWA hefur kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“, sem stjórnvöld ákváðu að ráðast í til landkynningar á Íslandi sem ferðamannastaðar á erlendum mörkuðum í kjölfar faraldurs kórónuveiru.
Ríkið mun verja einum og hálfum milljarði í markaðsátakið. Tilkynnt var í síðustu viku að M&C Saatchi í samstarfi við íslensku auglýsingastofuna Peel hefði orðið hlutskörpust og hlotið hæstu einkunn valnefndar sem fór yfir innsendar tillögur.
Tillaga M&C Saatchi hlaut 87,17 stig af hundrað mögulegum. Pipar/TBWA kom næst í röðinni með 86,35 stig. Sáralitlu munaði því á einkunnum stofanna tveggja og lýstu forsvarsmenn Pipars yfir vonbrigðum með það að þetta stóra verkefni skyldi falla í skaut erlendrar stofu.
Virðisaukaskattur og fjármálamisferli
Í kæru Pipar, sem send er kærunefnd útboðsmála, er þess nú krafist að ákvörðun Ríkiskaupa um að ganga til samninga við M&C Saatchi vegna útboðsins sé felld úr gildi og að þess í stað verði gengið til samninga við Pipar.
Þá heldur Pipar því fram í kærunni að M&C Saatchi þurfi ekki að borga virðisaukaskatt á Íslandi. Það þurfi Pipar hins vegar að gera og því hafi ekki verið gætt jafnræðis í útboðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá Ríkiskaupum var farið fram á það við alla bjóðendur að verð væru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti.
M&C Saatchi er nú jafnframt viðfangsefni rannsóknar breska fjármálaeftirlitsins vegna rangfærslna í bókhaldi fyrirtækisins. Einn stofnanda fyrirtækisins auk fleiri stjórnanda hafa sagt starfi sínu lausu vegna málsins.
Pipar gerir athugasemdir við þetta í kærunni og segir ljóst að M&C Saatchi geti varla talist uppfylla almennar reglur um fyrirtæki sem séu gjaldgeng til viðskiptasambanda í innkaupa- og útboðsferlum opinberra aðila. Þannig kunni að vera ástæða til að útiloka M&C Saatchi frá útboðsferlinu.