Erlent

21 hefur látist í Írak í morgun

Sautján Írakar létust og þrettán særðust í árás uppreisnarmanna í norðurhluta Íraks í morgun. Uppreisnarmennirnir óku tveimur bifreiðum og gerðu skothríð á strætisvagna. Í vögnunum var fólk á leið til vinnu. Yfirmaður í þjóðvarðliði Íraka var einnig drepinn skammt norður af Bagdad í morgun, sem og þrír lífverðir hans. Fleiri en 70 Írakar hafa látið lífið í árásum uppreisnarmanna síðustu þrjá daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×