Erlent

Fjölskylda fórst í loftárás

Sex manna fjölskylda lét lífið þegar bandarískir hermenn skutu eldflaugum að miðborg Falluja í fyrrinótt. Fólkið hafði að sögn nágranna sinna nýlega snúið aftur heim eftir að hafa flúið borgina um nokkurra daga skeið vegna hættunnar sem þar ríkir. Skömmu eftir að eldflaugin lenti á heimili fjölskyldunnar lenti eldflaug á kennaraskóla, minna tjón varð þó af þeirri sprengingu en hefði getað orðið því einungis lítill hluti eldflaugarinnar sprakk. Bandaríkjaher hefur skotið eldflaugum og sprengjum að Falluja í herferð gegn hryðjuverkamanninum Abu Musab al-Zarqawi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×