Erlent

Myndband með aftöku Bigleys

Aftaka breska gíslsins Kenneths Bigleys er til á upptöku að sögn manns sem Reuters-fréttastofan ræddi við í Írak í dag. Myndbandið hefur ekki enn verið gert opinbert en maðurinn segist hafa séð það og að hans sögn les Bigley upp yfirlýsingu, klæddur appelsínugula gallanum sem hann var í á myndum sem gerðar voru opinberar á dögunum, á meðan sex mannræningjar standa fyrir aftan hann. Að lestrinum loknum sker einn mannanna hausinn af Bigley með hnífi. Bigley var rænt 16. september og haldið með tveimur Bandaríkjamönnum sem skornir voru á háls skömmu síðar. Skammt er síðan bróðir Bigleys taldi sig hafa vissu fyrir því að Kenneth Bigley hefði verið færður öðrum hópi og að það gæti þýtt að unnt yrði að liðka fyrir lausn hans. Síðan hefur ekkert frést, þangað til í dag, þegar sjónvarpsstöð í Abu Dhabi flutti þær fréttir að Bigley hefði verið drepinn. Sagði í fréttinni að hryðjuverkahópur, tengdur Abu Musab al-Zarqawi, leiðtoga al-Kaída í Írak, hefði drepið hann. Fréttastofa SKY segist hafa fengið staðfestingu frá ónafngreindum breskum embættismanni í utanríkisráðuneytinu. Yfirvöld segjast vera að kanna málið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×