Erlent

Bandarísk þyrla skotin niður

Bandarísk þyrla var skotin niður af uppreisnarmönnum í borginni Najaf í Írak í morgun. Þrír hermenn í þyrlunni særðust og voru þeir fluttir í burtu. Bandarískir hermenn og írakskar öryggissveitir börðust við skæruliða úr röðum írakska klerksins Moqtada al-Sadr í gamla miðbæ Najaf í margar klukkustundir í nótt og þurftu að kalla á liðsauka herþyrlna sem gerðu árásir úr lofti. Átökin voru framhald árása uppreisnarmanna á lögreglustöðvar í borginni. Myndin var tekin í morgun eftir að bílsprengja sprakk í íröksku borginni Mahawil þar sem a.m.k. fimm létust og tuttugu og fimm særðust. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×