María Heba fann sig í dansinum 19. júlí 2004 00:01 "
Ég var sko aldrei í neinum íþróttum þegar ég var lítil. Ég var alveg ömurleg í svoleiðis. Ég var svona frekar lítil eitthvað þannig að ég var alltaf kleina í öllum leikjum. Ég var frekar mikið íþróttanörd eiginlega," segir María Heba Þorkelsdóttir leikkona. "Ég var nú reyndar í dansi frá tíu ára aldri og uppúr og það er svona mín hreyfing. Ég er náttúrulega að dansa í Fame núna og dansaði eitthvað í Leiklistarskólanum þegar ég var þar þannig að ég hef haldið þessu við. Síðan hef ég farið á námskeið í dansskólanum hennar Birnu Björnsdóttur. Þar hef ég farið á námskeið fyrir fullorðna. Þau eru fyrir fólk sem er orðið aðeins of gamalt og kannski kann ekkert voðalega mikið en ég hef skemmt mér mjög vel á þeim," segir María. "Síðan fór ég í flamengó-dansnámskeið í Kramhúsinu einu sinni og það var rosalega gaman. Ég lét sauma á mig flamengó-kjól sem er nú frekar látlaus og síðan keypti ég mér mjög fallega flamengó-skó," segir María Heba sem var aldeilis bitin í rassgatið af flamengó-bakteríunni. "Það er nú alltaf á áætluninni minni að fara á flamengó-námskeið á Spáni. Það gerist samt ekki í sumar en kannski næsta sumar. Ég er of upptekin núna í að sýna í Fame og í öðrum málum. Ég hef lært Sevillana-dansa í flamengó en auðvitað eru til milljón tegundir," segir María Heba en spurning er hvaða dans verður fyrir valinu þegar hún ákveður að leggja land undir fót og ná tengslum við sígaunablóðið í sér.
Heilsa Mest lesið Freyja snýr sér að þáttastjórnun Lífið Garðar Gunnlaugs að verða afi Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Nostalgía og glænýr sumarsmellur Lífið Andrés og Margrét gengin í það heilaga Lífið „Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“ Tíska og hönnun Bankaforstjóri selur glæsihýsi í Laugardalnum Lífið Keypti lóð Gylfa og Alexöndru á 225 milljónir Lífið Framhjáhöld: Annar rannsóknarlögga en hinn í hundakofann Áskorun Hefði ekki trúað áhrifunum! Lífið samstarf Fleiri fréttir „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira