Algjör fatafrík 8. desember 2004 00:01 "
Ég er mikil fatafrík og á því sjaldan einhverja uppáhalds flík lengi," segir Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona. Regína heldur mikið upp á þessa kápu sem hún keypti í Vera Moda í Kaupmannahöfn. "Ég kol féll fyrir henni og hef gengið mikið í henni. Það er voðalega sjaldan sem ég held upp á eitthvað í svona langan tíma en þessi kápa er alveg frábær, fyrir utan hvað hún lengir mann," segir Regína brosandi. "Stígvélin keypti ég í GS-skóm og er mjög ánægð með þau. Þau eru svo þægileg og lengja mig. Maður er náttúrulega alltaf að finna leiðir til að láta mann líta út fyrir að vera hærri og grennri." Hún segist ekki fara mikið eftir tískunni heldur kaupi sér frekar það sem henni finnist flott hverju sinni. "Ég fíla samt þessa tísku sem er í gangi núna. Ég hef alltaf verið mjög glisgjörn og á endalaust mikið af skarti. Á meðan aðrir eru skófríkur þá er ég frekar eyrnalokkafrík og ég held að ég eigi um 55 pör af eyrnalokkum." Regína segist einnig hafa mjög gaman af öðrum fylgihlutum, svo sem töskum og nælum. "Ég er svo mikil kráka og elska allt sem glitrar og hef alltaf gert það," segir Regína sem er að fara að spila á jólatónleikum í Grafarvogskirkju annað kvöld ásamt Margréti Eir og fleiri söngkonum. Skoðaðu fleiri þekktar konur og uppáhalds fötin þeirra í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.
Menning Tilveran Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Fleiri fréttir Kanónur með listræna þrennu á Flateyri „Leiðin verður að vera óviss svo vel sé“ „Ég lofa miklu blóði“ Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira