Erlent

51 hermaður drepinn

Lík 51 írasks hermanns fundust á afskekktum vegi í austurhluta Íraks í gær, skammt frá írönsku landamærunum. Að öllum líkindum var setið fyrir hermönnunum, þeim skipað að leggjast á jörðina og þeir skotnir til bana. Mennirnir voru á leið heim til sín í frí úr æfingabúðum þegar atburðurinn átti sér stað. Talið er að einhver óprúttinn aðili hafi lekið upplýsingum um ferðir þeirra til árásaraðilanna. Hermennirnir voru óvopnaðir og áttu því erfitt með að verja sig. "Í framtíðinni munum við reyna að fara varlegar þegar hermenn yfirgefa bækistöðvar sínar. Við munum láta brynvarða bíla fylgja þeim alla leið heim til sín," sagði Walid al-Azzawi, hershöfðingi. Bætti hann því við að þegar líkin fundust hefði þeim verið raðað í fjórar raðir. Bentu verksummerki til þess að um aftöku hafi verið að ræða.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×