Erlent

Janúkovítsj óskar eftir ógildingu

Deilan um úrslit forsetakosninganna í Úkraínu tók óvænta stefnu í dag þegar Viktor Janúkovítsj forsætisráðherra óskaði eftir því við hæstarétt landsins að úrslitin yrðu ógilt. Áður hafði Viktor Júsjenko, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, kært kosningarnar til hæstaréttar og Janúkovítsj hafnað því að láta kjósa á nýjan leik þar sem hann væri lýstur sigurvegari. Í kæru Júsjenkos er yfirkjörstjórn Úkraínu sökuð um kosningasvik og að úrslit forsetakosninganna endurspegli ekki vilja kjósenda. Þjóðþing Úkraínu lýsti í morgun yfir vantrausti á ríkisstjórn landsins og rak þar með Janúkovítsj úr embærtti forsætisráðherra. Erlendir sáttasemjarar hafa undanfarið freistað þess að finna lausn á deilunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×