Menning

Tryllitækið

Tryllitæki þessarar viku er Lotus Elise 111-S sportbíll árgerð 2004 en eigandi hans er Bergur Guðnason. Bílinn keypti Bergur fyrir fimm mánuðum frá Þýskalandi en frændur hans hjálpuðu honum að flytja hann inn gegnum netið. Bíllinn kom til landsins með öllu og Bergur er eingöngu búinn að einangra í brettinu þar sem hann var óeinangraður. Bíllinn er allur úr áli og með Rover 1800 mótor. Bíllinn er 4,6 sekúndur í hundrað og eyðir mjög litlu. Bergur er einmitt nýbúinn að keyra hringinn og eyddi bíllinn að meðaltali aðeins um 5,6 lítrum á hundraði. Vélin skilar 160 hestöflum og bíllinn er einungis 760 kíló. Að sögn Bergs er hann afskaplega fljótur af stað og það sýndi sig í spyrnukeppni á Akureyri 17. júní. Þá sá Bergur hina bílana bara í speglinum. Bergur segir það algjöra nautn að keyra bílinn og hann sé bíla bestur í bleytu og beygjum. Bíllinn hefur unnið til fjölda verðlauna í sportbílageiranum og hefur átta atriði sem eru best í heimi. Til dæmis er hann fljótastur að stoppa og aðeins 2,8 sekúndur úr 0 í 100 kílómetra hraða.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.