Menning

Lacetti á evrópskum markaði

GM Daewoo hefur nú kynnt nýjan bíl, Lacetti, á evrópskum markaði. Bíllinn er fimm dyra hlaðbakur og annar bíllinn í röðinni í nýrri línu bifreiða frá GM Daewoo. Þriðji bíllinn er rétt ókominn en það er Nubira station. Nýi Lacetti bíllinn er mjög rúmgóður og einn sá stærsti í sínum flokki. Afturrýmið er einstaklega mikið og er bíllinn hannaður af Giugiaro á Ítalíu. Hann er búinn ríkulegum öryggisbúnaði og líflegri fjögurra sylendra vél. Vélin er 1,8 lítra og skilar 122 hestöflum en bílana er bæði hægt að fá sjálfskipta og beinskipta. Umboðsaðili Daewoo bíla á Íslandi er Bílabúð Benna





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.